Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 27

Fréttablaðið - 14.04.2007, Side 27
finnskunnar eins árs afmæli. Miðað við þessa afgreiðslu ferðast sniglar á geigvænlegum hraða. Í dag var sagt frá því að ungt hol- lenskt par hefði verið handtekið á föstudaginn langa við komuna til landsins frá Hollandi með rúmlega eitt kíló af kókaíni í fórum sínum. Aumingja manneskjurnar. Því miður sér ekki högg á vatni þótt eitt kíló af kókaíni sé hirt af einhverjum vesalingum sem eru nógu ruglaðir til að spássera með eiturlyf gegnum tollskoðun á Keflavíkurflugvelli. Eiturlyfin sem valda óhamingju og sorg- um fleiri þúsund fjölskyldna hér á landi eru að sjálfsögðu flutt hingað í gámum innan um annan varn- ing. Hvert mannsbarn veit að tollgæslan kemst ekki yfir að skoða nema brot af þeim gámum sem hingað koma. Ég veit ekkert um þetta ólánsama par sem tollurinn gómaði á föstudag- inn langa, en yfir- leitt eru þeir sem reyna þá glötuðu leið að smygla eitur- lyfjum gegnum tollhliðið á Keflavíkurflugvelli innanklæða eða jafnvel innvortis forfallnir eiturlyfjasjúklingar eða þá nauð- ug burðardýr sem eru að reyna að vinna sig út úr skuld við al- vöru eiturlyfjasala. Og það eru þessir sjúklingar sem eru settir í fangelsi. Hinir raunverulegu inn- flytjendur eiturlyfja sem hvergi ættu að vera nema í tugthúsi leika hins vegar lausum hala. Spurning hvort yfirvöldum dómsmála, félagsmála og heil- brigðismála muni einhvern tím- ann í framtíðinni hugkvæmast að snúa sér að því að lækna eitur- lyfjasjúklinga og fangelsa glæpa- menn í stað þess að fangelsa sjúk- linga og láta glæpamennina af- skiptalausa? Landsfundur Sjálf- stæðisflokksins hófst í dag. Fundarmenn virðast vera frjáls- legir í fasi enda stýr- ir nú flokkn- um ábyrgur maður sem ber það með sér að vera heilbrigð og góðgjörn manneskja. Leggðu góðu málefni lið Leggðu góðu málefni lið er heiti á þjónustu í Einkabanka og Fyrirtækjabanka Landsbankans sem auðveldar þér að hefja mánaðarlegan stuðning við góð málefni. Það þekkja það flestir að greiða mánaðarlega af húsinu og bílnum og fyrir rafmagn og hita. Nú er auðvelt að bæta góðum málefnum við þann lista og gerast áskrifandi að þeim. Þú getur styrkt eitthvert af 75 góðgerðarmálefnum; velur einfaldlega styrkupphæðina og hversu lengi þú vilt styrkja. Hver króna skilar sér til góðgerðar- félaganna og notendur bera engan kostnað við stuðning sinn. Með einfaldri aðgerð er svo hægt að hætta stuðningi. Landsbankinn hefur boðið þessa þjónustu síðan 1. júlí sl. og síðan þá hafa hundruð Íslendinga gerst áskrifendur að góðu málefni. Það er auðvelt að skipta máli gottmalefni.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.