Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 26
Landsbankinn hagnaðist um 13.760
milljónir króna á fyrsta ársfjórð-
ungi og dróst hagnaður bankans
saman um fjögur prósent á milli
ára. Samdráttur hagnaðar skýrist
af lægri gengishagnaði. Arðsemi
eigin fjár var 45,2 prósent á árs-
grundvelli.
Uppgjörið var vel yfir meðaltals-
spá bankanna sem hljóðaði upp á
11.215 milljónir króna. Landsbank-
inn hækkaði um 1,58 prósent í gær
og stóð gengið í 35,3 krónum á hlut.
Bankastjórinn Sigurjón Þ. Árna-
son er ánægður með afkomuna og
segir að vel gangi jafnt innan- sem
utanlands. „En stærsta fréttin,
fyrir utan hvað er góður hagnaður
af rekstri bankans, er sú gjörbylt-
ing sem er búin að eiga sér stað á
fjármögnun efnahagsreikningsins.
Sjáðu að innlánin eru orðin meiri
heldur en lántakan,“ bendir hann
á. Innlán frá viðskiptavinum, sem
koma að mestu leyti frá almenningi
í Bretlandi, voru komin í 913 millj-
arða í lok mars á móti 904 milljörð-
um í lántöku. Nú eru innlán um 62
prósent af öllum útlánum og hafa
vaxið um 230 milljarða á einu ári.
Landsbankinn hefur ekki farið í
eina einustu skuldabréfaútgáfu er-
lendis á árinu, enda ekki þurft þess
að sögn Sigurjóns.
Hreinar rekstrartekjur bankans
hækkuðu um níu prósent á milli ára,
úr 26,9 milljörðum í 29,4 milljarða,
og voru tekjur af erlendri starfsemi
42 prósent heildartekna. Töluverð-
ur vöxtur varð á grunntekjum bank-
ans, vaxta- og þóknunartekjum, um
31 prósent á milli ára og um sautj-
án prósent frá fjórða ársfjórðungi
2006. Hreinar vaxtatekjur voru um
10,9 milljarðar, en hreinar þóknun-
artekjur voru um 9,8 milljarðar og
hækkuðu um 42 prósent.
Sigurjón bendir á að lág verð-
bólga hafi bitnað á grunnafkom-
unni þar sem bankinn eigi meiri
verðtryggðar eignir en skuldir.
Færir hann rök fyrir því að bank-
inn hafi tapað tveimur milljörðum
króna á því að fjármagna mismun-
inn með óverðtryggðum vöxtum við
núverandi vaxtastig.
Gengishagnaður var 8,8 millj-
arðar og dróst saman um fimmt-
ung á milli ára. Rekstrarkostnaður
óx hratt hjá Landsbankanum, eins
og hjá hinum viðskiptabönkunum.
Hann var 12,4 milljarðar og jókst
um 54 prósent á milli ára. Sigurjón
segir að bankinn sé að vaxa og fjár-
festa í nýju fólki sem auki hagnað til
framtíðar. Þá aukist launagreiðsl-
ur með góðum árangri. Í lok mars
voru heildareignir bankans komn-
ar í 2.317 milljarða króna og höfðu
vaxið um sjö prósent frá ársbyrjun.
Eigið fé bankans var 150 milljarðar.
Eiginfjárhlutfall (CAD) samstæð-
unnar var 13,4 prósent í lok mars.
[Hlutabréf]
Actavis kaupir ekki samheita-
lyfjahluta þýska lyfjafyrirtækis-
ins Merck. Félagið sendi frá sér
tilkynningu um að það hefði lokið
viðræðum um hugsanleg kaup á fé-
laginu. Róbert Wessman, forstjóri
Actavis, segir þrátt fyrir það enga
eftirsjá ríkja innan veggja Actavis.
„Okkur þótti félagið orðið of dýrt
og kusum að draga okkur út. Það
var ekkert virði í þessu fyrir okkur
lengur.“
Actavis var meðal fjögurra fé-
laga sem lögðu inn bindandi tilboð í
Merck síðastliðinn mánudag. Eftir
að hafa tekið afstöðu til tilboðanna
kannaði stjórn Merck hug félag-
anna að hækka tilboð sitt. Stjórn-
endur Actavis voru ekki tilbúnir til
þess.
Róbert segir líklegt að tilboð-
ið sem tekið verði hljóði upp á í
kringum 4,6 milljarða evra. Það
nemur um 400 milljörðum króna.
Actavis hefði hins vegar ekki
farið mikið hærra en 4,3 milljarða
evra. Actavis hafði samt sem áður
trygga fjármögnun til að hækka til-
boðið. „Miðað við afkomu félags-
ins og það sem við töldum okkur
geta náð út úr því að sameina félag-
ið hefði ekki verið skynsamlegt að
halda áfram. Við mátum fyrirfram
hversu hátt við myndum fara og
héldum okkur við það.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Actavis gengur burtu frá stórri
yfirtöku. Í fyrra hætti félagið við-
ræðum við króatíska lyfjafyrir-
tækið Pliva, af sömu ástæðum.
Róbert segir það ekki hafa verið
mistök að taka þátt í slagnum um
Merck. „Við höfum farið í áreið-
anleikakannanir á um hundrað
fyrirtækjum. Við skoðum flest
félög sem eru í sölu. Við hefð-
um ekki viljað sleppa því að fara í
gegnum þetta ferli. Ef félagið hefði
farið á því verði sem við vildum sjá
það hefði það verið mikill missir
fyrir okkur.“
Að missa af Merck hægir á þeim
framtíðaráætlunum Actavis að
verða á meðal þriggja stærstu sam-
heitalyfjafyrirtækja heims. Það
hefði náðst á einu bretti með yfir-
tökunni. Þá hefði yfirtakan styrkt
Actavis á ýmsum af núverandi
mörkuðum félagsins og mörgum
nýjum. Áætluð velta sameinaðs fé-
lags hefði verið um 3,2 milljarðar
evra og starfsmenn um sextán þús-
und. „Nú þegar Merck er úti ein-
beitum við okkur að öðrum tæki-
færum. Við munum gera eins og
við höfum gert síðustu árin að taka
yfir smærri félög.“
Í kringum yfirtökuferlið á Merck
hefur borist í tal að Actavis verði
sjálft yfirtökuskotmark. Róbert
segir Actavis passa ágætlega við
mörg félög. Hins vegar sé engin yf-
irtaka í pípunum. „Það hefur eng-
inn óskað eftir að kaupa meirihlut-
ann í félaginu. En margir erlendir
fagfjárfestar hafa verið að koma
inn í félagið og sýna því áhuga. Ég
á von á að það muni aukast.“
Actavis hefur dregið sig út úr slagnum um samheitalyfjahluta lyfjafyrirtækisins
Merck og verður því ekki í bráð þriðja stærsta fyrirtæki heims á sviði samheita-
lyfja. „Það var ekkert virði í þessu fyrir okkur lengur,“ segir forstjóri Actavis.
Innlánsvöxtur gjörbyltir
fjármögnun Landsbankans
LÍ skilaði góðu uppgjöri í gær upp á 13,8 milljarða króna og nam arðsemi eigin
fjár 45 prósentum. Grunntekjur vaxa hratt á milli ára en bankastjórinn bendir
á að bankinn hafi tapað tveimur milljörðum á verðtryggingarjöfnuði sínum.
Saga Capital Fjárfestingarbanki
hefur í dag störf í kjölfar þess að
bankinn fékk í liðinni viku fullt
fjárfestingarbankaleyfi Fjármála-
eftirlitsins.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
forstjóri Saga Capital, lofar gott
samstarf við Fjármálaeftirlitið og
segir kraftaverki líkast hversu
hratt hafi gengið að ganga frá leyf-
inu. Í dag eru sléttir sjö mánuðir
frá tilkynningu um stofnun bank-
ans og um fimm mánuðir frá því
lögð var inn umsókn um fjárfest-
ingarbankaleyfi.
Bankinn kynnti starfsemi sína
í höfuðstöðvum sínum á Akureyri
í gær, en hann sérhæfir sig í fyr-
irtækjaráðgjöf, útlánum og verð-
bréfamiðlun. Þá segir Þorvaldur
bankanum verða beitt í fjárfest-
ingum með viðskiptavinum hans.
Auk höfuðstöðvanna er Saga
Capital með skrifstofu í Reykja-
vík og hyggur á stofnun skrif-
stofu í Eystrasaltslöndunum í ná-
inni framtíð. „Eystrasaltið er að
mörgu leyti á sama stað og Ís-
land fyrir svona átta árum,“ segir
Þorvaldur og telur að með réttum
samstarfsaðila geti bankinn náð
þar góðu forskoti. Þá óttast hann
ekki samkeppni frá öðrum bönkum
með tengsl við Ísland, líkt og Nor-
vik Banka eða MP, sem þegar hafa
haslað sér þar völl. „Þetta er eins
og að moka skurð. Þeim mun fleiri
hendur þeim mun betur gengur.“
Eigið fé Saga Capital er nú 10
milljarðar króna að loknu lokuðu
hlutafjárútboði sem efnt var til í
byrjun árs. Þorvaldur segir áhersl-
una á breiðan eigendahóp þar sem
jafnræði ríkir.
Nýr banki hefur störf
Peningaskápurinn ...
Gó› rá› og gagnlegar
uppl‡singar um heita vatni›
www.stillumhitann.is