Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 70
Söngkonan Madonna segist ekki vera guðlastari þrátt fyrir hávær- ar gagnrýnisraddir þess efnis vegna tónleikferðar hennar. Á tónleikunum syngur Mad- onna lagið Live to Tell hangandi á krossi með þyrnikórónu á höfðinu. Hafa rússneska rétttrúnaðar- kirkjan og leiðtogar kaþólskra haldið því fram að um guðlast sé að ræða. „Þetta er ekkert öðruvísi en að hafa kross um hálsinn. Atrið- ið mitt er ekki andstætt kristinni trú og ekki guðlast,“ sagði Mad- onna. „Ég vil að áhorfendur hvetji mannfólkið til að hjálpa hvert öðru,“ bætti hún við. „Ég trúi því að ef Jesús væri á lífi í dag myndi hann gera það sama.“ Vegna gagnrýninnar íhugar bandaríska sjónvarpsstöðin NBC um þessar mundir hvort hún eigi að sjónvarpa tónleikum Madonnu þar í landi í nóvember. Tónleikaferðinni, sem ber heitið Confessions, lauk í Japan á fimmtu- dag og er hún sú ferð sem hefur halað inn mesta peninga fyrir kven- kyns listamann. Sáu alls 1,2 millj- ónir manns sextíu tónleika söng- konunnar víðs vegar um heiminn. Enginn guðlastari MADONNA Söngkonan Madonna segist ekki vera guðlastari. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ástralski leikarinn Russel Crowe hefur líst yfir áhuga sínum á að leika Steve Irwin, krókódílafang- aran fræga, í kvikmynd byggða á ævi hans. Crowe og Irwin voru mjög góðir vinir og bað Irwin Crowe um að leika sig í mynd byggðri á ævi sinni áður en hann lést. Leikarinn er því nú í viðræð- um við kvikmyndafyrirtækið Uni- versal um að gera kvikmyndina og er Crowe mikið í mun að heiðra minningu vinar síns með mynd- inni. Steve Irwin lést eftir að hafa verið stunginn af stingskötu í hjartastað þegar hann var að kafa undan ströndum Ástralíu. Vill leika Irwin RUSSEL CROWE Vill gera mynd um vin sinn Steve Irwin, kródílafangarann fræga, og leika aðalhlutverkið sjálfur. [UMFJÖLLUN] TÓNLIST Ég skrifa nú vanalega ekki um safnplötur, enda eru þær oftast bara gefnar út til þess að safna saman á einn stað því þekktasta frá hverri sveit og maka krókinn. Annað slagið eru þó gefnar út plötur í fræðsluskyni. Oftast verða þær til þegar einhver tónlistarnörd verður uppnuminn af gamalli tón- list sem hann gróf upp einhvers staðar. Tropicália er þó nokkuð merkileg. Öll lögin tuttugu sem hér eru að finna voru gefin út í Brasilíu á stuttu tískutímabili frá 1968-1970, þegar tónlistarmenn þar leyfðu sér að verða örlítið fyrir áhrifum frá frjálslyndum straumum og stefn- um hipparokksins. Þeir blönduðu saman brasilískum samba, djassi og tangó við rokktónlist og útkom- an var virkilega áhugaverð. Eini tónlistarmaðurinn sem ég hafði heyrt um áður af þessari plötu var Gilberto Gil, það væri ekkert fjarri lagi að kalla hann mótsvar Brasilíu við Burt Bacharach. Hann semur afar sæt lög, sérstaklega er lagið Domingo No Parque frábært. Sér- staklega fallegt í niðurbrotsköflun- um. En það er ekki Gilberto Gil sem stelur senunni. Heldur eru það frekar listamenn eins og Tom Zé sem varð víst ekki stjarna í sínu eigin landi fyrr en David Byrne uppgötvaði hann nokkrum áratug- um eftir að hann hóf feril sinn. Lagið hans Jimmy, Renda-se er frá- bært. Vegur fullkomlega salt milli big-band sambatónlistar og nýbylgjurokks. Ekta tónlist sem gæti endað í kvikmynd eftir Taran- tino. Annað slíkt lag er með sveit- inni Os Mutantes, en sú sveit á bæði lög ein auk þess sem hún spilar undir hjá Gilberto Gil í einu lagi. Jorge Ben á bara eitt lag á plöt- unni, og það er það eina sem er sungið á ensku. Það heitir Take It Easy, My Brother Charlie, og hljóm- ar eins og ádeila á Bandaríkin og þáverandi stríð þeirra. Gömul saga og ný greinilega að tónlistarmenn heimsins hafi áhyggjur af því hvernig fólk hagar sér í Hvíta hús- inu. Gal Costa er með englarödd, svo hvæsir hún eins og köttur í laginu Cou Recomecar í köflunum þar sem sveitin er alveg að missa sig í grúvinu. Þetta er frábær plata fyrir alla þá sem eru opnir fyrir heimstón- list. Þetta er þó nokkuð beittara en Buena Vista Social Club, og án efa töluvert svalara. Frábær leið til þess að kynnast broti af tónlistar- menningu sem er annars týnd og tröllum gefin. Lifi uppreisnin. Birgir Örn Steinarsson Hippar í Brasilíu Tónlistarmaðurinn og rithöfund- urinn Valur Gunnarsson gefur í lok október út plötuna Vodka Songs með Gímaldin, forsprakka 5tu herdeildarinnar. „Ég var staddur í Finnlandi eftir áramót með hægðatregðu í skáldsöguskrifum og byrjaði óvart að skrifa lagatexta í staðinn,“ segir Valur, sem áður var í hljóm- sveitinni Ríkið. „Gímaldin var staddur í Pétursborg á sama tíma og ég og ég lét hann fá textana og hann samdi lög við þá. Ég var svo ánægður með útkomuna að mér fannst það glæpur við siðmenn- inguna ef þetta yrði ekki gefið út. Ég veit samt ekki hvort siðmenn- ingin sé á sama máli,“ segir hann. Að sögn Vals er nafn plötunnar, Vodka Songs, lýsandi fyrir stemn- inguna í Pétursborg þar sem hann þurfti að glíma við 30 stiga frost. „Maður var alltaf hálfveikur eða hálffullur og þetta var gott til að halda á sér hita yfir háveturinn,“ bætir hann því við að textarnir fjalli um síkalda stemningu, pólit- ík og kvenfólk og séu nokkurs konar drykkjuvísur. Hugsanlega verða útgáfutón- leikar vegna plötunnar haldnir um jólin, þegar Gímaldin kemur heim frá Rússlandi. - fb Valur og Gímaldin með Vodka Songs VALUR GUNNARSSON Valur var staddur í Finnlandi þegar hann ákvað að semja lagatexta í stað skáldsögu. TROPICÁLIA-A BRAZILIAN REVOLUTION IN SOUND NIÐURSTAÐA: Niðurstaða: Tropicália er frábær safnplata frá Brasilíu með tónlist frá árunum 1968-1970. Þar var sveifla, þar var rokk og djass... allt í einum hrærigraut. !óíbí.rk004 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 JOHN TUCKER MUST DIE kl. 6, 8 og 10 CRANK kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 10.15 TAKK FYRIR AÐ REYKJA kl. 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA VOLVER kl. 5.50 og 8 B.I. 12 ÁRA FACTOTUM kl. 6 JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8 og 10 CLERKS 2 kl. 8 og 10 ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 6 MY SUPER EX-GIRLFRIEND kl. 6 "BIÐIN VAR VEL ÞESS VIRÐI, OG SMITH KLIKKAR EKKI Í EINA MÍNÚTU. FYNDNASTA GAMANMYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU!" KVIKMYNDIR.IS EMPIRE V.J.V. Topp5.is Heiðarleg, fróðleg og bráðskemmtileg mynd DV L.I.B. Topp5.is MEÐ HINNI SJÓÐHEITU SOPHIA BUSH ÚR ONE TREE HILL. EKKI HATA LEIKMANNINN, TAKTU HELDUR Á HONUM! FRÁBÆR GAMANMYND UM ÞRJÁR VINKONUR SEM STANDA SAMAN OG HEFNA SÍN Á FYRRVERANDI KÆRASTA SEM DÖMPAÐI ÞEIM! JOHN TUCKER MUST DIE kl. 4, 6, 8 og 10 CLERKS 2 kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.45 og 10.15 SÝND Í LÚXUS kl. 5.45, 8 og 10.15 MY SUPER-EX GIRLFRIEND kl. 8 og 10.10 LITTLE MAN kl. 3.50 GRETTIR 2 ÍSL. TAL kl. 3.50 og 6 GRETTIR 2 ENSKT TAL kl. 3.50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.