Tíminn - 05.08.1979, Síða 5
Sunnudagur 5. ágúst 1979.
5
,,Hún er hægri hönd min og fullkomiö framhald af mér.”
ROSALYNN
Sterki maðurinn í Hvíta húsinu
Þegar til alvörunnar kemur, spyr 39. forseti Banda-
ríkjanna Rósu sina ráöa, segir nýlega í þýska vikuritinu
Stern. Hann spyr Rose ráða áður en hann skrifar i/indir
samninga, tekur á móti fólki, beitir sér fyrir nýjum mál-
efnum. Rose er sterki maðurinn í Hvíta húsinu. Rósa
þessi er Rosalynn („Rose") Carter.
Rose hefur orðið þvi voldugri,
þvi meir sem hallað hefur undan
fæti hjá Jimmy Carter siðustu
mánuði. Forsetinn, þjakaður af
kreppuástandi i innanrikis og ut-
anrikismálum, tekur varla
nokkra ákvörðun án þess að hafa
spurt konu sina ráða.
Vikuritið „Time” kallaði hana
„næstvoldugasta þegn Banda-
rikjanna”. Og „Washington
Post”, likti henni við þá þjóð-
frægu Eleanor Roosevelt, sem
rikti af skörungsskap i Hvita hús-
inu i forsetatið manns sins fyrir
og i siöari heimsstyrjöldinni.
Sú mikla gagnrýni, sem stjórn
hans hefur hlotið, hefur vakið
sárar efasemdir með Carter.
Tannkremsbrosið hefur vikið fyr-
ir taugaósstyrk, sem kemur fram
i órólegu augnatilliti, sem hvarfl-
ar stöðugt þegar hann talar i leit
að samþykki.
Aðeins 30 af hundraði Banda-
rikjamanna höfðu fyrir
skemmstu trú á að forsetinn stæöi
vel i stöðu sinni. Orkustefnan,
sem.mistókst, vaxandi verðbólga,
fjölmörg vandræði i utanrikis-
stjórnmálum — allt verður þetta
honum til áfellis, jafnvel innan
hans eigin flokks. Almenningur
og lika áhrifamenn eins og Ed-
ward Kennedy — sem leynir ekki
áhuga sinum á forsetaembættinu
— grafa undan völdum forsetans
hafa þegar á miðju embættis-
timabilinu vakið efasemdir með
Jimmy, sem er stálheiðarlegur,
um hvort hann sé raunverulega
starfi sinu vaxinn. James Reston,
einn fróðasti blaðamaðurinn i
Washington, hefur þegar tekið
eftir starfsþreytu hjá forsetan-
um: „Nánustu ráðgjafar hans
tala sumir hverjir hreinskilnis-
lega um að Jimmy muni ekki
fara i framboð ef þjóð og þing
styðji hann ekki.”
Margir samstarfsmenn forset-
ans i Hvita húsinu, sem eitt sinn
voru hrifnir af Carter, hafa nú
hægt um sig — t.d. ræðuhöfundur
hans James Fallows og færustu
mennirnir i öryggisráði þvi sem
Brzezinski, ráðgjafi Carters i ut-
anrikismálum, veitir forystu.
Carter sem fyrrum vann 18
stundir á sólarhring og lét sig auk
þess skipta mál eins og skipan
tennisvallanna við Hvita húsið,
yfirgefur'nú skrifborð sitt kl. 5
eins og flestir embættismenn i
Washington, horfir á kvikmyndir
á kvöldin og eyðir helgunum i að
veiða en ekki eins og áður i að
fara yfir skjöl.
„Rose — hvað finnst þér?”
Þetta bænaróp skrifar Jimmy nú
æ oftar meö grænum tússpenna á
bréf og rikisskjöl. Eiginkona for-
setans hefur nú meiri áhrif á
bandarisk stjórnmál en
Brzezinski, Vance utanrikisráð-
herra og Jordan starfsmanna-
stjóri Hvita hússins — sem auk
Rosalynn eru áhrifamestu menn-
irnir i Washington. Hún er fyrsta
forsetafrúin, sem hefur regluleg-
an vinnutima, situr iðulega ráðu-
neytisfundi og hefur vitneskju um
leyndarskjöl. Frú Carter skiptir
sér einnig af utanrikismálum og
heilbrigðismálum. Hún fór með
forsetanum i heimsókn á hættu-
svæðið eftir kjarnorkuslysið i
Harrisburg, fór fyrir hann til Suð-
ur Ameriku og setti ofan i við
Solshenitsýn þegar hann harmaði
hve bandariskir borgarar væru
ofmettir og eigingjarnir. 1 fjöl-
skyldudeilum hefur hún siðasta
orðið og segir Jimmy fyrir um
hve langa leið hann eigi að hlaupa
daglega sér til heilsubótar.
Það var Rosalynn Carter sem
hvatti mann sinn til að vekja upp
aftur samningana i Austurlönd-
um nær, með þvi að fara til Kairó
og Jerúsalem. 1 þvi efni treysti
hún fremur á forsjá guðs en póli-
tiska útreikninga. „Þegar við
komum til ísrael”, segir hún,
„héldum við að frumkvæði okkar
bæri engan árangur. Jimmy og ég
sátum i Hóteli Daviös konungs i
Jerúsalem, og ég sagði við hann:
„Jimmy við verðum að gefast
upp.” Hann svaraði: „Ég held að
við höfum einfaldlega ekki nægi-
legt traust á guði”. Og þá stakk
ég upp á þvi að við bæðum enn
einu sinni fyrir friði, bæðum guð
að velja þá leið, sem hann teldi
rétta. Við báðum siöan saman.
Sama kvöldið hófust viðræöur
þeirra Cy (Cyrus Vance utanrik-
isræaðherra) og Mosche
(Mosche Dayan utanrikisráð-
herra Israels) aftur.
Rosalynn vissi löngu á undan
forstööumanni CIA, Turner, að til
stóð að taka upp aftur stjórn-
málasamband við Kina. Og Rosa-
lynn taldi Jimmy á að ráða Rafs-
hoon sem ráðgjafa i þvi skyni að
hamla á móti sivaxandi vin-
sældatapi, þótt sú veiðleitni hafi
litinn árangur borið enn sem
komið er. Hún sá einnig svo um
að aftur var farið að heilsa forset-
anum með lúðrablæstri, en
Jimmy hafði sjálfur fellt þennan
gamla viðhafnarsið niður.
Rosalynn Carter, sem er 52
ára, hefur þolað furöu vel þá
streitu, sem því fylgir aö vera
forsetafrú, og rak fyrirrennara
hennar Betty Ford til að leita á
náðir Bakkusar. Ef til vill hefur
Suðurrikjauppruninn komið sér
vel. Hún er frá sama þorpi og
maður hennar. Hjónaband þeirra
var frá upphafi 'ósvikinn félags-
skapur. „Hún er hægri hönd
min”, segir forsetinn stoltur,
„fullkomið framhald af sjálfum
mér.” Eins og maður hennar á
Rosalynn tæpast nokkra nána
vini — hún leitar vináttu i hjóna-
bandinu. Barbara Walters sjón-
varpskona kom þvi til leiðar að
Bandarikjamenn vita, að eftir 32
ára hjónaband deilir forsetinn
enn rúmi með konu sinni: „Ég vil
miklu heldur sofa hjá Rosalynn
en einn.”
Rosalynn ræður yfir 17 manna
starfsliöi i Hvita húsinu og hún
gætir þess vel að allt gangi fyrir
sig samkvæmt ströngustu regl-
um. Hún klæðist helst hefðbundn-
um fjöldaframleiddum klæðnaði
og á það til að verða æst yfir þvi
að dagblööin gefi kynferðismál-
um og slúðri um frægt fólk meira
rúm en t.d. baráttu hennar fyrir
umbótum I málum geðsjúkra.
Henni er sama þótt hún og Jimmy
þyki sveitaleg i Washington þar
sem þau forðast kvöldboö og
gæta fyllsta hófs þegar áfengi er
haft um hönd i Hvita húsinu, þau
gætu misst mannorðið heima i
Plains.
Rosalynn og Jimmy eru mjög
samhent, slik forsetahjón hafa
Bandarikjamenn ekki átt lengi —
og eiga e.t.v. ekki eftir að eiga
miklu lengur. Rosalynn viður-
kennir aö þau hjónin tali oft um
framtiðina, og um það hvort
Jimmy eigi að fara i framboð
1980. „Ég færi aldrei aftur i kosn-
ingaferðalag eins og það sem ég
fór 1976”, sagöi hún við blaða-
mann, „þá vann ég nótt og dag.
Ég heimsótti þúsundir borga,
stillti mér upp og sagði: Ég er frú
Carter, og maðurinn minn er i
framboði til forsetakjörs. Mér
féll þetta vel og ég kynntist landi
okkar vel, en ég gæti aidrei gert
þetta aftur.”
Þýtt og endursagt SJ
Meðan Jimmy Carter
fellur 1 áliti, aukast hróður
og völd konu hans
Heyyfirbreiðslur
sem duga árum saman. Fást i flestum
kaupfélögum. Hagstætt verð.
Pokagerðin Baldur.
Stokkseyri. Simi: 99-3310.
ÚTBOÐ
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar ósk-
ar eftir tilboðum i lagningu annars áfanga
dreifikerfis á Akranesi.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði- og
teiknistofunni s.f. Heiðarbraut 40 Akra-
nesi og á Verkfræðistofunni Fjarhitun h.f.
Álftamýri 9, Reykjavik gegn 30 þúsund
króna skilatryggingu. Tilboðin verða opn-
uð hjá Verkfræði- og teiknistofunni s.f.
fimmtudaginn 23. ágúst kl. 15.
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar.
UTBOÐ
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð-
um i 132 kw sæstreng yfir Gilsfjörð og
Þorskafjörð.
útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Raf-
magnsveitna rikisins, Laugavegi 118,
Reykjavik, frá og með miðvikudeginum 8.
ágúst 1979, gegn óafturkræfri greiðslu kr.
1000.- fyrir hvert eintak.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 4.
september kl. 14.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum er þess óska.
Rafmagnsveitur rikisins.
Bújörð til sölu
Auglýst er eftir tilboðum í jörðina Mið-
sitju i Blönduhlið Skagafirði.
Jörðinni fylgja veiðiréttindi.
Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði
sem er, eðahafna öllum. Frestur til 20. ág.
nk.
Allar upplýsingar gefur
Sigríður Pálsdóttir, Hvanneyrarbraut 58,
Siglufirði.
Lausar stöður við Iðn-
tæknistofnun íslands
Framkvæmdastjóri Tæknideildar
Raunvisindamenntun áskilin ásamt
reynslu i stjórnun.
Staða rekstrarráðgjafa
Menntun á sviði rekstrarhagfræði eða við-
skiptafræði áskilin ásamt reynslu i rekstr-
arráðgjöf.
Staða bókavarðar
Staða bókavarðar við tæknibókasafn
stofnunarinnar. Menntun i bókasafnsfræði
tilskilin. Reynsla i bókasafnsrekstri æski-
leg.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. sept. n.k.
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf. Nánari upplýsingar veitir forstjóri
stofnunarinnar.
Reykjavik 1. ágúst 1979
Iðntæknistofnun íslands
105 Skipholt 37, R., simi 81533.