Tíminn - 05.10.1975, Blaðsíða 29

Tíminn - 05.10.1975, Blaðsíða 29
Sunnudagur 5. október 1975 TÍMINN 29 — Kaupsýsla og list eru and- stæður, þannig að vandamálin hrönnuðust upp hjá Apple, segir George. — Ég var aldrei neitt hrifinn af Apple-búðunum og öllu þvi, sem gert var i kringum Apple. A öllu Apple-timabilinu snerist hugur minn eingöngu um það að vinna i stúdiói að upptökum, en John, Paul og Ringo höfðu alltaf einhverjar háleitar hugmyndir. — Að lok- um fór svo að allt fyrirtækið varð okkur eins og mikill haus- verkur. Allt sem gat farið illa, fór illa. Hins vegar gerði Apple ýmislegt hrósvert, þótt ástandið hafi verið orðið alveg hræðilegt i lokin. Þess vegna er ég nú með Dark Horse Record. — Ég hafði enga trú á Apple, og góðir tón- listarmenn þarfnast hvatning- ar. — Mun þá Dark Horse læra af mistökum Apple og verða fyrir- tæki til frambúðar, spyr Cole- man. — Já, örugglega, svarar Harrison. — Hins vegar mun rekstur fyrirtækisins aldrei hafa áhrif á mig sem tónlistar- mann, þvi ég er tónlistarmaður en ekki kaupsýslumaður. Okkur öllum f jórum var i raun og veru fyrirmunað um langan tima að sinna okkar tónlist vegna vandamálanna i sambandi við Apple, en nú höfum við sem betur fer allir getað fjarlægzt þessa reynslu. — Allir gerum við mistök. Apple-fyrirtækið var ef til vill ein allsherjar mistök, en það er jú það sem lifið er, að meira eða minna leyti, — og til þess eru mistökin að læra af þeim. Harrison segir siðan um fyrir- tæki sitt, að það muni bjóða upp á plötur með nýjum listamönn- um, en hins vegar muni það verða tiltölulega smátt i sniðum. ,,Þeir listamenn, sem verða tengdir Dark Horse, verða að vera mér einhvers virði utan tónlistar sinnar, þvi ég ætla ekki að koma mér i þá gryfju, sem mörg hljómplötu- fyrirtæki eru i, — að þola ekki suma listamenn sina. Ég kæri mig ekki um listamann, sem er t.d. bara stórfenglegur söngv- ari, ef mér geðjast ekki að per- sónunni. Hlustar ekki á plötur Bítlanna — Ég er enn mest hrifinn af þeirri tónlist, sem hreif mig mest i gamla daga, tónlist Smokey Robinson, Stevie Wond- er og þeirra sem léku i þeirra anda, sagðl Harrison, er hann var spurður um aðra tónlistar- menn. — Nei ég hef aldrei verið hrifinn af Balck Sabbath....og ég hef aldrei heyrt i Bay City Rollers. Hins vegar bætti hann við, að han vildi gjarna heyra i þeim, aðeins til að geta myndað sér skoðun á þeim. — Ég er hins vegar alls ekki hrifinn af Slade og Mud. Sá bezti, sem mér dett- ur i hug af enskum tónlistar- DARK HORSE Plötur, sein eru væntanlegar frá Dark Horse. Splinter — með aðra plötu sina frá Dark Horse — hljóðupptöku stjórnaði Tom Scott. Jiva — Kaliforniukvartett — hljóðupptöku stjórnaði Stewart Levine (hefur unnið með Minnie Riperton) Attitudes — ný bandarisk hljómsveit — Jim Keltner, tr<xmmur, Danny Kootch, gitar, Paul Stallworth, söngur og bassi, David Foster, pianó. Henry McCullough— með nýja hljómsveit (var i upphaflegu Wings með Paul McCartney) Stairsteps — blökkumanna- hljómsveit skipuð fjórum tónlistarmönnum frá New York. D Þessi gamla mynd sýnir Ge orge með fyrsta gitarinn sem hann eignaðist. ] NÝ HLLJÓMSVEIT hefur tekið til starfa, og nefnist hún Alfa Beta. Meðlimir hennar sem eru þrir talsins, eru allt kunnir popparar, þeir Guðmundur Haukur Jónsson, fyrrum söngvari i Roof Tops, Atli Viðar Jónsson, bassaleikari úr Borgis, og Halldór Olgeirsson, sem eitt sinn var trommuleikari með Acropolis og um tima með Roof Tops. Að sögn Guðmundar Hauks, sem leikur á pianó, munu þeir allir syngja, en hljómsveitin mun hafa það markmið að leika þá tónlist, er fóik vill heyra, þegar það er að skemmta sér. — Viö leggjum ekki upp úr þvi að eltast við það nýjasta i poppheiminum, enda cr hljómsveitin ekki popphljóm- sveit, sagði Guðmundur Haukur. Alfa Beta er hljómsveit en ekki trió. — Við viljum ekki kalla okkur trló, þvi sá mögu- leikier vissulega fyrir hendi, að við verðum einhvern tlma átján, sagði Guðmundur i gamansömum tón. mönnum, er Peter Skellern, sem minnir mig talsvert á Harry Nilsson, sagði hann. — Hlustarðu nokkurn tima á plötur Bitlanna? — Nei, ég hef ekki hlustað á neina þeirra i áraraðir. — Hvernig minnist þú Bitl- anna núna, þegar þú litur til baka? — Beatles? Ég tel að Bitlarnir hafi veriðeða séu (langt hlé). mjög góðir. Eitt atriði sem öll- um ætti að vera hugstætt i sam- bandi við Bitlana, er það, að við lögðum hart að okkur, og við lögðum okkur i lima við að vikka út okkar eigin tilraunir i tónlist, til þess að yfirstiga eins mikið af okkar takmörkum og við frekast gátum. — Telur þú, að John, Paul, George og Ringo standist nú samanburð við Bitlana? — Ef ég lit á okkur hvern i sinu lagi, tel ég, að enginn okkar standist samanburð við Bitlana heild, en hins vegar tel ég að við séum engir eftirbátar þeirra, sem nú eiga mestu fylgi að fagna. Sennilega gerðum við okkur aldrei almennilega grein fyrir þvi, meðan Bitlarnir voru til, hvað við vorum i raun ofsalega stórir. Það er ekki fyrr en núna, að þetta er að renna upp fyrir okkur, þegar við flett- um i gegnum heimildarit um Bitlanna. Harrison segir nú, að sér hafi likað vel Bitlatimabilið, — svona eftir á að hyggja — þótt honum hafi leiðzt allt umstángið i kringum það, meðan á þvi stóð. — Bitlarnir sendu frá sér mörg góð lög, góða tónlist, ein- hverjar nýjungar allan timann. Við vissum alltaf, að næsta plata okkar myndi seljast vel út á Bitlanafnið, en það stóð þó aldrei i veginum fyrir þvi, að við reyndum ekki eitthvað nýtt. Harrison er inntur eftir þvi, hvort honum finnist hann vera i samkeppni við hina þrjá, eftir að Bitlarnir hættu. — Nei, það finnst mér ekki, segir hann. Ég er ánægður þeg- ar einhver hinna þriggja gerir eitthvað athyglisvert. Við erum vinveittir hver öðrum og ég hygg, að við fylgjumst allir nokkuð vel með þvi, sem hinir eru að fást við. Þá er Harrison spurður að þvi, hvort titillinn „fyrrverandi Bitill” valdi honum ekki leiðindum stundum, þar eð hann hafi alltaf verið sá Bitill, sem rninnst hafði sig i frammi. — Mér likar ekki nafngiftin. Það eina sem ég hef á móti öllu „fyrrverandi”, er að það gefur mér litið i aðra hönd i nútiman- um. — Aðdáun táninganna var ágæt i byrjun, en siðar virtust henni engin takmörk sett. Ég óskaði aldrei eftir þvi, en hins vegar er til fólk, sem finnst svona æði alveg stórkostlegt. — Ég hef ekkert á móti þvi að vera vinsæll, en sú stund kemur, að það er óheilbrigt að fólk telji sig vera eitthvað, sem þú ert alls ekki. I fyrra fór George Harrison i hljómleikaferðalag um Banda- rikin og fékk yfirleitt ekki góða dóma — talað var um að hann hefði misst röddina, og á sum- um hljómleikunum var hvergi nærri uppselt. — A nýju plötunni virðist þú algjörlega hafa náð valdi á röddinni aftur. Hvers vegna var rödd þin svo veik á hljómleikun- um i fyrra? — Það er til einföld skýring á þvi. Fyrir hljómleikaferðalagið hafði ég unnið nætur og daga að ýmsu — stjórnað Ravi Shank- ars-tónlistarhátið i Englandi, unnið að plötunni og skipulagt hljómleikaferöina, — og á þessum tima söng ég ekki mik- ið. Ég hafði hreinlega ofkeyrt mig og var þreyttur. Hins vegar var ég sjálfur ekkert óánægður með röddina — hún liktist pinu- litið rödd Louis Armstrong — en það var bara þreyta, sem oili þessu. Að lokum: — Ég mun halda áfram að þroskast sem tónlistarmaður, reyna að skrifa betri og betri lög, reka litið hljómplötufyrir- tæki. — Bitlarnir voru stórt at- riði i lifi okkar allra, en það var gærdagurinn... (,,but it was Yestarday.....”). — Gsal

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.