Fréttablaðið - 27.06.2005, Blaðsíða 65
Í gær var alþjóðlegur dagur Sam-
einuðu þjóðanna til stuðnings fórn-
arlömbum pyndinga. Sagan kennir
okkur að of margir hafa kosið að
þegja andspænis misþyrmingum.
Amnesty International hefur unnið
mikið starf í baráttunni gegn pynd-
ingum og í áraraðir birt upplýsingar
um pyndingar og þrýst á yfirvöld
víða um heim að stöðva slíkar mis-
þyrmingar. Fyrsta herferð sam-
takanna gegn pyndingum beindist
að pyndingum á pólitískum föngum.
Sú herferð leiddi meðal annars til
þess að Sameinuðu þjóðirnar sam-
þykktu sáttmála gegn pyndingum
sem meira en 120 ríki hafa staðfest.
Þó hylma margar ríkisstjórnir yfir
pyndingar í stað þess að sækja hina
ábyrgu til saka. Mikið starf er enn
óunnið til verndar fólki sem sætir
eða hefur sætt slíkri meðferð.
Víða í heiminum er fólk pyndað á
kerfisbundinn hátt. Pyndingar
þekkja engin landamæri. Á lista
yfir pyndingartæki eru ekki aðeins
forn tæki, svo sem svipur, barefli,
heldur er nútímatækni líka beitt,
rafmagni, sálfræði og lyfjum.
Pyndingar eru eitt mesta lýtið á
mannskepnunni.
Amnesty International berst
fyrir afnámi pyndinga og beitir sér
einkum á tvennan hátt; með beinni
íhlutun til þess að bjarga fórnar-
lömbum pyndinga þegar upp-
lýsingar eru fyrir hendi og með því
að hvetja yfirvöld, samtök og
almenning til að gera sitt til þess að
uppræta pyndingar.
Í hinu svokallaða „Stríði gegn
hryðjuverkum“ hafa ýmis stjórn-
völd, þar á meðal Bandaríkjamenn,
reynt að endurskilgreina pyndinga-
hugtakið og grafa þannig undan því
algjöra banni sem hefur verið á
notkun pyndinga. Í viðtölum við
fyrrum fanga sem haldið var í
búðum sem reknar eru af banda-
rískum stjórnvöldum í Írak,
Afganistan og Guantánamo hefur
komið fram að þeir hafa sætt pynd-
ingum og niðurlægjandi meðferð.
Upplýsingar Amnesty sýna að ekki
er um afmörkuð tilfelli að ræða.
Bandarísk stjórnvöld hafa ekki
brugðist efnislega við ásökunum
sem fram hafa komið í rannsóknum
óháðra mannréttindasamtaka á
borð við Amnesty International.
Amnesty-félagar hafa barist
gegn pyndingum frá stofnun sam-
takanna. Sú barátta hefur beinst að
fjölmörgum ríkisstjórnum sem hafa
gerst sekar um slíka meðferð. Al-
menningur og ríkisstjórnir um allan
heim þurfa að taka höndum saman
gegn þeirri miklu vá sem pyndingar
eru og fordæma þær.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty Intern.
Grimmilegt, ómannlegt og smánar okkur öll
MÁNUDAGUR 27. júní 2005
JÓHANNA K. EYJÓLFSDÓTTIR
UMRÆÐAN
BARÁTTAN GEGN
PYNDINGUM