Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 10
FALLINNA MINNST Fólk í Kasmír- héraði í Pakistan minntist þess á sunnudag að eitt ár er liðið frá jarð- skjálftanum sem varð 80.000 manns að bana. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Þorvaldur Ingvarsson, lækningaforstjóri Fjórðungssjúkra- hússins á Akureyri, hefur boðið sig fram í 1. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins í Norðausturkjör- dæmi. Hann skipaði 6. sæti á lista flokksins í kosningunum 2003. Þorvaldur hefur tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og í Norðausturkjördæmi. Hann hefur verið formaður í Sjálfstæðisfélagi Akureyrar frá 2003 og setið í fulltrúaráði sjálf- stæðisfélaganna á Akureyri. Hann er í stjórn samtakanna Ný sókn á Norðurlandi. - ss Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Býður sig fram í 1. sæti ÞORVALDUR INGVASON MATARVERÐ Bændasamtök Íslands fagna einföldun og lækkun vöru- gjalda og virðisaukaskattsins sem felst í tillögum ríkisstjórnarinnar um lækkun matarverðs. Harald- ur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, segir þetta vissulega þýða einhverja kjara- rýrnun fyrir bændur. „En þá er spurning hvar við getum lækkað rekstrarkostnað í búunum á móti. Það er mögulegt að vinna að ein- hverju slíku í samvinnu við stjórnvöld.“ Haraldur ítrekar að í allri umræðu um matarverð hafa bændur sagst vilja breytingar. „Og við vonum að þetta geti leitt til þess að það ríki meiri friður um okkar atvinnuveg. Það er nú ekki hægt að segja eftir þetta að það sé til einhver ofverndaður og ofdekraður íslenskur landbúnað- ur.“ Bændasamtökin voru ekki samningsaðilar að þessum tillög- um að sögn Haraldar en höfðu þó kynnt sínar hugmyndir og leiðir fyrir ríkis- stjórninni. „Ég treysti því að menn gangi frá þessu þannig að þeir kollvarpi ekki neinu. Og það er mikill munur á þess- um tillögum og þeim sem Sam- fylkingin kom fram með þar sem átti að taka af alla verndartolla á tveimur árum. Það er grundvallar- munur þar á.“ Haraldur segir þessar breyt- ingar munu snerta hag bænda á ýmsan hátt. „Við getum ekki sagt hvernig 40 prósenta tollalækkun á kjöti muni snerta okkur þar sem það á eftir að útfæra þá hugmynd betur. En varðandi verðstöðvun mjólkur, sem komin er að frum- kvæði Samtaka afurðastöðva, þá verður væntanlega óbreytt verð í heildsölu á mjólk hér í tvö ár. Það má hafa það í huga varðandi verðkannanir undanfarið sem hafa verið að sýna miklar hækkanir á mjólkurvörum að þær hafa ekkert hækkað frá heildsölum síðan um seinustu áramót. Held- ur er þetta bara álagning og verð- breyting verslunarinnar sem þar hefur farið fram.“ Með vísan í það segir Haraldur bændur hafa ástæðu til að hafa áhyggjur af því hvort þessar breytingar skili sér alla leið til neytenda. „Við erum mjög uppteknir af því að framlag okkar og ríkissjóðs skili sér til neytenda og það þurfa allir að vera á tánum til að svo megi verða. Ég ætla ekki að neinn hyggist stinga þessu inn á sig en það þarf að vanda sig.“ Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir fagnaðarefni ef verið er að lækka virðisaukann en tímasetningin sé umdeilanleg. „Miðað við þær aðstæður sem við höfum búið við í efnahagslífinu síðustu misseri þá getur verið mjög erfitt að fylgja þessum tillögum eftir verði miklar sveiflur á gengi. Menn hafa haft áhyggjur af því að við verðum enn ekki komin inn í það ástand sem færi að hafa þau áhrif á vexti að þeir færu lækkandi. Og það er ekki langsótt að ætla að þeir sex milljarðar sem áætlað er að setja í þetta á næsta ári hafi áhrif inn í það ástand.“ Grétar segir annað áhyggju- efni snúa að 40 prósenta lækkun tolla sökum upplýsingaskorts. „Það er lítið útskýrt hvernig eigi að standa að þessari lækkun. En við viljum svo sannarlega skilja þetta sem svo að þarna sé verið að stíga fyrsta skrefið í átt að lækkun tolla sem er mjög áhuga- vert.“ sdg@frettabladid.is Landbúnaður sé ekki lengur ofverndaður og ofdekraður Formaður Bændasamtakanna segir ekki hægt að tala um ofverndaðan landbúnað út frá tillögum um lækkun matarverðs. Lækkun virðisauka fagnaðarefni en tímasetning umdeilanleg, segir forseti ASÍ. GRÉTAR ÞORSTEINSSON HARALDUR BENEDIKTSSON FÓLK Í INNKAUPUM Matarreikningur meðalfjölskyldunnar mun lækka um 120.000 krónur miðað við tillögur ríkisstjórnar um lækkun matarverðs. Markmið aðgerðanna er að matvælaverð verði sambærilegt á Íslandi og meðalverð á Norðurlöndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MATARVERÐ Verslunarfyrirtækið Hagar hyggst taka fullan þátt í þeim aðgerðum sem fram undan eru samkvæmt tillögum ríkis- stjórnarinnar, þannig að verð- lækkanir á matvælum skili sér að fullu til viðskiptavina, að því er kemur fram í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir efasemdir hafa verið uppi um að svona aðgerðir skili sér til neytenda. „Án þess að menn hafi nefnt það beint þá telja sumir að einhverjir milliliðir, og þá kannski smásalar, muni halda einhverju eftir af þessu. Við viljum gefa út þá yfirlýsingu að við erum ekki þeir aðilar.“ Undir Haga fellur meðal ann- ars rekstur matvöruverslananna Bónuss, Hagkaupa og 10-11. Hagar hvetja stjórnvöld til frekari dáða og að auka enn frekar frelsi í verslun með matvörur, þjóðinni til hagsbóta. - sdg Hagar fagna tillögum um lækkun matarverðs: Lækkanir skili sér til viðskiptavina SUÐUR-KÓREA, AP Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mælti í gær með Suður-Kóreumanninum Ban Ki-moon sem næsta fram- kvæmdastjóra SÞ. Ban, sem nú starfar sem utanríkisráðherra Suður-Kóreu, þakkaði fyrir sig í ræðu og sagðist ætla sér að vinna að lausn á kjarnorkumálum Norður-Kóreu, kjósi allsherjarþing SÞ hann sem arftaka Kofi Annan, en Annan lætur af störfum um áramótin. Hingað til hefur allsherjar- þingið alltaf kosið þann mann sem Öryggisráðið mælir með og ekki þykir líklegt að það bregði út af hefðinni nú. - smk Sameinuðu þjóðirnar: Ban líklega arf- taki Annans BAN KI-MOON Væntanlega næsti fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Samtök verslunar og þjónustu fagna ákvörðun stjórnvalda um aðgerðir til að lækka matarverð. Samtökin leggja áherslu á að uppboð á kvótum á innfluttar kjötvörur og osta verði aflögð en almennir tollar geri alla innflytjendur jafna. MATVÆLAVERÐ Fagna lækkun STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Félag íslenskra stórkaupmanna fagnar aðgerðum stjórnvalda til lækkunar matarverðs. Mikilvægt sé að fylgst verði með því að þær skili sér til neytenda. Lækkun skili sér til neytenda Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, fagnar lækkun virðisaukaskatts á mat óháð því hvar og hvernig hans er neytt. Gott fyrir ferðaþjónustuna 10 10. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR Lækkun matvælaverðs Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, segir ákvörðun ríkisstjórnar- innar stefnu í rétta átt. „Við höfum verið talsmenn þess að lækka vöru- gjöld en fara gætilega í að lækka tolla vegna þeirra áhrifa sem það hefur á íslenskan matvælaiðnað og íslensk- an landbúnað.“ Steingrímur segir að þrátt fyrir nauð- syn aðgerðanna sé nöturlegt að sjá útgjaldafrekar aðgerðir sem þess- ar koma til framkvæmda korteri fyrir kosningar. Þá verði að passa upp á að aðgerðinar skili sér til neytenda. Steingrímur J. Sigfússon: Ákvörðunin stefna í rétta átt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, telur tillögur ríkisstjórnar- flokkanna ekki ganga nógu langt og koma of seint. „Auðvitað er það ánægjulegt þegar stjórnarflokkarnir láta hendur standa fram úr ermum, eftir langa og dýra bið. Ég hefði vilj- að ganga enn lengra eins og tillögur Samfylkingarinnar gerðu ráð fyrir en með þeim hefði verið hægt að lækka matvöruverð um 25 prósent en ekki 16 prósent. Auk þess eru tillögurnar greinilega settar fram á tímapunkti sem hentar vel í kosningabaráttu. “ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Telur of seint í rassinn gripið Guðjón Arnar Kristjánsson, formað- ur Frjálslynda flokksins, segist fagna tillögunum en segir kosningalykt af þeim. „Við teljum að þessar aðgerðir muni skila sér til fólksins í landinu og minnka þann ójöfnuð sem skatta- stefna ríkisstjórnarinnar hefur leitt af sér.“ Guðjón segir að lækkun mat- vælaverðs muni létta undir með barnmörgum fjölskyldum. „Þá treyst- um við að ASÍ muni standa vaktina þannig að lækkanirnar skili sér til neytenda.“ Guðjón Arnar Kristjánsson: Kosningalykt af tillögunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.