Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.10.2006, Blaðsíða 32
■■■■ { vinnuvélar } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■4 Fyrirtækið Vélar og þjónusta selur heildarlausnir í lyfturum frá Hyster-framleiðandanum sem er eitt umsvifamesta fyrirtæki heims á þessu sviði og framleiðir meðal ann- ars allt frá smæstu tjökkum upp í stóra gámalyftara í verksmiðju sinni. Hyster-lyftararnir hafa verið seldir í hartnær hálfa öld hér á landi og að sögn fyrirtækisins hafa þeir reynst einkar vel. Eiríkur Jóhanneson, sölumaður á lyfturum hjá Vélum og þjónustu, segir fyrirtækið nýlega hafa tekið við Hyster-umboðinu á Íslandi. „Hyst- er er einn stærsti framleiðandinn í heiminum og getur státað af því að vera eini framleiðandinn sem fram- leiðir alla línuna í eigin verksmiðju. Við tókum við Hyster-umboðinu í júní og því er þetta að fara af stað af alvöru hjá okkur um þessar mundir,“ segir hann en bætir því við að Hyster sé þó að finna í flestum stærstu verk- smiðjum og vörulagerum á landinu. Eiríkur segir jafnframt að stefna fyrirtækisins sé að eiga allar algeng- ustu lyftarategundirnar á lager og því ætti biðtíminn frá pöntun að vera mjög stuttur. „Ef fólk er hins vegar með sérpantanir þá getur það tekið aðeins lengri tíma.“ Hjá Vélum og þjónustu er nýhaf- inn innflutningur á glænýrri línu af lyfturum, allt frá 1,6 tonnum og upp í 5,5 tonn. Lyftararnir eru búnir ýmsum tækninýjungum sem hafa ekki áður sést hjá Hyster. Má meðal annars nefna nýja Dura match-skipt- ingu sem býður upp á stillanlega sjálfvirka hemlun, spólvörn og tvo gíra. Að mati Eiríks vegur reynsla á Hyster-lyfturum hér á landi þungt. „Eins og áður sagði þá hafa þeir verið til sölu hér á landi í um það bil 50 ár og viðskiptavinir treysta merk- inu enda hefur það reynst afar vel.“ Merki sem menn treysta Vélar og þjónusta eru umboðsaðili hina þrautreyndu Hyster-lyftara á Íslandi. Vélar og þjónusta hafa nýlega tekið við umboði fyrir Hyster-lyfturum á Íslandi. Lyftararnir hafa verið á markaði á Íslandi í tæplega hálfa öld. FRÉTABLAÐIÐ/VILHELM Starfsmenn fyrirtækisins hafa mikla reynslu af lyfturum. IAA Nutzfahrzeugmesse Úr plasti. Þessi grjótflutningavagn er úr plasti. Plasti og koltrefjum. Raunar var hann sýndur á síðasta IAA, fyrir tveimur árum, sem spennandi nýj- ung. Síðan hefur hann verið í fullri vinnu, borgandi vinnu, eins og hver annar stálvagn. Nema að í hverri ferð hafa farið ein þrjú aukatonn! Þrjú aukatonn í ferð, það safnast saman, strákar. Og stelpur. Þessi þrjú tonn af sandi koma í staðinn fyrir um þrjú tonn af dauðavigt sem kostar að draga, bæði fram og til baka. En plast? Dugar það daginn? Og kostar það ekki eins og lítið notuð Boeing? Hann er vissulega það dýr, þessi vagn, að ekki er farin af stað nein framleiðsla, og ekki fékk ég að sjá hann að innan, en pælið samt í því. Þrjú auka borgandi tonn í ferð! Stálið burt, meira hlass VERKTAKAR KYNNIÐ YKKUR KEESTRACK MALARHÖRPURNAR Sterkbyggðar og afkastamiklar hörpur frá Belgíu. Auðveldar í flutningi og notkun. Stærðir frá 16 - 30 tonna. B.M.M. Sími 894-3836 �������������������������������� ���������������������������������� ������������� ������ ������������������� Tvöföldu afturdekkin undir vöru- bílum heimsins mega fara fyrir mér. Alltaf hætta á steini á milli, hund- leiðinlegt að skipta um innra dekkið ef springur. Allir stóru hjólbarða- makararnir eru með sína lausn, eitt ofurbreitt dekk á breiðri felgu í stað tveggja mjórra. Hjá Bridgestone heitir þetta Aircept Greatec. Springi, grípur snjallpulsa úr gúmmíi og ara- míðfilti dekkið innan frá og fyllir út í það á augabragði, þökk sé tvö- földum ventli sem skammtar meiri þrýstingi í ytra dekkið en pulsuna. Ódýrara en tvöfalt segja þeir, og klárlega léttara. Allir græða. Tvö dekk verða eitt Annað sem vakti athygli aftar á svæðinu var hve mörg lítil fyrir- tæki bjóða matarolíulausnir fyrir hvers kyns dísilvélar. Í bílinn er sett alls konar dót, síur, hitarar, stýr- ingar og blöndunarventlar, á tank- inn gula fitan sem annars myndi hafna í pottinum hjá McDonald‘s. Í Bandaríkjunum eru vandamálin við lífræna fitubrennslu oft leyst með efnabreytingu áður en olían fer á tankinn, glycerinið fjarlægt og kolvetnunum breytt til að skapa hreina, velbrennandi dísilolíu án þess að breyta þurfi bílunum. Einn kosturinn við þetta er að ekki skipti miklu hvort fitan sé af repju eða rollu, en í Evrópu er öll áherslan á beinan jurtaolíubruna. Ansi spenn- andi mál. Matur eða mótorfita
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.