Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 29

Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 29
Gunnar Lárus Hjálm- arsson tónlistarmaður hugsar lítið um tísku. Hann vill fyrst og fremst að fötin séu þægileg. „Það er nú engin flík í sér- stöku uppáhaldi hjá mér. Til að velja eitthvað tek ég bara gönguskóna mína,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, öðru nafni Dr. Gunni, að- spurður um uppáhaldsflík- ina. Hann valdi skóna þar sem hann gerir einungis eitt- hvað skemmtilegt svo sem vera úti í íslenskri náttúru og ganga á fjöll þegar hann klæðist þeim. „Maður fer ekkert í svona skó bara til að keyra í Bónus,“ segir hann og bætir því við að hann hafi lítið vitað um skóna þegar hann keypti þá. „Mér var sagt að þetta væri ítalskt eðalleður og ég keypti ein- hverja fitu með til áburðar. Þetta er eina flíkin sem maður þarf eitthvað að dunda sér með.“ Skóna keypti Gunni til að fara að ganga meira um hverfi sitt, Vesturbæinn, en gönguferðirnar urðu fljótt lengri. Nú hefur hann gengið upp á öll hugsanleg fjöll í nágrenni Reykjavíkur og segir skóna eiga þar stóran þátt, enda númer eitt, tvö og þrjú að hafa góðan fót- búnað í löngum göngum. Gunni hugsar mjög lítið um tísku og finnst aðalatriðið að klæðnaðurinn sé sem þægilegastur. „Ég vil helst vera í fötum með fullt af vösum, til dæmis buxum með hliðarvasa, til að geyma alls konar drasl sem ég á. Maður hefur ekki náð þeim fullkom- leika að vera með tösku.“ Gunni reynir þó að komast í búðina Old Navy þegar hann fer til Bandaríkjanna. „Það er gaman að kaupa í svona plebbalegum búðum. Svo kaupir maður alltaf einhverj- ar Hawaii-skyrtur og hljóm- sveitarboli.“ Gunni nefnir líka forláta hatt sem hann keypti í síðustu Frakklandsferð. „Þetta er svona lítill karla- hattur og ég hef verið að íhuga að fara að ganga með hatta. Það er samt eiginlega of vont veður fyrir þetta hérna, hattarnir fjúka bara af.“ mariathora@frettabladid.is [ ] SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er fimmtudagur 29. sept., 272. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 7.31 13.18 19.04 AKUREYRI 7.16 13.03 18.47 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Fer í gönguskónum um fjöll og firnindi Lýðheilsustöð-Geðrækt stend- ur þessa dagana fyrir kynningu á Geðorðunum tíu. Frá 23. september til 23. október munu strætisvagnar Reykjavík- ur keyra um bæinn með eitt geðorð á hverjum vagni. Geð- orðin eru tíu setningar sem minna fólk á hvað það getur gert sjálft til þess að efla geðheilsu sína og hamingju. The Shoe Studio í Kringlunni var að færa sig um set og er verslunin komin í húsnæðið þar sem Hard Rock Café var. Húsheimar í Síðumúla hafa hafið sölu á flísum frá Kutahya Seramik. Flísarnar fást í ýmsum stærðum og henta bæði á gólf og veggi. Verslunin er með kynningartilboð á flísunum út september. Rykmaurar finnast ekki á reyk- vískum heimilum samkvæmt rannsókn Maríu Gunnbjörns- dóttur, læknis við háskóla- sjúkrahúsið í Uppsölum í Sví- þjóð. Farið var inn á 130 heim- ili í Reykjavík, Uppsölum og Tartu í Eistlandi og voru reyk- vísk heimili með lægsta gildi rykmaura og myglusveppa. Talið er að þurrt loft á íslensk- um heimilum sé orsök þess að rykmaurar þrífast ekki hér. Dr. Gunni með gönguskóna sem hafa farið með honum um fjöll og firnindi. LIGGUR Í LOFTINU [ TÍSKA - HEIMILI - HEILSA] KRÍLIN Í skólaferðinni fór- um við á bátahjól sem er bátur sem keyrir á vatninu! SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. SÆNGUR OG RÚMFÖT Hlýlegt á haustin. BLS. 6 TANNHIRÐA Er mjög mikilvæg. BLS. 4 ARMBÖND OG HÁLSMEN Skart fyrir haustið. BLS. 3 Bianca er þekkt verslun víða erlendis og hafa ís- lenskar konur eflaust kynnst henni þar og þeim ágætu vörum sem hún býð- ur upp á. Nú hefur Bianca skotið upp kollinum að Ný- býlavegi 12 í Kópavogi og þar er með klassískan fatn- að fyrir konur á öllum aldri. Þarna fást jakkar í miklu úrvali, pils, buxur, bolir og dragtir, dúnvesti og hlýlegar peysur að ógleymdum glæsilegum keipum úr kanínuull. Eig- andi verslunarinnar er Sigrún Erla Vilhjálmsdóttir. Klassískur kvenfatna›ur Sigrún Erla verslar með fallega og vandaða vöru. Bianca, sem er verslun með vandaðan kvenfatnað, hefur verið opnuð á Nýbýlavegi 12 í Kópavogi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.