Tíminn - 05.10.1975, Blaðsíða 36

Tíminn - 05.10.1975, Blaðsíða 36
36 TÍMINN Sunnudagur 5. október 1975 0 Undir beru fer mjög Vaxandi. Hið ánægju- legasta við það er sú staðreynd, að þessi eftir- spurn fer alls ekki eftir stöð- um eða stéttum þjóðfélagsins. A undanförnum árum hef ég ferðazt með starfsmönnum ýmissa verkalýösfélaga, það má heita orðið fastur liður hjá mér á hverju sumri að vera leiðsögu- maður hjá Trésmiðafélagi Reykjavlkur og Iðju, svo aðeins tvö séu nefnd. Það er gleðilegt að heyra, hve þetta fólk, sem yfir- leitt hefur ekki notið mikillar skólamenntunar, er áhugasamt, hversu vlðlesið og vel upplýst það er, og hve feginsamlega það tekur allri nýrri vitneskju og fróðleik. Og þetta er ekki bundið við neitt tiltekið aldursskeið. — Þessar ferðir eru þá bæði fræðsla og skemmtun? — Einmitt. Og I sumar held ég að hafi verið meira um það en áð- ur, en þær væru skipulagðar. Ferðafélag tslands, hefur áratug- um saman unnið mikið að þvl að kynna landið, sérstaklega þó meö sinum ágætu árbókum, sem mjög margir safna og lesa. En að undanförnu hafa margir aörir að- ilar lagt málinu rækilegt lið, og nægir þar að minna á Vegahand- bókina, sem örn og örlygur gáfu út. Það er ákaflega mikill stuðningur fyrir leiðsögumenn ferðafólks að hafa þessar bækur með sér og tala út frá þeim. Þessi tilhneiging að tengja saman land og sögu sést líka á starfsemi félaganna. Ferð á Njáluslóðir má heita fastur liður hjá Ferðafélaginu, Otivist auglýsir núna Laxdæluferð með ágætum leiðsögumanni, Einari Kristjánssyni, sem þekkir þær söguslóðir afbragðsvel, og fleiri dæmi væri sjálfsagt auðvelt að tina til. — Og áhugi á slikum ferðum fer vaxandi? — Já, alveg áreiðanlega, það finnum við bezt, sem að þessum málum störfum. Snorri Hjartarson skáld segir á einum stað: Land þjóö og tunga, þrenning sönn og ein, þér var ég gefinn barn á móður- kné. í reyndinni myndu allir ís- lendingar vilja taka undir þessi ógleymanlegu orð. Þeir vilja þekkja landiö sitt og sögu þess, þvi að þeir finna hið innra með sér þessa tilfinningu: Land þjóð og tunga, þrenning sönn og ein.. — VS. GEYMSLU hólf GEYMSLUHOLF I ÞREMUR STÆRDUM. NÝ ÞJÓNUSTA yiD VIDSKIPTAVINI I NÝBYGGINGUNNI BANKASTÆTi 7. Sqmvinnubankinn HITAVEITU teng mgar i Kópavogi, Garðahreppi, Reykjavik, Seltjarnarnesi. Hilmar J. H. Lúthersson Simi 7-13-88. Kaupið bílmerki Landverndar Hreint táSland fagurt land LANDVERND Til sölu hjá ESSO og SHELL bensínafgreióslum og skrifstofu Landverndar Skólavörðustig 25 SVALUR eftir Lyman Young Fyrir aðra er vandamálið of mikil sól."' /Hefurðu séð gamlingjan sitja Nei, farðu á móti honum eitthvað er

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.