Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 88
Fyrir átta árum skaut Jó-
hönnu Guðrúnu Jónsdóttur
upp á stjörnuhimininn, að-
eins níu ára að aldri. Söng-
konan unga var alls staðar
í rúm þrjú ár, gaf út þrjár
plötur á Íslandi en eins og
hendi væri veifað var eins
og jörðin hefði gleypt hana.
Lítið hefur spurst til Jóhönnu
Guðrúnar Jónsdóttur síðustu árin.
Á bak við tjöldin hefur Jóhanna
Guðrún ásamt lærimeistara
sínum, Maríu Björk Sverrisdótt-
ur, unnið hörðum höndum að því
að finna „rétta stílinn og rétta tón-
inn“ eins og María Björk kemst
sjálf að orði þegar Fréttablað-
ið náði tali af henni. Reiknað er
með að afraksturinn líti dagsins
ljós fyrir áramót hér á landi en nú
sé bara verið að leita að framleið-
anda fyrir síðustu metrana til að
setja punktinn yfir i-ið.
Meðal þeirra sem koma við sögu
á væntanlegri plötu söngkonunn-
ar er Diane Warren, lagahöfund-
urinn þaulreyndi, en hún hefur
samið lög fyrir tónlistarmenn á
borð við Aerosmith, Michael Bolt-
on og Jessicu Simpson. Til stend-
ur að Jóhanna Guðrún fari smám
saman að láta meira á sér bera á
næstunni í íslensku tón-
listarlífi og samkvæmt
heimildum Frétta-
blaðsins gætu
landsmenn átt von
á því að sjá Jó-
hönnu Guðrúnu
á Airwaves.
Hátíð sem oftar
en ekki hefur
reynst íslensk-
um tónlistarmönn-
um happadrjúgur
stökkpallur.
Þær eru ófáar
kjaftasögurn-
ar sem hafa
verið í
gangi í kringum Jóhönnu Guð-
rúnu, heimsfrægðin hefur verið
sögð á næsta leiti og svona mætti
lengi telja. „Fólk heldur oft að
svona hlutir gerist bara á einni
nóttu en að baki svona verkefni
liggur mikil vinna. Róm var ekki
byggð á einum degi,“ segir María.
„Svo er þetta líka allt spurning
um réttu tímasetninguna.“
Stóru útgáfufyrirtækin Uni-
versal og Sony auk annarra
stórra útgáfufyrirtækja bíða
spennt eftir því að sjá hvernig
útkoman verður enda hafa þau
fylgst grannt með gangi mála hjá
Jóhönnu. María Björk segir enn
ekki ákveðið hvort herjað verði á
Bandaríkjamarkað eða Bretland
þegar þar að kemur en telur lík-
legra að Ameríka verði fyrir val-
inu. „Þar er enda fimmtíu pró-
sent af öllum markaðinum og það
er oft erfitt að fara frá Bretlandi
yfir til Bandaríkjanna,“ útskýrir
María. Hún segir ástæðuna fyrir
því að svona langur tími hafi liðið
sé fyrst og fremst ungur aldur
Jóhönnu. „Við vildum bíða þar til
að hún væri orðin sautján ára og
að hún væri búin að fullmóta sinn
stíl áður en stóru laxarnir næðu að
krækja í hana. Því eftir það ráða
þeir öllu,“ segir María sem hefur
staðið þétt við bakið á Jóhönnu í
gegnum þessi fimm ár.
Að sögn Maríu hafa árin verið
mikil þolinmæðisvinna, bæði
erfið og lærdómsrík en nú
sé verið að hleypa þessu
mikla ævintýri loks af
stokkunum. Fjölmiðl-
ar hafi sýnt þessu
mikinn áhuga en þau
hafi kosið að halda
Jóhönnu sem mest
fyrir utan kastljós-
ið. „Nú fer þetta hins
vegar allt að bresta á,“
segir María.
Bandaríski rapparinn Busta Rhym-
es hefur verið handtekinn grunað-
ur um að hafa ekið undir áhrifum
áfengis í New York. Rhymes, sem
heitir réttu nafni Trevor Smith, var
handtekinn á bíl sínum skömmu
eftir miðnætti.
Rapparinn virðist eiga erfitt með
að halda sig réttum megin laganna
því hann þarf að mæta fyrir rétti í
næstu viku vegna tveggja annarra
ákæra. Annars vegar fyrir að ráð-
ast á ökumann sinn og hins vegar
fyrir að ráðast á aðdáanda sinn sem
á að hafa hrækt á bíl hans á síðasta
ári. Í febrúar síðastliðnum var hann
síðan handtekinn fyrir að hafa ekið
um með útrunnið ökuskírteini.
Handtekinn
í New York
Leikararnir Leonardo DiCaprio,
Rosie O´Donnell og Sacha Baron
Cohen eru á meðal þeirra sem eru
á lista tímaritsins Time yfir 100
áhrifamestu einstaklinga heims.
Einnig eru á listanum Elísabet
Englandsdrottning, Hillary Clin-
ton, Martin Scorsese, Kate Moss
og stofnendur YouTube, Steve
Chen og Chad Hurley. George W.
Bush Bandaríkjaforseti komst
ekki á listann.
Í tímaritinu talar gamanleikkon-
an Rosanne Barr um Baron Cohen,
sem er líklega þekktari sem Borat
frá Kasakstan. „Hann særir blygð-
unarkennd margra en æskan í dag
móðgast ef enginn móðgar hana,“
sagði hún.
Alls komust 71 karl og 29 konur
á listann frá 27 lönd-
um. Á meðal fleiri sem
komust voru Oprah
Winfrey, George
Clooney, Brad Pitt,
Justin Timberlake,
Tyra Banks, Arnold
Schwarzenegg-
er og Simon
Fuller,
höfund-
ur Am-
erican
Idol.
DiCaprio og Cohen áhrifamiklir
Söngkonan Madonna hefur hafn-
að boði um að koma fram á minn-
ingartónleikum um Díönu prins-
essu á Wembley í júlí. Ástæðan er
sú að hún verður önnum kafin við
æfingar fyrir Live Earth-tónleika
sex dögum síðar.
Tónskáldið Andrew Lloyd Webb-
er hafði beðið Madonnu um að
endurtaka hlutverk sitt sem Evita
fyrir tónleikana en hún hafði
þegar bókað sig á Live Earth.
Synir Díönu og Karls Bretaprins,
Harry og Vilhjálmur, skipuleggja
tónleikana á Wembley og hefur
Elton John þegar lofað að syngja
lagið Candle in the Wind.
Hafnaði
góðu boði
SENDU SMS JA SP3
Á 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR Á SPID
ERMAN,
SPIDERMAN TÖLVULEIKIR, TÓNLIS
T ÚR SPIDERMAN,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA
SMS
LEIKUR
SJÁÐU MYND
INA!
SPILAÐU LEI
KINN!J
I !
I I I
!
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið.