Tíminn - 26.11.1980, Side 5

Tíminn - 26.11.1980, Side 5
Miövikudagur 26. hóvember 1980. 5 Dagblöð og fréttamennska og þá einkum siögæöi fjölmiðlunar, aðalefni nýs leikrits sem frumsýnt verður i Þjóðleik- húsinu á föstudagskvöld, „Nótt og dagur” Kás — Á föstudagskvöldið verður frumsýnt i Þjóðleikhúsinu á stóra sviðinu leikritið Nótt og dagur eftir Tom Stoppard. Leik- urinn gerist i imynduðu Afriku- riki sem heitir Kambawe, þar sem borgarastyrjöld er yfirvof- andi og blaöamenn og ljósmynd- arar streyma að i fréttaleit. í at- burðarásinni gefst mikið rúm fyrir umræðu um dagblöð og fréttamennsku og þá einkum sið- gæði fjölmiðlunar. Leikritð Nótt og dagur er þýtt af Jakopi S. Jónssyni, en leik- stjórn þess er i höndum Gisla Al- freðssonar. Leikmynd og bún- ingar eru eftir Gunnar Bjarnason og lýsingu annast Kristinn Dani- elsson. t hlutverkum eru Arnar Jóns- son, sem leikur Richard Wagner, þekktan blaðamann við breska stórblaðið Sunday Globe: Hákon Waage sem leikur George Gut- hrie, virtan og viðförlan blaða- ljósmyndara: Gunnar Rafn Guð- mundsson leikur Jakob Milne, sem er ungur litt reyndur blaða- maður og annað hvort afburða- snjall sem slikur eða ótrúlega heppinn, en jafnframt óþægur og erfiðursinustéttarfélagi: Gunnar Rafn leikur nú sitt fyrsta hlutverk fyrir Þjóðleikhúsið. Anna Kristin Arngrimsdóttir og Gunnar Ey- jólfsson leika Ruth og Geoffrey Carson, breskhjón sem búa i Af- rikurikinu Kambawe og lifa þar af námarekstri. Róbert Arnfinns- son leikur Mageeba, þeldökkan forseta Kambawe og heimilisvin Carson-hjónanna. Randver Þor- láksson leikur blakkan þjón hjón- anna og Valdimar Hannesson leikur son þeirra. Tom Stoppard fæddist i Tékkó- slóvakiu árið 1937 en fluttist ungur að árum til Bretlands. Hann starfaði lengst af i blaða- mennsku, en upp úr 1960 hóf hann að semja leikrit og ávann sér fljótt miklar vinsældir og þótti þá, og þykir enn, vera einn hug- myndarikasti leikritahöfundur Breta.Hérlendis hefur aðeins eitt verka hans verið leikið til þessa. mynd: Rdbert. Námskeið um sjálfsþekkingu og sjálfs- tjáningu um næstu helgi: Utflutningur á sjávarafuröum: Nær lafnmlklll E og USA EKJ — t skýrslu sinni til Fiski- þings, sem nú stendur yfir, fiutti Már Elisson greinargóða lýs- ingu yfir starfsárið 1979-1980. Þar kom fram að frá þvi tolla- samningur Islands og EBE var undirritaður 1976, þá hefur út- flutningur okkar til bandalags- rikjanna vaxið svo að nú flytj- um við út þangað sjávarafurðir, sem að verðmæti er svipað og til Bandarikjanna, sem fram að þessuhefur jafnan verið stærsti kaupandi isl. sjávarafurða. Á s.l. ári var um nær 70 milljarða króna að ræða. Þá kom einnig fram að ef að viðskipta- samningur sá sem nú er i gildi milli Islands og EBE kæmi ekki til, hefðum við þurft að greiða tolla sem svara til 10 milliarða króna á vörur sem fluttar eru til EBE-rikja á þessu ári. 1 stjórn fiskifélagsins hefur verið rætt itarlega um stærð fiskiskipastólsins og endurnýj- un hans. Það var samdóma álit manna að fjöldi stórra afkasta- mikilla skuttogara væri of mik- ill — bæði varðandi ástand fisk- stofna og afkastagetu vinnslu- stöðvar i' ýmsum verstöðvum landsins. Þá kom i ljós að báta- flotinn hefur dregist nokkuð saman og að aldur bátanna sé of hár. Má nefna að af um 770 þiljuðum bátum voru yfir 460 bátar 15 ára og eldri. Stjórnin ályktaði að nauðsynlegt væri að huga hið fyrsta að hóflegri endurnýjun þessa hluta fiski- skipaflotans. Eftir að ályktun hafði verið rædd við sjávarút- vegsráðherra skipaði hann starfshóp undir forystu fiski- félagsins til að kanna málin nánar. Það hefur verið gengið frá áfangaskýrslu, sem er flestu áþekk ályktun félagsstjórnar- innar. Og nú er starfandi nefnd á vegum sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneytisins um rað- smiði fiskiskipa. Fiskifélagið á fulltrúa I þeirri nefnd. Verkefni tæknideildar fyrir Fiskveiðisjóð drógust töluvert saman, borið samar. við sl. ár. Stafar það af minni nýsmiðum og breytingum fiskiskipa. Voru alls afgreidd 34 mál vegna fisk- veiðisjóðs. Voru 9 vegna ný- smiða, 15 vegna breytinga véla- og tækjakaupa og 10 vegna tæknilegrar úttektar skipa. LIU býður okkur upp rýrnun” AB —„LítJ hefur nú sent samtök- um sjómanna samningskröfur sem fela I sér kjararýrnun fyrir sjómenn, og ýmis önnur þau at- riði sem einsdæmi mega teljast i samningsgerð á siðari timum”. Svo segir I fréttatilkynningu sem Tlmanum hefur borist frá for- mannaráðstefnu Farmanna- og fiskim annasambands ísiands sem haldin var í Reykjavik nú um helgina. Timinn hafði samband við Ingólf Stefánsson framkvæmda- stjóra sambandsins og spurði hann I hverju þessi kjararýrnun fælist. „Þeir hjá Llú vilja lækka skiptaprósentuna i nokkrum greinum,sem er ekkert annað en kjaraskerðing. Þá má nefna það að fiskimenn sem veikjast þeir taka sem veikindalaun hlut fyrstu tvo mánuðina. Nú vilja útgerðar- menn breytingu á þessum lið, og i staðinn fyrir hlut, vilja þeir greiða dagpeninga. Þeir hafa að visu boðiö upp á langt veikindafri, en samkvæmt lögum sem sett voru i vor um starfskjör launþega o.fl. var veikindatimabil fiski- mannalengt. Við getum þvi ekki séð annað en að útgerðarmenn vilji skerða stórkostlega þau kjör sem fiskimenn hafa haft að þessu leyti. Þá er nánast boðið upp á það að sjúkrasjóðir verði felldir niður, þ.e. að hjá sjómönnum verði ekki lengur greitt i sjúkrasjóði. Hjá okkur sjómönnum hefur þetta verið þannig að greidd hafa verið 0.7% af kauptryggingu i sjúkra- sjóð, og 0.25% hafa verið greidd I orlofsheimilasjóð. Útgerðarmenn fara nú fram á það að greiðslur i þessa sjóöi báða verði 0.3%. Þetta finnst okkur sjómönnum vera all- mikil nýmæli i kjaraviðræðum, svo ekki verði meira sagt”. Þá kom fram i máli Ingólfs að útgerðarmenn fara fram á að fólki á rækjubátum verði fækkað og að prósentuhlutur hvers og eins lækki, þannig að útgerðar- menn fara i' raun fram á að menn taki á sig meiri vinnu fyrir lægri laun. Það verður þvi ekki sagt að horfurnar i samningaviðræðun- um séu bjartar. AÐ H0RFAST I AU6U VIÐ SJALFAN SI6 AUt frá þvl að menntunarhefð vesturlanda enduruppgötvaöi rætur slnar I forn-grlzkri menn- ingu hefur verið Ijóst mikilvægi fyrirm æianna „þekktu sjálfan þig”. Þó hefur þróunin orðið sú að hlutlæg tæknivisindi hafa ruðst framúr þeim visindum sem um manninn fjalla og tæknibyltingin heldur stöðugt áfram að breyta umhverfi okkar og lifnaðarhátt- um, án þess að þvi hafi verið nægilegur gaumur gefinn fyrr en núnahin seinni ár aðtaka tillit til þarfa mannsins. Viðhöfum meðfædda mannlega þörf fyrir að birta okkur sjálf og vera skapandi i lifi og starfi. Fjöldaframleiðsla, fjölmiðlar, lifsgæðakapphlaupið og álag frá streitu lifi samfélagsins gerir allt meiri kröfur til einstaklingsins. Sjálfsþekking og sjálfs- tjáning Sjálfsþekking og sjálfstjáning eru samverkandi hliðar mann- legs vaxtar. Vitund um sjálfan sig og tjáning á sinum innra manni er forsenda þess einstaklingsfrelsis sem vestræn menning og islenzk menning byggja á. Margir finna hins vegar fyrir þvi að finnast lifið geta boðið meira, finna sig eiga innri sjóði hæfileika og eiginleika sem löng- un er til þess að virkja. 1 uppvextinum leiða samskiptin við umhverfið og samfélagið til bælingar hluta sjálfiiis. Skapgerð og persónuleiki eru þvi háð höml- um sem vaxandi fólki er nauðsyn að losa um. Þú getur valið að bregðast við reynslu á nýja vegu. Námskeið eru vinsæl leið til þess að gefa fólki tækifæri til þess ,að reyna nýjar leiðir I sam- skiptum. A næstunni heldur Geir Viöar Vilhjálmsson sálfræðingur 40 kennslustunda námskeið sem tekur fyrir sjálfsþekkingu og sjálfstjáningu. Þetta er námskeið fyrir venjulegt, heilbrigt fólk, sem gjarnan vill þekkja sjálft sig beturog kynnast nýjum hliðum á lífinu. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að allir sem i hópnum verða, þurfa að skuldbinda sig til al- gjörrar þagmælsku um það sem sagt er og gert á námskeiöinu. Aðeins með þeim hætti getur skapast sá trúnaður sem er for- senda árangurs. Hægt er að skrá sig á nám- skeiðið i sima 16160 milli kl. 17 og 19 næstu daga. Kynning á nám- skeiðinu fer fram n.k. fimmtu- dagskvöld kl. 21.00, en sjálft nám- skeiðið hefst siðan næsta laugar- dag kl. 10.00 f.h. og stendur alla helgina. (fréttatilkynning)

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.