Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 48
Einmitt þegar hver réttlát sál hugsar vart um annað en þorskkvóta og kolefnisjöfnun get ég varla vikið Glitni úr huga mér. Daglega og oft á dag verður mér hugsað til þeirrar ágætu stofnun- ar. Ekki þó sökum ískyggilegs lánakostnaðar eða vaxtastefnu, heldur vegna ímyndar hreysti og þolgæðis sem bankinn hefur komið sér upp með stuðningi við Reykja- víkurmaraþonið. Sífellt fleiri sófa- kartöflur sjást nú á óttaslegnum hlaupum um götur borgarinnar því Stóridagur nálgast óðfluga og ekki lengur er hægt að humma æfingarnar fram af sér. fullorðnir minnast æsku þegar þeir gátu hlaupið þindar- laust dagana langa og blésu ekki úr nös. Núorðið eru þannig gas- elluhlaup aðeins í draumum mínum, bitur raunveruleikinn er annar. harðneskjulega æfinga- tímabil hófst sem kunnugt er á síð- ustu menningarnótt þegar ég sór þess dýran eið í votta viðurvist að hlaupa tíu kílómetra að ári. Á þeim tíma sem liðinn er síðan hef ég lært eitt og annað um sjálfa mig, en einkum að mér finnst alveg rosalega erfitt að hlaupa. Mun þægilegra er að ganga eða jafnvel keyra bara. Þannig myndi ég vissu- lega ferðast einvörðungu ef ekki væri fyrir árans eiðinn. Hans vegna hef ég auk þess komist að því hvernig er að fá raunverulegar harðsperrur. óvenjulega langdreginn hlaupatúr sem entist svo lengi vegna þrjósku mannsins míns í hlutverki sérlegs kvalara, birtust svo magnaðar harðsperrur að ég hélt ég væri komin með brjósklos. Í þrjá daga hökti ég um heimilið og dró á eftir mér þann fótinn sem geymdi mögulegt brjósklosið, eða jafnlengi og ég komst upp með það. Gestir héldu að ég væri að gera grín að fötluðum með göngu- laginu og hvorki heitir bakstrar né fagmannlegar jógateygjur gerðu nokkurt gagn. Um síðir var kval- ara minn farið að gruna uppgerð, mundaði keyrið og benti orðalaust á íþróttaskóna í fatahenginu. Eftir svona tvo kílómetra var brjósklos- ið því miður horfið í skuggann af allskyns öðrum hlaupastingjum sem ég vissi ekki áður að fólk þyrfti að læra að harka af sér til að geta hlaupið þessa skitnu bæjar- lengd. Ef til væri kvörtunardeild í kaupfélagi tilverunnar myndi ég örugglega nefna það með mörgu öðru. Strengir The pursuit of perfection RX 350 sameinar glæsileika, fágun, gríðarmikið afl og einstakt öryggi. Hann er athvarf frá álagi hinna virku daga. Hann er hrein upplifun þar sem landið hættir að setja þér takmörk og víður sjóndeildarhringur opnar þér nýja möguleika. Komdu og gefðu Lexus RX 350 færi á að uppfylla ýtrustu kröfur sem þú gerir til lúxussportjeppa. Niðurstaðan verður gagnkvæm virðing milli þín og RX 350, bíls sem er smíðaður til að standa undir ströngustu væntingum. Verð frá: 5.520.000 kr. Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 www.lexus.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /T O Y 3 80 43 0 7/ 07 SJÓNDEILDARHRING ÞÚ ÖÐLAST NÝJAN FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.