Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 1
X B BORGIN OKKAR X B Framsóknarflokkurinn gengur til þessara borgarstjórnar- kosninga meb fastmótaöa og vel unna stefnuskrá i flestum þeim málum sem fjallaö er um i borgarstjórn. Þessa stefnuskrá hefur hann kynnt borgarbúum I vandaðri bók sem dreift hefur verið undanfarna daga. Þessi stefnuskrá er byggð á þeirri málefnabaráttu sem borgarfulltrúar flokksins hafa mótað á siðustu árum, en jafn- framt er tekið tillit til þess sem framtiðin mun bera i skauti sinu. Hún höfðar þvi til hins ókomna þótt byggt sé á reynslu hins liðna. Framsóknarflokkurinn setur sér það mark i þessum kosning- um að fá þrjá fulltrúa kosna i borgarstjórn. Baráttusætið skipar Eirikur Tómasson sem er yngstur þeirra frambjóðenda er möguleika hafa ti) þess að ná kosningu. Með framboði hans vill Al’VlIMJNA ÖRYGGI Framsóknarflokkurinn meðal annars koma til móts við hina mörgu ungu kjósendur sem ganga nú að kjörborði i fyrsta 1 öðru sæti er ung^kelegg og vel menntuð húsmóðir Gerður Stein- þórsdóttir, sem tekiðhefur virkan þátt i margs konar félagsstörfum og meðal annars unnið mikið aö borgarmálefnum Reykvikinga.' I fyrsta sæti á listanum er Kristján Benediktsson sem átt hefur sæti i borgarstjórn i sextán ár og er þar öllum hnútum vel kunnugur. Þessu fólki geta Reykvikingar treyst. . Það mun starfa af áhuga og dugnaðúhvort sem hlutskipti þess verður að skipa meirihluta eða minnihluta i borgarstjórn. Afstaða þess mun mótast af ábyrgðarkennd og þvi hvað borg- inni og ibúum hennar er talið fyrir beztu. Framsóknarflokkurinn telur nú sem fyrr að það sé iýðræðisleg nauðsyn að eðlileg valdaskipti geti átt sér stað i borgarstjórn Reykjavikur eins og alls staðar .annars staðar.þar sem kosningar fara fram eftir leikreglum lýö- ræðisins. Stjórn eins og sama flokks i hálfa öld á sér vart for- dæmi meöal lýðræðisþjóöa. Reynslan hefur lika sýnt og sannað hér á landi að alls staðar, þar sem Sjálfstæöisflokkurinn hefur ráðið og misst meirihlutann hefur hafizt mikið framfaraskeið i flestum greinum. Slikt myndi einnig gerast i Reykjavik. Hér myndi verða gróska og framfarir en ekki glundroöi og stjórnleysi eins og málgögn meirihlutans klifa sifellt á. Slik hefur reynslan orðiö i öðrum kaupstöðum lands- ins. Takmarkið er eins og áður sagði að koma þremur fulltrúum i borgarstjórn. Reykjavikurborg þarfnastþess. En það þarf einnig að sýna þeim andstæðingum Framsóknarflokksins sem leitazt hafa við aö leggja flokkinn i rúst með rógi og álygum að slikar bar- áttuaðferöir borga sig ekki heldur efla samheldni Framsóknar- flokksins og styrk. Vinnum öll vel fyrir B-listann fram á siðustu minútu kjördags- ins er kjörstöðum veröur lokað. Sunnudagur 28. maí 1978 110. tölublað—62. árgangur. Siðumúla 15 • Pósthólf 370 * Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 8639£

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.