Fréttablaðið - 16.12.2006, Blaðsíða 65
Hýjasintur eru fallegar og upp-
lífgandi í svartasta skamm-
deginu.
Hýjasintuskreytingar geta verið
mjög fallegt jólaskraut og auðvelt
er að búa þær til heima. Með einni
hýjasintu í potti, nokkrum greni-
greinum, könglum og fáeinum
gerviberjum er hægt að gera fín-
ustu skreytingu. Hýjasintuskreyt-
ingarnar er einnig hægt að kaupa
tilbúnar í flestum blómabúðum og
þær þurfa alls ekki að vera svo
dýrar. Í Blómavali má til dæmis fá
mjög smekklega hýjasintuskreyt-
ingu á aðeins 599 krónur.
Lifandi
jólaskraut
Nýlega var stærsti raftækjamarkaður landsins
opnaður í Garðabæ, nánar tiltekið í Kauptúni 1.
Hann heitir Max.
Einar Speight er rekstrarstjóri hins nýja markaðar.
Hann segir viðtökur hafa verið góðar.
Markaðurinn skiptist í heimilistækjadeild, eða
„hvítdeild“, eins og Einar kallar hana. Þar eru
ísskápar, þvottavélar, þurrkarar, eldavélar, hellu-
borð og eitt og annað sem telst til stærri hluta á
heimilin. Svo er afþreyingardeild með geisladiska,
tölvuleiki, DVD og tónlistarmyndbönd. Þriðja deild-
in er sjónvarps- og símadeild og sú fjórða smávöru-
deild.
„Þetta eru allt raftæki og tengdir hlutir, til dæmis
smávegis af pottum og pönnum,“ segir Einar. En er
hann með öll vörumerki?
„Já, við erum nánast með alla flóruna. Það er að
vísu erfitt en við reynum að minnsta kosti að tipla
niður hér og þar.“
Tipla niður hér og þar
Margar leiðir eru til að láta
sér líða vel á baðherberginu en
best er þó ef gólfflísarnar eru
heitar.
Mjúk handklæði, baðsölt, sturta
með gufu og svo margt fleira
eykur mikið á þægindin inni á bað-
herberginu. En baðherbergin eiga
til að vera köld og eru köldu flís-
arnar ekki í miklu uppáhaldi hjá
hinum berfættu einkum og sér í
lagi snemma morguns.
Hiti í gólfi gleður fótkalda
ásamt því að hita upp herbergið
frá gólfi til lofts. Uppsetning á
hitalögninn er hvorki flókin né
kostnaðarsöm að því gefnu að ekki
þurfi að brjóta upp flísar sem búið
er að leggja á gólfið. Yfirleitt fylg-
ir svo með hitaskynjari og hita-
stillir sem slekkur á sér þegar hit-
inn er orðinn of mikill. Tærnar
haldast heitar og lífið verður nota-
legra.
Hlýjar tær á
baðinu