Tíminn - 28.05.1978, Qupperneq 21

Tíminn - 28.05.1978, Qupperneq 21
Sunnudagur 28. mai 1978. Siili'i' 21 Gljámispilgerði AkurgerOi 10 27/6 1977 Ljúffengt er þaö til matar bæði hrátt og soöiö. Matreiðslukonur þurfa aö fara i herferö upplýsinga og áróðurs til aö afla þvi almennra vinsælda. Mörgum þykir gott spinat og þaö þrifst hér vel, en hættir til að vaxa úr sér og hlaupa i njóla þegar á liöur. En þá ætti frænka þess silfurblaðkan (Sölvbede) að taka viö. Hún vex fram á haust og þolir dálitiö frost. Ung blöö hennar eru góð sem spinat. Þegar liður á sumar veröa blaö- strengir hennar stórir og matarmiklir, ágætir i súpu, t.d. kjötsúpu. Þiö ættuö að reyna silfurblöðku, þaö er vandalaust aö rækta hana. Fræið stórt, allsvipaö spinatfræi. Má sá þvi i reit eöa beint i garöinn. Margir spyrja um runna i garöana. Ég nefndi i siðasta þætti nokkra, t.d. fjallaribs (alparibs) og dvergmispilsteg- undina gljámispil, sem hefur fagurgljáandi lauf og verður blóörauöur á haustin. Fjalla- ribs er hentugt i lág, svo sem vel hnéhá limgerði, klippt þannig aö þau verði sem veggur al- grænn á hliöum og ofan á. Geitatoppar (Lanicara) geta myndaö slika algræna veggi — en miklu hærri, ef óskaö er. Gljáviöir enn stærri og grófari, en sérlega gljáfagra veggi eða limgeröi .Brekkuviöir góöur i fremur lág þétt geröi. Einnig viðja, birki o.fl. tegundir. Kvist- ir ýmsir (spiraea-tegundir) einnig hæfir, en sumir þeirra eru jafnframt fagrir blómrunn- ar, og þá öðru visi og minna klipptir, og meira látnir halda upprunalegu vaxtarlagi. Vin- sælasti kvisturinn i seinni tiö mun vera birkikvistur nefndur svo aö þvi aö blöð hans minna á virkilauf. Þetta er lágur, þétt- vaxinn runni, sæmilega harö- geröur. Hann ber snjóhvit blóm I sveipum og getur orðiö alhvlt- ur aö sjá. Varazt skal aö gefa honum og öörum blómrunnum mikið köfnunarefni, þvi þá er hætt viö að vöxturinn hlaupi i blööin og blómgun veröi litil. Perlu- eöa Margrétarkvist hef ég séð blómstra fagurlega I Reykjavik ogHveragerði. Hann er oft um metri á hæö og ber ljóspurpurarauða blómskipun. Dögglingskvistur er algengur, ber stóra ljósrauða blómskúfa fremur seint á sumri. Ýmsir fleiri kvistir álitlegir. Oft hefur verið rætt um rósir. Hér skal aðeins, aö gefnu tilefni, minnzt á rauöblaöarós, sem ræktuö er vegna hinna fögru roðalituöu laufa og þrifst viöa vel. En „böggullfylgir stundum skammrifi”. Það sækir ryð- sveppur á rauöblaðarósins og getur valdiö gulbrúnum þykk- ildum á greinunum til stór- skemmda. Mun bezt aö uppræta sýktar rauöblaöarósir. Þessa o.fl. smárunna er hægt aö nota i lág gerði meðfram gangstéttum og til aö afmarka reiti i garðin- um. Birki og viöitegundir hæfa vel i hærri gerði, t.d. á takmörkum lóöa og til skjóls i görðum og i langar raöir fram meö vegum og götum. Mosi sækir oft mikið I-gras- bletti, t.d. þar sem skugga ber á af trjám og húsum, eöa jaröveg- ur áburöarsnauður og súr. Til bóta er aö raka mosann upp úr grasrótinni á vorin og bera vel á. Talsvert gagn er einnig I þvi aö dreifa dálitlu af mold eöa sandi á grasflötina, þaö dregur úr vexti mosans. Margir kaupa afskorin blóm til yndisauka, en ekki er sama á hvaöa þroskastigi þau eru. Kaupmaöur hringdi i góöan viöskiptavin og sagði: „Komdu og kauptu blóm hjá mér núna, þau eru alveg útsprungin og ljómandi falleg”. „Ég held nú siður”, svaraði hinn, „þau eru of gömul og fara strax aö ljókka hjá mérefégfæ þau núna”. Það er mikið satt i þessu, hugleiðið það. Lága jurtin i skálinni er freyjumosi frá hrauninu ofan við Þorlákshöfn. Hann var eina jurtin sem þarvar íarin að lifna við um miöjan mai. Mörgu hett- urnar sem mest ber á, eru gró- hirzlur mosans og sitja i mjóum þræði. Þarna er mikil auðn, bert og blásið land, en fáeinir háir jarbvegsstallar á flötu hellu- hrauninu sýna, að fyrrum hefur verið á þvi þykkur jarðvegur, liklega skógi vaxinn. Mosinn og fáeinar meljurtir gerast nú brautryðjendur nýs gróöurlags á hrauninu. Þorlákshöfn er mjög vaxandi verstöð og mikil verömæti þar á land dregin. íbúöabyggingar álitlegar og virðast bera vott um velmegun. Byrjað aö rækta og snyrta viö mörg húsin. Vitan- lega fellur til kynstur af fiskiúr- gangi, og ekki er allt fullnýtt jafnóbum ennþá. Máfarnir eiga góöa daga og lifa i vellysting- um. Cti á sandinum og hrauninu gaf aö lita stórar breiöur af svartbak o.fl. máfategundum, sumir á hreiörum. Þeir flugu upp sem snöggvast þegar menn nálguöust og færðu sig svolltiö um set. Svona er þetta viöast i grennd verstööva, sláturhúsa og kaupstaða. Máfarnir eru aldir á úrgangi og þeim stórfjölgar. Það er ekki nóg aö vargfugla- féndur hrópi „eitrum, skjótum, drepum, drepum”. Eina leiöin til hæfilegrar fækkunar máfa og hrafna, er aö eyöa úrgangi jafnóöum og hann fellur til. Vitanlega kostar þetta talsvert fé, en er á ýmsan hátt nauðsynleg þrifnaöarráöstöfun, sem ekki verður til lengdar skotiö á frest, enda sums staðar hafnar úrbætur. Sorphreinsun viða komin I gott lag, en ekki er nóg aö aka bara sorpinu út á hauga, þar sem rottur timgast og ruslið fýkur út um allt! Ég ræddi dálitið um limgeröi i görðum og við götu. Hér er mynd af einu, gerðu úr álmi, á Tjarnargötu 24 i Reykjavik. Annars getur álmur orðið mikið tré. Gljámispill getur myndaö lagleg lág gerði. En algengust eru limgeröi og skjólbelti úr birki og viði. Hér er mynd frá Akureyri, sem sýnir aö nafnið geitatoppur getur verið réttnefni. Þarna er geitatoppur lagaður með klipp- ingu þannig að hann myndi toppa eöa laufkúlur iöagrænar. Ribs er vel nothæft i stóra toppa, sem fara cvel úti á gras- flöt. En aðallega er ribs ræktaö sem berjarunni og skjólrunni. Munið aö grisja gamla ribs- runna og nema burt gamlar, oft mosavaxnar greinar, ef þið ósk- iö góðrar berjatekju. ITEL# Suöurlandabraut 2. Simi 82200 HOTEL LOFTLEIÐIR Reykjavíkurflugvelli. Simi 22322 \br í Reykjavík Við bjóðum landsmenn velkomna til Reykjavíkur. Vekjum athygli á þeim sérstöku vorkjörum, sem við bjóðum nú á gistingu. Leitið upplýsinga, - hafið samband við okkur, eða umboðsskrifstofur Flugleiða um land allt. • >' if« ni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.