Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 28
H ús Sverris og Elínar Eddu í Grjótagötunni er enginn nýgræð- ingur í móttöku- deildinni og vant miklum gestagangi frá fyrri tíð. Bæði var þar rekið súpueldhús og svo var húsið fræg kommúna á hippaárunum. Húsið er ekki allt sem það er séð og blaðamaður verður sannarlega var við það í miðju viðtali þegar hlutir í stof- unni fara á fleygiferð. Sverrir seg- ist öllu vanur hvað húsið varðar og er löngu hættur að leita að hlutum þegar þeir taka upp á því að hverfa. Þeir birtist einhvers stað- ar aftur. Kjarni málsins er sá að Sverrir er heldur ekki allur þar sem hann er séður og kemur sífellt á óvart. Þennan daginn framreiðir hann heitt te en hann á í nokkuð sérstöku sambandi við tejurtir. Teið er hans eigin framleiðsla, kallast einfaldlega Alkemist - Sverrir og fæst meðal annars í Te og kaffi. Sverrir segir þó að í augnablikinu sé það uppselt því hann hefur haft í svo mörgu öðru að snúast. Sverrir segist hafa verið mikill teáhugamaður um margra ára skeið, útbúið sínar eigin blöndur í þó nokkur ár en framleiðslan hófst þegar hann komst í kynni við kokkinn Rene Redzepi sem vann fyrstu Food and fun verðlaunin hér á landi. „Ég hafði ekki hugsað um markaðinn í þessu samhengi heldur fannst mér bara gaman að blanda saman tejurtum. Rene hefur notað teið á mjög hugmyndaríkan hátt í mat- argerð og meðal annars látið fisk liggja í jurtunum. Ég þróaði því þrjár blöndur í framhaldi af Food og fun hátíðinni og langar til að halda áfram með það og búa til jafnvel te fyrir barnshafandi konur og börn sem þjást af maga- krampa. Vökvinn gæti hjálpað þeim að róa meltuna þarna fyrstu mánuðina svo þau og foreldrarnir geti sofið. Já, og timburmannate,“ segir Sverrir og brosir. „Það væri gaman að skoða hvaða jurtir það eru sem keyra upp orkuna í líkam- anum. Ég hef nefnt þetta við nokkra vini mína og ég er nú þegar kominn með langan pöntunarlista, og ég held að það sé nú ekki vegna þess að þeir séu drykkfelldir held- ur einfaldlega forvitnir.“ Þeir sem þekkja Sverri hafa ekki farið varhluta af heilsuáhuga hans. Um tvítugt fór hann að velta eigin mataræði fyrir sér og þaðan lá leiðin inn í þykkni andlegra mála og hann fór að hugleiða og hefur gert það eftir Zen-fræðun- um í mörg ár. Zen-hugleiðslan snýst meðal annars um það að sleppa taki af hugsuninni og láta ekki neikvæðar hugrenningar ná tökum á tilverunni. Mataræði hans samanstendur mestmegnis af grænmeti og korni en hann fær sér þó einstaka sinnum fisk, ekki matreiddan á hvaða hátt sem er, því þar skiptir miklu máli að bragð sé að en fyrir Sverri er sá þáttur mjög mikilvægur. „Í dag er það stór partur af mínu lífi að velta heilsunni fyrir mér. Mér finnst það hreinlega tengjast þeirri umræðu um hvernig við umgöngust náttúruna, hvort við höfum áhuga á framtíðinni, börn- unum okkar og að geta fylgt þeim þannig eftir að við getum styrkt þau í að takast á við erfiða hluti og ákvarðanir,“ segir Sverrir og bætir við að það sé honum mjög mikilvægt að gefa eigin börnum tíma. Hlutverki uppalandans sé síður en svo lokið þótt börnin séu farin að heiman. „Það er talað um að við séum svo hamingjusöm, öllum gangi allt í haginn og allt er á mikilli hrað- ferð, sérstaklega í peningaheimin- um. Mér finnst eins og oft sé mannúðinni og mennskunni ýtt til hliðar og þeir þættir gleymist. Maður sér þetta í litlum áherslum sem eru mjög stórar í sjálfu sér.“ Sverrir nefnir sem dæmi áhuga ráðamanna á virkjunum og fram- kvæmdir við Álafossreitinn í Varmárdalnum. „Sá reitur er eins konar perla í steypuumhverfi og ég fer oft með erlenda gesti mína þangað upp eftir að skoða. Mér finnst stundum eins og við lifum í stórum útblásnum samtíma, með enga framtíð og enga fortíð. Það sem er að gerast akkúrat núna skiptir meira máli en það sem gerst hefur í veröldinni frá upp- hafi vega og meira máli en það sem á eftir að eiga sér stað. Ég á samt alveg von á því að fleiri og fleiri sjái í gegnum þetta og nenni ekki að taka þátt í þessu kapp- hlaupi um einhverja gulrót sem þeir ná aldrei í.“ Sverrir er agaður og skipulagður í vinnubrögðum og þarf klárlega á því að halda enda eru verkefnin næg í listinni, svo mörg að mörg- um myndu eflaust fallast hendur og gera ekki neitt. Það er ekki hans stíll. Engu að síður þarf næst- um því að flokka verkefnin sem hann er í inn í spjaldskrá til að ná utan um þau öll. Þar fer fremst í flokki verkefni sem kallast Völu- spá-Raddir og er meðal annars merkilegt fyrir þær sakir að það verður flutt á sama degi í útvarps- leikhúsum sænska og íslenska rík- isútvarpsins og er þetta fyrsta dæmið um samstarfsverkefni að þessu tagi milli stofnananna. Sænska tónskáldið Sten Sandell, en hann samdi meðal annars tón- listina í Beðið eftir Godot, vinnur verkefnið í samstarfi við Sverri en þar er unnið með sérstakan hljóðheim, meðal annars í gegnum raftónlist. „Mér finnst verkefnið magnað í tengslum við það sem er að gerast í heiminum í dag og þessa tilfinningu sem maður hefur fyrir ragnarökum. Hættuástandið í heiminum er orðið þannig að vís- indamenn hafa nýlega fært dóms- dagsklukkuna einni mínútu nær heimsendi. Ég klippti þá frétt út því mér fannst það akkúrat vera þetta verkefni.“ Völvurnar sænsku og íslensku eru ekki af lakara taginu. Krist- björg Kjeld les textann á íslensku og í Svíþjóð er það sænska leik- konan Stina Ekblad, sem Íslend- ingar þekkja úr Krónikunni, sem er völvan þar. „Ég sá hana í mynd Ingmars Bergmans, Fanny og Alexander, sem er ein af mínum uppáhaldsmyndum og hef verið hrifinn af henni í gegnum árin. Hún fékk leikhúsverðlaun ársins 2006 í Svíþjóð og það var algjör bónus að fá hana með okkur í verk- efnið.“ Verkið verður flutt 2. mars í Hlaupanótunni og í nóvember verður það svo sviðsett í Berlín. Sverir er í forsvari fyrir sönghóp- inn Voces Thules og fékk hópur- inn tónlistarverðlaunin í klassísku deildinni fyrir um mánuði síðan fyrir Þorlákstíðir. Það verkefni hefur tekið um tólf ár og er söngur upp úr einu elsta tónlistarhandriti sem varðveist hefur frá miðöld- um. „Við erum komnir með næsta verkefni sem líka tengist miðöld- um og það verkefni er baráttuglatt því það tengist Sturlungu og draumum og fyrirboðum fyrir Örlygsstaðabardaga. Annað verk- efni er einyrkjaverkefni mitt sem ég vinn í samvinnu við íslensk tón- skáld en það ramma ég inn með barnasöng mínum og valdi ég þar eina vögguvísu sem ég söng inn á hljómplötu sem krakki. Það verk- efni er eins konar ferðalag tónlist- arinnar á mörkum ljóss og myrk- ur,“ segir Sverrir en margir muna einmitt eftir Sverri sem mikilli barnastjörnu en hann vakti snemma athygli fyrir skæra og bjarta rödd. Söng hann inn á nokkrar hljómplötur og kom fram á útihátíðum og alls kyns skemmt- unum. „Það verkefni er langt komið og svo er annað í eldinum sem ég kalla Naddakross en það er unnið í samvinnu við Huga Guð- mundsson tónskáld og Voces Thules koma einnig inn í það verk- efni sem og Hörður Áskelsson og Matthías Hemstock. Það verkefni er mjög ólíkt því sem ég hef áður gert en þar má segja að tónlist miðalda og samtímans mætist. Við vöðum áfram í verkefnunum, bakkafullur lækur þar og hrein- lega ekki hægt að vaða hann nema á hundavaði. Brotinn spegill er frönsk vegamynd sem unnin er út frá heimildarmyndaaðferðinni og á hún sér stað á leiðinni frá Sara- jevó til Jerúsalem þar sem keyrt er í gegnum hin stríðshrjáðu lönd. „Sá kvikmyndagerðarmaður heyrði mig syngja Óttusöngva á vori eftir Jón Nordal á æfingu með Diddú, og bað mig um að syngja verk í myndinni eftir líb- anskt tónskáld. Myndin verður sýnd hér á landi 2. apríl í tengslum við Franskt vor, á kvikmyndhátíð- inni.“ Einnig er hann þátttakandi í dansverkefni Láru Stefánsdóttur, Von, en hann hefur verið með annan fótinn í dansheiminum frá unga aldri. „Já, ég er í mörgu og hef reynt að finna mér mína leið. Ég hef einnig verið í því að stjórna upptökum á hljómplötum fyrir fólk í þessum klassíska geira og það hefur hentað mér vel að vera að vinna í mörgu í einu. Ef það er eitthvert verkefni sem liggur á fær það forgang á þeim tíma sem slíkt þarf.“ Meðfram listaverkefnum sínum er Sverrir kennari í Alexanders- tækni og hefur unnið mikið með leikurum og söngvurum en tækn- in kom honum einnig að góðum notum þegar hann lenti í bílslysi fyrir nokkrum árum. „Ég fékk mikinn hnykk og líkaminn var allur í ólagi eftir slysið. Alexand- erstæknin hjálpaði mér að beita líkamanum rétt þannig að ég gat losað um spennu sem var kannski að byrja að myndast. Það dugði þó ekki til því líkaminn hafði fengið það mikið sjokk.“ Sverrir ákvað að beita öðru úrræði en hann tók langa föstu, eða heilar fjórar vikur. „Ég hef oft fastað en þá í mun styttri tíma, kannski bara í um fjóra daga. Fyrsti dagurinn er erfiður, annar auðveldari, sá þriðji aftur harður en á fjórða degi er eins og þú svífir. Árangur föstunn- ar er sá að hugurinn skýrist og lík- aminn finnur sinn takt, hreinsast af öllum aukaefnum sem þvælast fyrir í líkamanum. En það er mikil- vægt að fara hægt út úr þessu og vera í nánu sambandi við fagmann eða lækni sem hefur skilning á svona föstum. Þetta getur tekið á líkamann.“ Sverrir er óhræddur við að vera hann sjálfur og með sitt fallega síða hár, sérstaka klæðnað og undurfagra zen-festi um háls- inn, sem hann segir vera verndar- grip, vekur hann gjarnan eftir- tekt fyrir öðruvísi klæðnað og yfirbragð. Upplifir hann sig aldrei á skjön við annað fólk? „Nei, ég hugsa þetta aldrei þannig. Ég verð stundum var við augn- gotur frá fólki en ég hef vanist því frá því ég var krakki að þurfa ekki að falla inn í fjöldann. Fyrir mér er nauðsynlegt að geta stigið fram og verið sá sem ég er. Ég hef mjög gaman af skóm og get hrein- lega gengið í gegnum búðarglugg- ana þegar ég sé fallegt par. Marg- ir reyna kannski að misskilja mig og líta á þetta sem einhverja sér- visku eða að maður sé að reyna að láta bera á sér en það hefur ekk- ert með það að gera. Ég er ekkert ægilega sérvitur.“ Og þá alls ekki bara á jaðrinum? „Nei, síður en svo, samtíminn er mér mjög mikilvægur og ég á fullt af áhuga- málum fyrir utan tónlistina. Horfi mikið á íþróttir, hef brennnadi áhuga á kvikmyndum og svo er fjölskyldan mér allt. Tíminn er hreinlega heilagur þegar ég fæ að hafa barnabarnið hjá mér.“ Tíminn er ekki óvinur minn Kontratenórinn Sverrir Guðjónsson fer létt með það að skekkja þá staðalímynd sem auðvelt er að útbúa sér af listamanninum. Um leið og hann stúderar söngnótur miðaldahandrita og klæðist fatnaði sem borgarar gjóa augunum á hefur hann óþrjótandi áhuga á íþróttum, áætlanir um að framleiða timburmannate og fellur mjög auðveldlega fyrir fögrum skófatnaði. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti söngvarann sem sinnir þéttskipaðri dagskrá í listaheiminum. Ég verð stundum var við augngot- ur frá fólki en ég hef vanist því frá því ég var krakki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.