Fréttablaðið - 05.10.2005, Qupperneq 31
!""# $
#
%
&
'
(
!
" #"$ %& &
'( )"$ * %&& +++, Hinn 5. október árið 1969 var
fyrsti þáttur Monty Python’s
Flying Circus sýndur á bresku
sjónvarpsstöðinni BBC. Alls
komu út 45 þættir í þáttaröðinni,
sem naut gríðarlegra vinsælda.
Monty Python-leikhópurinn
starfaði ekki eingöngu í sjón-
varpi heldur gerði hópurinn
kvikmyndir og stóð fyrir leik-
sýningum og uppistandi jafn-
framt því sem bækur hafa verið
skrifaðar og tölvuleikir hannað-
ir tengdir leikhópnum.
Monty Python-leikhópurinn
er talinn vera einn mesti áhrifa-
valdur breskrar kímnigáfu og
oft hefur því verið fleygt fram
að hópurinn hafi gert það sama
fyrir húmor og Bítlarnir gerðu
fyrir tónlist. Þrír af meðlimum
Monty Python-leikhópsins
komust á lista yfir fimmtíu
fyndnustu grínista sögunnar.
Þar lenti John Cleese í öðru sæti
en hann er sennilega þekktasti
meðlimur leikhópsins.
Allir í Monty Python-leik-
hópnum voru háskólamenntaðir
og höfðu brandarar þeirra oft
skírskotanir í þekkta heimspek-
inga og fræðimenn. Þeir gerðu
mikið grín að skapgerðarein-
kennum Breta og það var ekki
óalgengt að pólitískar meiningar
þeirra slæddust með. Félögun-
um var mjög umhugað um að
skapa sinn eigin stíl og tókst
þeim svo vel upp að að talað er
um „pythonskan“ stíl þegar
fjallað er um efni af svipuðum
toga og þeirra. Það hugtak fyrir-
finnst meira að segja í orðabók-
um og merkir „fáránlegur og
súrrealískur húmor“.
Eftirlifandi fimm meðlimir
Monty Python reka nú saman
fyrirtækið Python Pictures en
sjötti meðlimurinn, Graham
Chapman, lést árið 1989. Hópur-
inn hefur ekki unnið saman sem
heild að ráði síðan bíómyndin
The Meaning of Life kom út árið
1983 en kom þó saman á sviði
árið 1998 í fyrsta sinn í átján ár.
Þá höfðu félagarnir með sér
krukku sem þeir fullyrtu að
innihéldi ösku Chapmans. Fyrir
slysni helltist úr krukkunni og
var askan svo ryksuguð upp af
sviðinu. Reglulega hafa komið
upp sögusagnir um að hópurinn
sé í þann mund að taka saman
aftur og tekur Eric Idle, einn
meðlima hópsins, undir það og
segir það muni gerast „jafn-
skjótt og Graham Chapman rísi
upp frá dauðum“.
S Ö G U H O R N I Ð
Monty
Python
birtist
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 2005 7
Ú T L Ö N D
LEIKHÓPURINN MONTY PYTHON
Gerði það sama fyrir húmorinn og Bítlarnir
gerðu fyrir tónlistina.
Hæstiréttur Kanada hefur úr-
skurðað að héraðið Breska Kól-
umbía megi halda áfram lögsókn
á hendur þremur stærstu tóbaks-
fyrirtækjum Kanada, Imperial
Tobacco Ltd., JTI-Macdonald
Corp. og Rothmans Benson &
Hedges Inc., auk nokkurra er-
lendra framleiðenda. Undirbún-
ingur lögsóknarinnar hófst árið
1998 þegar ný lög tóku gildi sem
áttu að auðvelda lögsóknir á
hendur tóbaksfyrirtækjum.
Málaferlunum var skotið á
frest á meðan tóbaksfyrirtækin
leituðu réttar síns frammi fyrir
Hæstarétti Kanada. Dómararnir
hafa nú hafnað rökum tóbaksfyr-
irtækjanna um óréttmæti lög-
gjafarinnar og getur því Breska
Kólumbía haldið áfram lögsókn-
inni.
Breska Kólumbía mun krefj-
ast allt að tíu milljarða dollara af
tóbaksfyrirtækjunum vegna
kostnaðar heilbrigðiskerfisins af
völdum reykinga. Málaferlin
munu hafa mikið fordæmisgildi í
Kanada og er talið líklegt að önn-
ur kanadísk sveitarfélög komi í
kjölfarið. - hhs
Réttað yfir stjórnendum Parmalat
Calisto Tanzi, stofnandi fyrirtækisins Parmalat, sér fram á tíu ára fangelsis-
dóm eftir eitt stærsta fjármálasvindl Evrópusögunnar.
Réttarhöld eru nú hafin í Mílanó
yfir fyrrverandi stjórnendum
ítalska mjólkur- og matvæla-
framleiðandans Parmalat. Fyrir-
tækið var lýst gjaldþrota árið
2003 eftir að upp komst um
stærsta fjármálasvindl Evrópu-
sögunnar. Stofnandi og forstjóri
fyrirtækisins, Calisto Tanzi, var
þekktur sem Calisto hinn mikli
og var mikils metinn í ítölsku við-
skiptalífi.
Fyrirtækið óx hratt eftir að
það var skráð á markað árið 1990
og fjárfesti meðal annars í er-
lendum matvælafyrirtækjum og
suður-amerískum fótboltaliðum.
Jafnframt því veitti Tanzi háum
fjárhæðum til góðgerðamála og
stjórnmálaflokka og naut mikils
velvilja almennings og stjórn-
valda.
Sögusagnir um slæma fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins tóku að
berast árið 2003 þegar stóð á
greiðslum til bænda fyrir fram-
leiðslu sína og rannsókn var sett
af stað. Kom þá í ljós að þeir fjór-
ir milljarðar Bandaríkjadala sem
fyrirtækið hafði skráða á banka-
bók á Cayman-eyjum voru ekki
annað en tölur á tölvuskjá, veldið
hrundi eins og spilaborg og úr
varð stærsta fjármálasvindl Evr-
ópusögunnar.
Tanzi og félagar fengu ekki
hlýjar móttökur við komuna í
réttarsalinn enda hafði fall
Parmalat víðtæk áhrif og margir
fjárfestar misstu aleigu sína.
Tanzi stendur frammi fyrir allt
að tíu ára fangelsisdómi verði
hann sakfelldur. - hhs
ÞEKKT VÖRUMERKI Á ÍTALÍU Parmalat
framleiðir allar gerðir af mjólkurafurðum
auk annarra matvæla.
Mega lögsækja tóbaksfyrirtækin
HÆTTULEGAR HEILSUNNI Breska Kól-
umbía hefur nú fengið heimild til að krefja
kanadísk tóbaksfyrirtæki um bætur fyrir
heilsuspjöll.