Tíminn - 26.11.1980, Síða 11

Tíminn - 26.11.1980, Síða 11
IÞROTTIR IÞROTTIR Miðvikudagur 26. nóvember 1980. U'MiiLÍ 15 Nj arðvíkíng ennþá ósigrc! ★ sigruðu KR í úrvalsdeildinni i körfu í gærkvöldi 97:90 „Ástæðan fyrir því að ég hitti ekki eins vel og venju- lega var einfaldlega sú að dómararnir leyfðu KR- ingunum að trufla mig ólöglega í skotunum. Ég náði ekki að einbeita mér. En ég er engu að síður mjög ánægður með leikinn og sérstaklega er ég ánægður með það hversu hinir leikmennirnir komu sterkir út úr þessum leik," sagði Danny Shouse þjálf- ari og leikmaður UMFN í körfuknattleik eftir að lið hans hafði lagt KR-inga að velli 97:90 í Laugardals- höllinni í gærkvöldi er liðin léku í úrvalsdeildinni. „Mér fannst liðið mitt leika vel og leikmennirnir komu svo sannarlega upp á réttum tíma. Þrátt fyrir að við unnum hér i kvöld er- um við ekki búnir að vinna deildina. Það eru 13 leikir eftir og það getur allt skeð," bætti Danny við. Þaö má svo sannarlega taka undir þau orð Danny Shouse að aðrir leikmenn UMFN náðu að sýna stórleik. Danny Shouse hef- ur oft leikið betur og skotanýting hans var ekki góð hverju sem um var að kenna. En þegar Danny náði ekki að sýna sitt besta tóku aðrir leikmenn við. Jónas Jó- hannesson fór á kostum og lék sinn besta leik i mörg ár og skor- aði 18 stig. Þá áttu þeir einnig mjög góðan leik Guðsteinn Ingi- marsson og Jón Viðar og sterkir voru þeir einnig Þorsteinn Bjarnason og Arni Þór Lárusson. Danny var stigahæstur, skoraði 36 stig. KR-ingar léku ekki illa að þessu sinni, siður en svo. Manni fannst það svolitið vitlaust af þeim að keyra upp hraðann i siðari hálf- leik i stað þess að taka lifinu með ró og reyna að skora öruggar körfur. Það er staðreynd að aldrei er erfiðara að glima við Njarðvikinga og þegar hraðinn i leik andstæðinga er sem mestur. Þá hafði það sitt að segja i leikn- um að Njarðvikingarnir hirtu mikið af sóknarfráköstum. En þrátt fyrir þennan ósigur KR i kvöld er vesturbæjarliðiö enn með i baráttunni um titilinn og litil ástæða fyrir leikmenn liðsins að örvænta. Keith Yow skoraði mest, 25 stig en Agúst skoraöi 19 og lék vel. Gangur leiksins i stuttu máli var sá að KR-ingartóku forystuna til að byrja með, komust i 27:19 eftir 10 minútur og staðan i leik- hléi var 47:42 þeim i vil. Njarð- vikingar mættu siðan ákveðnir til Jeiks i siðari hálfleik og þegar 5 minútur voru eftir var staöan 84:77 UMFN i vil. KR minnkaði muninn i 84:82 þegar 3 minútur yoru eftir en Njarðvikingar voru sterkari i lokin og sigruðu 97:90. Guðsteinn Ingimarsson átti mjög góðan kafla i lokin og skoraði margar körfur með frábærum langskotum. ,,Ég vissi að ég gæti þetta og ákvað að taka þessi skot Framhald á bls 19 Jónas Jóhannesson átti stórleik meö UMFN gegn KR í gærkvöldi. Á þessari mynd Róberts sést hann rífa niður eitt af mörgum frá- köstum sinum i leikn- um. Alfreð Gíslason er Semur Trausti með slitín liðbönd — gekkst uppskurö í morgun — Gíslason frá keppni í tvo mánuöi Alfreð frá keppni fram ijanúar Eins og kunnugt’ er þá meiddist Alfreð Gislason landsliðsmaður í hand- knattleiká æf ingu hjá KR s.l. föstudag. Við læknisskoðun í fyrradag kom í Ijós að hann var með slitin lið- bönd, Alfreð var skorinn í morgun og mun hann verða frá keppni fram í miðjan janúarmánuð. Þetta er mjög bagalegt fyrir KR-inga að missa Alfreð þar sem hann hef- ur verið aðal markaskor- ari liðsins, þá er það ekki á bætandi að bæði Konráð Jónsson og Björn Péturs- son eiga við meiðsli að stríða og óvíst hvort þeir geti leikið með KR á móti Þrótti á fimmtudaginn. röp—. Athugasemd frá Jóni í fyrradag setti þýski umboðsmaðurinn Willy Reinke sig i samband við Trausta Haraldsson lands- liðsmann í knattspyrnu og bað Trausta að koma til Þýskalands til viðræðu við þýska liðið Stuttgart Kickers. Er Timinn hafði samband við Trausta i gærkvöldi þá var hann i óða önn að pakka niöur þvi hann hélt til Þýskalands i morgun. Trausti sagði að enn væri allt óráðiö hvað yrði, þetta væri á við- ræöustigi ennþá og timinn yrði að leiða i ljós hvort af samningi yrði. röp-. Trausti Haraldsson Jón Hermannsson knattspyrnu- þjálfari kom að máli við iþrótta- siðuna i gær og vildi að eftirfar- andi yröi birt: Vegna greinar undir nafninu' Heyrt og Hlerað i Timanum 25. 11. 1980 vil ég taka fram eftirfar- andi: Engar viðræður hafa átt sér staö milli min og Þróttar Nes- kaupstað um þjálfun m.fl. i knatt- spyrnu. Þessi frétt er þvi tilhæfulaus með öllu. við Stuttgart?

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.