Fréttablaðið - 09.02.2007, Side 79

Fréttablaðið - 09.02.2007, Side 79
Nýlega voru tvær sýningar opnað- ar í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, á verk- um Drafnar Friðfinnsdóttur og málverkum Hrafnhildar Ingu Sig- urðardóttur. Dröfn lét mikið að sér kveða í íslensku listalífi og haslaði hún sér völl í einum erfiðasta geira grafík- listarinnar, tréristunni. Á stuttum en afkastamiklum ferli vann hún fjölmargar tréristur sem marka henni mikla sérstöðu í sögu íslenskrar grafíklistar. Dröfn hélt tíu einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýninga. Verk hennar þóttu óvenju heilsteypt og gagn- rýnendur sögðu fyrstu sýningar hennar metnaðarfullar og furðu- lega lausar við allan byrjendabrag. Verkin á sýningunni í Hafnarborg bera sterk höfundareinkenni Drafn- ar. Þar er áberandi sérstakt sam- band milli náttúruefnis og andlegs lífs, eins konar samruni náttúru og ímyndunarafls sem minnir dálítið á ljóðaheim þulunnar. Dröfn féll frá langt fyrir aldur fram en hafði þá þegar tekist að setja mark sitt á íslenska listasögu tuttugustu aldar. Vegleg bók um listferil Drafnar er gefin út í tilefni sýningarinnar en hún ferðast til Hafnarfjarðar frá Akureyri þar sem hún var til sýnis í Listasafni Akureyrar. Á sýningu Hrafnhildar í öðrum og þriðja sal eru tæplega 40 mál- verk, máluð á þessu ári og því síð- asta og eru öll verkin olíumálverk. Hrafnhildur útskrifaðist úr Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1984. Hún rak eigin auglýsinga- stofu um 15 ára skeið en söðlaði um fyrir 9 árum og helgar sig nú ein- göngu myndlistinni. Málverk Hrafnhildar Ingu eru gjarnan úr íslenskri náttúru. Fossar, lækir og lænur, álar og vötn og aurar eru einkennandi fyrir þessa sýningu sem ber heitið Landbrot. Þar er vísað til breytinga í íslenskri nátt- úru, bæði af manna og náttúrunnar völdum. Þetta er sjötta einkasýning listakonunnar en að auki hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýning- um. Sýningarnar verða báðar opnar til 4. mars, alla daga nema þriðju- daga frá kl. 11-17 og fimmtudaga til kl. 21. Athygli skal vakin að nú er frítt í hafnfirsk söfn í boði Glitnis. Landbrot og tréristur Miðasala á Blúshátíð í Reykjavík hefst á vefsvæðinu midi.is í dag. Hátíðin stendur yfir 3.-6. apríl næstkomandi og er von á fjölda góðra gesta. Þar á meðal er ungstirnið Ronn- ie Baker Brooks sem kemur hing- að með eigin hljómsveit. Brooks syngur og leikur á gítar af slíku listfengi að gagnrýnendur halda vart vatni af aðdáun. Honum kipp- ir í kynið því faðir hans var blús- gítarleikarinn Lonnie Brooks og stigu þeir feðgar fyrst á svið saman þegar sonurinn var níu ára gamall. Þá snýr Chicago-dívan Zora Young aftur til landsins og syngur með Blue Ice bandinu, en hún var ein af stjörnum hátíðarinnar í fyrra. Ronnie Baker Brooks og Zora Young eru bæði tilnefnd til alþjóðlegu Blues Foundation verð- launanna í ár. Norska blúsdúóið Jolly Jumper & Big Moe sækir nú Blúshátíð í Reykjavík í fyrsta sinn. Þeir félagar sækja sinn stíl í gamlar hefðir og leika á gítar og munnhörpu. Meðal íslenskra þátttakenda verða Andrea Gylfadóttir og Lay Low auk hljómsveitarinnar Ken- tár sem fagnar 25 ára afmæli sínu. Auk þess mun tónlistarmaðurinn KK koma fram á gospeltónleikum í lok hátíðarinnar . Sem fyrr verð- ur einnig lögð áhersla á að kynna unga og upprennandi blústónlist- armenn. Tónleikar verða á Nordica hót- eli þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöld kl. 20 og sálma- tónleikar í Fríkirkjunni að kvöldi föstudagsins langa, en öll kvöldin verður starfræktur klúbbur Blús- hátíðar á Domo, Þingholtsstræti, og hefst dagskrá þar að tónleikum loknum, eða um kl. 22. Blúshátíð í Reykjavík Í dag verður opnuð samsýning þeirra Ólafs Elíassonar og Jóhann- esar Kjarval á Gammel Strand í Kaupmannahöfn. Það er forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, sem opnar sýninguna. Þetta er í fyrsta sinn sem verkum þessara tveggja íslensku mynd- listarmanna er skipað saman á sýningu en þeir Ólafur og Erró hafa báðir lýst yfir áhuga sínum á að koma verkum Kjarvals á fram- færi erlendis og telja hlut hans í evrópskri myndlistarsögu van- metinn utan íslenskra skerja. Verkin eftir Kjarval eru ríflega 30 talsins og mörg verka Ólafs Elíassonar á sýningunni eru ný. Sýningin ber á dönsku heitið Lava- land. Á undan sýningunni munu forsetahjónin sitja hádegisverðar- boð í dönsku konungshöllinni Amalienborg. Ólafur og Jóhannes LEIKRITBYGGTÁSÖGUSTEPHEN KING VALDIMAR ÖRN FLYGENRINGÓLAFÍA HRÖNN JÓNSDÓTTIR Sýnt á NASA við Austurvöll Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13 - 16 í síma 511 1302 eða á NASA.is 4. sýning sunnudaginn 11. febrúar kl. 20 5. sýning sunnudaginn 18. febrúar kl. 20 Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is SÖNGLEIKURINN LEG EFTIR HUGLEIK DAGSSON OG FLÍS FRUMSÝNING 8. MARS. FORSALA HAFIN! FORSÝNINGAR 1. 2. OG 3. MARS. AÐEINS 1500 KR. FYRSTIR KOMA FYR STIR FÁ! HVAÐ ER AÐ GERAST? ER ALLT AÐ VERÐA VITLAUST? SÝNINGIN SEM BEÐIÐ ER EFTIR!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.