Tíminn - 28.08.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 28.08.1976, Blaðsíða 7
Laugardagur 28. ágúst 1976 TÍMINN 7 ffttsitni Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Steimgrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur f Edduhús- inu viö Lindargötu, simar 18300 —'18306. Skrifstofur f Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Verö i lausasölu kr. 50.00. Askriftar- ; gjaldkr. 1000.00 á mánuöi. ' Blaöaprenth.f. Fjórðungsþing Norðlendinga í byrjun næstu viku verður fjórðungsþing Norð- lendinga haldið á Siglufirði. Þar verður einkan- lega fiallað um samgönguáætlun fyrir Norður- land, byggðaáætlun fyrir Norðurland vestra og orkumarkað á Norðurlandi, og auk þess norð- lenzka iðnþróun, útgerðarmál, byggðaáætlanir fyrir sveitir og framtið Hólastaðar. Fjórðungssamband Norðlendinga hefur nú starfað rif þrjátiu ár og gerzt athafnasamt i mörgu. Á vegum þess hafa verið gerðar margvis- legar kannanir á norðlenzkum málefnum, sem miklu varðar, að sveitarstjómarmenn og aðrir forystumenn fjórðungsins geti glöggvað sig sem bezt á, og einu sinni til tvisvar sinnum á ári hefur það efnt til funda og þinga, þar sem hver mála- flokkurinn af öðrum hefur verið ræddur og brotinn til mergjar. Á þessum fundum hefur tekizt kynn- ing og oft samstaða manna úr byggðarlögum vitt um Norðurland, þar hefur mönnum gefizt þess kostur að átta sig fljótar og betur en ella hefði orð- ið á margvislegum viðfangsefnum, og þar hafa þeir þjappað sér saman til baráttu fyrir nauð- synjamálum, sem þess eðlis em, að flestir eða allir geta þar lagzt á eina sveif. Það er engum efa bundið, að Fjórðungssamband Norðlendinga, sem og önnur hliðstæð samtök i öðr- um landshlutum hefur orðið til mikillar nytsemd- ar, og ekki hvað sizt hefur það stóraukið skilning manna á þvi, að fyrst og fremst verður heimafólk að vaka á verðinum, halda sinum málum fram sjálft og fylgja þeim fast eftir, ef það vill ekki dragast aftur og verða hlunnfarið á skiptavelli þjóðfélagsins. Þessi samtök eru þeim mun nauðsynlegri þeim landshlutum, sem i fjarlægð eru við Faxaflóa, að svo til allt vald i fjármálum og stjómsýslu eru þeim viðs fjarri, og eðli málsins samkvæmt er mikil þörf á mótvægi i vökulum samtökum með yfirsýn, frjóar hugmyndir og talsverða tækni i málafylgju. Morð ó morð ofan Menn setur hljóða. Á undanfömum árum hefur hvert morðið rekið annað, og þar á ofan koma svo grunsamleg mannshvörf. Flestir hafa trúlega von- að, að mælirinn væri fullur. En svo er ekki, I sum- ar hefur fyrst tekið steininn úr. Alda ofbeldisverka hefur risið enn hærra en áður. 1 júlimánuði var maður myrtur i Kópavogi. Fyrir fáum kvöldum var öðmm bjargað meðvit- undarlausum og illa leiknum úr klóm árásar- manna við eitt veitingahús bæjarins. Og nú finnst kona með áverka látin i ibúð við Miklubraut, og virðist ekki vafi leika á þvi, að hún hafi verið ráðin af dögum. Á hvaða leið erum við og hvað veldur þessum ó- sköpum? Það er ekki aðeins, að fólk sé ekki óhult lengur eitt sins liðs á götum Reykjavikur og ná- grannabæjanna að kvöldlagi eða næturlagi, heldur getur fólk lika verið i lifshættu af völdum sam- borgaranna i húsum inni um miðjan dag. Til skamms tima þekktu Islendingar slikt aðeins af afspurn i útlendum stórborgum. Nú grefur þessi villimennska um sig meðal þeirra sjálfra. —JH Róbert Dole: Ford valdi baróttumann sem varaforsetaefni sitt Þaö þýöir ekki annaö fyrir Carter en aö hvila sig vel fyrir átökin viö þá fótboltamennina Dole og Ford. Robert Dole — maöurinn er Ford forseti valdi sem vara- forsetaefni sitt — er sagöur styrkja framboö Repú- blikanaflokksins á marga vegu. Hann er talinn nægilega hægri sinnaöur, svo aö stuön- ingsmenn Ronald Reagans geta sætt sig viö hann, en þó svo sveigjanlegur, aö miöju- mennirnir séu ánægöir. Þaö er ef til vill mikilvægara, aö Dole kemur til meö aö styrkja Ford á þeim svæöum, sem hann reyndist vera veikastur i for- kosningunum — á land- búnaöarsvæöunum i Miö- Vesturrikjunum. Þá er Dole mikill baráttumaöur, annálaöur fyrir hörku, en þó ævinlega trúr flokki sinum. Robert J. Dole eí fæddur 22. júli 1923 I Kansas-fylki næst-elztur fjögurra systkina og haföi móöurætt hans búiö I Kansas allt frá timum villta vestursins. Faöir hans var millistéttarmaöur, ekki rikur, en komst þó vel af. Hann rak þar rjóma- og eggjasölu og var sagöur mikill vinnuþjark- ur. Þaö kom snemma i ljós, aö Robert Dole — eöa Bob Dole eins og hann var þá nefndur — var mikill baráttumaöur, en hann spilaöi bandariskan fót- bolta, þótt hann yröi aldrei eins góöur og Ford forseti. Eftir menntaskólanám stundaöi Bob Dole nám i tvö ár viö háskólann i Kansas, en þá skall striöiö á. Hann og bezti vinur hans, Bud Smith, létu þegar skrá sig. Smith varö flugmaöur á Kyrrahafsvig- stöövunum og var skotinn niö- ur nálægt Japan. Bob Dole slapp betur, enda þótt hann hafi ekki sloppiö viö minjar frá striöinu. Þaö var aöeins þremur vikum fyrir striöslok, aö hann tók þátt i árás á þýzkt vélbyssuhreiöur, þráttfyrir aö honum hafi veriö boöiö aö sleppa viö árásina, þvi hann haföi særzt 10 dögum áöur. Meöan á árásinni stóö, sprakk handsprengja viö hliöina á honum og má telja þaö mesta mildi aö Dole hafi sloppiö lif- andi. 140 mánuöi var hann sendur milli spítala, lamaöur á hand- leggjum og fótleggjum. Smátt og smátt náöi hann sér þó og i dag er þaö aöeins hægri hand- leggur Doles, sem er lamaöur. 1948 giftist Dole sjúkra- þjálfara, sem hann haföi kynnzt meöan á sjúkradvöl Dole og Ford hans haföi staöiö. Hún heitir Phyllis Holden og reyndist góö aöstoö, þegar Dole fór aftur I háskóla, þvi allt varö aö skrifa fyrir hann á þeim tima. Þau eignuöust eina dóttur áriö 1954, en fyrir fjórum árum skildu þau. Eftir aö Dole haföi náö sér eftir meiöslin frá striöinu, fór hann aö klifa upp metoröa- stigann. Hann varö saksókn- ari i heimabæ sinum, en 1952 haföi hann lokiö lögfræöiprófi. 1960 fór hann aö lita betur kringum sig og áriö eftir fór hann i framboö til fulltrúa- deildar þingsins, og sigraöi. Á þingi var Dole sifellt aö leita aö stuöningsmönnum fyrir stefnu sina I land- búnaöarmálum, sem voru hans áhugamál. Þaö var þá, sem hann kynntist ungum upprennandi stjórnmála- manni — Gerald Ford aö nafni. 1 morgunveröaboöi nýlega sagöi Ford svo frá: 1 júni 1965, þegar ég haföi ákveöiö aö stefna aö sæti leiötoga minni- hlutans i þinginu, þá kom Bob Dole meö þrjá mikilvæga og áhrifamikla þingmenn frá Kansas. Ég reyndi mitt bezta til aö segja þeim hvers vegna ég ætti aö veröa leiötogi minnihlutans. Þeir fóru út. Engar athugasemdir. Daginn eftir greiddu þeir at- kvæöi. Ég vann meö 73 gegn 67, og alltaf siöan hefur Dole veriö aö segja: Kansas geröi þaö. Eins og áöur sagöi, þá hefur Dole alltaf veriö trúr flokkn- um. Þaö munaöi ekki miklu, aö þessi hollusta hans yröi Dole dýrkeypt meöan á Watergate-málinu stóö. Þá varöi hann Nixon fyrrum for- seta af öllum mætti og úthúö- aöi þeim, sem gagnrýndi Nix- on. Dole tapaöi þó ekki á þessu, þegar þaö kom i ljós, aö hann var meö öllu ótengdur málinu. Hitt er þá frekar, aö hann hafi hagnazt. í kosningunum 1974, þegar Dole bauö sig fram i annaö sinn til öldungardeildarinnar, þá haföi hann nóg af vandamálum. Watergate var enn i hugum manna, og repú- blikanar þvi ekki vinsælir, hann var nýskilinn og þar aö auki var keppinautur hans meöal beztu manna demó- krata. Þrátt fyrir þetta allt fór Dole meö sigur af hólmi, þann 11.1 röðinni af 11 mögulegum. En nú er spurningin hvort 12. kosningarnar fari á sama veg og allar hinar. MÓL tók saman

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.