Fréttablaðið - 18.04.2006, Blaðsíða 12
12 18. apríl 2006 ÞRIÐJUDAGUR
�����������������
��������������������
������������������������ ������������
����������������������������������������
��� ����������� ���������������������
����������������������������
�������� ������
��������������������������������������� �������������������������������
��������������������������������������� ������������
��������������������������������������������������������������������������������������� ���������������������
���������
������������
��������
���������
��������
��������
��������
��������
�����������������
��������
�����������
��������
�������������������������������������������������������������������������� ������������������������������� ����������������
VEITINGAREKSTUR Flóknara er og
óaðgengilegra fyrir íslenska veit-
ingamenn að fá rekstrarleyfi en
víðast hvar annars staðar í Evr-
ópu. Þessu hefur Viðskiptaráð
Íslands komist að eftir könnun á
leyfaumhverfi í nágrannalöndun-
um. Viðskiptaráð hefur lengi lagt
á það áherslu að einfalda og stytta
boðleiðir í stjórnsýslunni og telur
nauðsynlegt að taka kerfi leyfis-
veitinga í veitingarekstri til gagn-
gerrar endurskoðunar.
Ef til stendur að reka veitinga-
hús hér á landi sem selur áfengi
og tóbak og hefur opið eftir 23.30
þarf að sækja um fimm mismun-
andi leyfi. Oft eru sömu skilyrði
fyrir leyfunum og sömu gögnin
sem þarf að skila inn fyrir hverju
leyfi fyrir sig. Sama stofnunin
kemur einnig oft að mörgum þess-
ara leyfa. Þannig veitir heilbrigð-
isnefnd tvö leyfanna og er til
umsagnar um tvö önnur. Sveitar-
stjórn, lögregla og byggingafull-
trúi veita eitt leyfi hver og eru til
umsagnar um annað leyfi. Kostn-
aður við leyfisöflunina er um fjög-
ur hundruð þúsund krónur.
Davíð Þorvaldsson, lögfræði-
ráðgjafi hjá Viðskiptaráði, tekur
Bretland sem dæmi um hvernig
hægt er að einfalda leyfisveiting-
ar. „Þar þarf aðeins eitt leyfi til að
reka veitingahús auk þess að skrá
starfsemina hjá heilbrigðisyfir-
völdum. Við höfum áður bent á að
í New York geta þeir sem huga að
veitingarekstri sótt um flest leyfi
í gegnum eina vefsíðu.“
Starfshópur á vegum samgöngu-
ráðuneytisins hefur haft þessi mál
til skoðunnar frá síðastliðnu hausti
og vonast er til að á næstu misser-
um verði hægt að einfalda leyfi-
söflun. Starfshópurinn kannar það
sérstaklega hvort möguleiki er að
fækka þeim leyfum sem krafist er
nú og hvort rafræn leyfaöflun sé
fýsilegur kostur en slíkt hefur
kostnað í för með sér og skilgreina
þarf hvernig honum yrði mætt.
Halldór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra boðaði í stefnuræðu sinni
á Alþingi í fyrra átak undir yfir-
skriftinni „Einfaldara Ísland“.
Halldór vill að farið sé yfir lög og
reglur í þeim tilgangi að auka skil-
virkni og draga úr „regluvirki
stjórnsýslunnar“. Þetta telur Við-
skiptaráð ríma vel við sinn boð-
skap og tekur rafræn skattaskil
sem dæmi um þau sóknarfæri sem
bjóðast við að gera leyfisöflun
aðgengilegri. svavar@frettabladid.is
Dýrt og flókið að fá leyfi
til að reka veitingahús
Fimm mismunandi leyfi þarf til að reka veitingahús á Íslandi. Leyfin kosta um 400 þúsund krónur. Víða í
Evrópu þarf aðeins eitt leyfi. Ráðherra hefur boðað einföldun stjórnsýslunnar án sýnilegra aðgerða.
NÆTURLÍFIÐ Það er bæði dýrt og flókið að afla sér leyfis til veitingahúsareksturs á Íslandi.
Leyfisöflun er einfaldari og ódýrari víðast hvar í Evrópu og Bandaríkjunum.
1. Stofna einkahlutafélag hjá
fyrirtækjaskrá. (Til þess þarf)
– Tilkynning um stofnun félags
– Samþykktir félagsins
– Stofnskrá og stofnfundargerð
2. Fá starfsleyfi frá heilbrigðisnefnd.
3. Sækja um veitingaleyfi frá
sveitarstjórn (skilyrði).
– Forsvarsmaður hafi lögheimili
hérlendis
– Hann hafi forræði á búi sínu
– Hann skuldi hvorki opinber gjöld né
iðgjald í lífeyrissjóð
– Hann má ekki hafa verið dæmdur til
refsivistar
– Nafn veitingahússins verður að falla að
hljóðkerfi og beygingum í íslensku
– Teikningar að húsinu og lýsing á því
4. Sækja um vínveitingaleyfi frá
sveitarstjórn.
– Vottorð frá fyrirtækjaskrá fyrir alla
stjórn og framkvæmdastjóra
– Vottorð frá lífeyrissjóðum um
skuldastöðu
– Vottorð um búsforræði frá héraðsdómi
– Teikningar frá byggingarfulltrúa
– Staðfesting á VSK-númeri frá
ríkisskattstjóra
– Vottorð um skuldastöðu frá tollstjóra
– Leggja fram starfsábyrgðartryggingu
– Leggja fram sakavottorð fyrir alla
stjórnarmenn og framkvæmdastjóra
– Leggja fram búsetuvottorð frá –
Hagstofu fyrir stjórnarmenn og
framkvæmdastjóra
5. Sækja um leyfi til sölu tóbaks frá
Heilbrigðisnefnd.
– Verslunarstarfsemi þarf að vera skráð
– Merkja þarf starfstöð með sérstökum
hætti
6. Sækja um skemmtanaleyfi.
Kostnaður um 400.000 krónur.
Skrifræði leyfisveitinga á Íslandi
Til að hefja veitingahúsarekstur á Íslandi (opnunartími til 23.30):
ÍTALÍA, AP Ítalska lögreglan hand-
tók fyrir helgi þrjá menn sakaða
um að hafa aðstoðað mafíuforingj-
ann Bernardo Provenzano sem
handtekinn var á þriðjudaginn
eftir tæplega fjörutíu ár í felum.
Talið er að fólkið hafi flutt skila-
boð og pakka til og frá Provenzano
á meðan hann fór huldu höfði, en
hann er sagður hafa neitað að nota
farsíma af ótta við hleranir.
Lögregla telur að Provenzano,
sem kallaður hefur verið „foringi
foringjanna“, hafi stýrt mafíunni
á Sikiley í rúman áratug. Hann
situr nú í einangrun í Palermo á
Sikiley, og neitar að sögn lögreglu
að segja eitt aukatekið orð. Á
meðan hann var á flótta var hann
dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir
meira en tug morða. - smk
Mafíuforinginn:
Fleiri hand-
teknir á Ítalíu
FELUSTAÐUR Ítalskir lögreglumenn standa
vörð við sveitahúsið þar sem mafíufor-
inginn Bernardo Provenzano var handtek-
inn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ORKUMÁL „Norðmenn þurfa sér-
stakt leyfi Stórþingsins til rann-
sókna á Jan Mayen-svæðinu og
mér vitandi hefur ekkert slíkt
verið gefið út en okkar vinna
gengur vel,“ segir Steinar Þór
Guðlaugsson, jarðeðlisfræðingur
hjá Orkustofnun.
Íslendingar og Norðmenn
deila með sér yfirráðum yfir
landgrunninu við Jan Mayen en
líklegra þykir en ekki að þar sé
að finna nógu stórar olíulindir til
að verðskulda frekari rannsóknir
og tilraunaboranir. Hafa íslensk
stjórnvöld falið Orkustofnun að
undirbúa slíkar rannsóknir á því
svæði sem tilheyrir Íslandi en
samningur er milli þjóðanna að
hvor um sig muni njóta 25 pró-
senta hlutar hins finnist olía eða
önnur verðmæti þar í framtíð-
inni.
Steinar segir undirbúning
Íslendinga langt kominn og ekki
eigi að líða langur tími áður en
hægt verði að veita rannsóknar-
leyfi sem einkaaðilar á borð við
olíufélög hefðu áhuga á að nýta
sér. „Stefnt er að því að undir-
búningsvinnunni ljúki fyrri hluta
næsta árs og þá þurfa stjórnvöld
að ákveða hvort fýsilegt þyki að
veita leyfi til frekari rannsókna
og leitar.“
- aöe
LANDGRUNN ÍSLANDS Við Jan Mayen er
eitt af þremur svæðum innan íslenskrar
lögsögu sem vænleg þykja til olíuleitar.
Undirbúningur er kominn vel á veg.
Undirbúningur hugsanlegrar olíuleitar Íslendinga við Jan Mayen langt kominn:
Undirbúningur að olíuleit
Lugu því að hafa átt sexbura
Bandarískt par, Kris og Sarah Everson,
hafa verið ákærð fyrir að hafa logið því
að þau hefðu eignast sexbura í mars og
að þeir væru alvarlega veikir. Þau höfðu
tekið á móti peningagjöfum að jafnvirði
266 þúsund króna auk annarra gjafa.
BANDARÍKIN
GRAFARVOGUR Félag sjálfstæðis-
manna í Grafarvogi samþykkti
nýlega á stjórnarfundi ályktun þar
sem því var mótmælt að myndun
þekkingarþorps í Vatnsmýri yrði
einvörðungu gerð á kostnað
úthverfa Reykjavíkur.
Félagið hvatti þess í stað til
þess að rannsóknar- og háskóla-
starfsemi verði efld í Keldnaholti.
Félagið nefnir til rökstuðnings að
víða megi finna fordæmi þess að
slík starfsemi sé byggð upp í
úthverfum borga. Í ályktun frá
félaginu er einnig hvatt til þess að
stuðningur við landsbyggðina
verði ekki á kostnað úthverfa
Reykjavíkur. - sha
Sjálfstæðismenn í Grafarvogi:
Starfsemi efld í
Keldnaholti
KÓNGUR OG KRÓNPRINS Í BRÚÐKAUPI
Mikið var um dýrðir þegar krónprinsinn í
Jórdaníu, Hashem ibn al-Hussein, giftist
hinni sádi-arabísku Fahdah Mohammed
abu-Nayan á dögunum. Hálfbróðir hans,
Abdúllah annar konungur, sést hér óska
honum til hamingju. FRÉTTABLAÐIÐ/AP