Tíminn - 27.01.1981, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.01.1981, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 27. janúar 1981 21. tölublað—65. árgangur Eflum Tímann Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 8(3300 • Auglysingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsimar 86387 & 86392 Landsvirkjun eykur skömmtun til stóriöju um 40MW Járnblendiverk- smiðjan veröur að hætta fram- leiðslu AM — i gær tilkynnti Lands- virkjun um að ákveðið hefði verið að auka orkuskerðingu til stdriðju um 40MW og skiptist skömmtunin svo að Járnblendi- felagið fær nú 23 MW minna en áður, sem um leið þýðir það að verksmiðjan verður að hætta allri framleiðslu um óákveðinn tima. t>á mun ÍSAL nú fá 17 MW minni orku en áður. Eins og fram hefur komið hér i blaðinu á þessi ákvörðun rætur að rekja til langvarandi vatns- skorts á hálendinu og óhagstæðs veðurfars um siðustu áramót. Þar sem vatnsforðinn i miðlun- arlóninu er af þessum sökum lægri nii en nokkru sinni fyrr á þessum árstima og langt að biða vors og öruggs bata i vatns- rennsli, hefur ofangreind á- kvörðun verið tekin með fyrir- vara um staðfestingu stjórna Landsvirkjunar og Járnblendi- félagsins. SU viðbótarbyrði, sem Járn- blendifélagið tekur á sig með þessu, mun dreifast á Lands- að sinm virkjun og almenningsveitur, sem ella hefðu orðið að draga úr orkusölu eða afla orku með oliu- kyndingu, sem verða mundi a.m.k. tvöfalt kostnaðarsam- ara. Það er að sjálfsögðu háð tið- arfarinu hve lengi þessi raf- magnsskömmtun þarf aö standa, en henni verður aflétt um leið og aðstæður leyfa. Halldór Jónatansson, aðstoð- arframkvæmdastjóri Lands- virkjunar, sagði okkur i gær, að þetta samkomulag, með fyrir- vara þess, hefði verið gert á fundi Landsvirkjunar með þess- um tveimur fyrirtækjum i gær. Atti hann von á að Járnblendi- verksmiðjan muni slökkva á ofninum um miðja þessa viku, en eitthvað lengri aðdragandi yrði á samdrætti hjá álverinu af tæknilegum orsökum. Taldi hann ekki óeðlilegt að tillit yrði tekið til þess kostnaöar sem al- menningsveitur munu hafa af þessum ráðstöfunum, þegar gjaldskrár þeirra verða reikn- aöar Ut að nýju. : ’ • Guðmundur J. Guðmundsson og Óttar Möller taka tal saman á afmælishá- tið Dagsbrúnar um helgina. Verslunarmannafélag Reykjavikur hélt einnig upp á stórafmæli um helgina — sjá bls.3. Timamynd Kóbert Frá fundi Sameinaðs þings í gær 1l j Ij, 1 jgijf IJw ? Togaranum Lárusi Sveinssyni meinað að landa i Cuxhaven „Mótmælin komu okkur á óvart” — sagði Guðmundur Björnsson hjá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur FRI —Þessi mótmæli komu okk- ur mjög á óvart þvi við vissum ekkert um að þau yrðu, sagði Guðmundur Björnsson hjá Hrað- frystihúsi Ölafsvikur i samtali við blaðið i gær en er togari frysti- hússins, Lárus Sveinsson, ætlaði að landa i Cuxhaven á sunnudag var honum meinaður aðgangur að bryggju þar en mótmælaað- gerðir voru þá i gangi i höfninni m.a. vegna sviptingar á veiðileyf- um þýskra skipa við Grænland. — Þeir hurfu frá bryggjunni i bili en komu siðan aftur um nótt- ina og siðan var landað úr togar- anum i gærmorgun. Þing kom saman í gær: JWBdl efnahagsum- ræða framundan” Iðnaðarráð- herra veitír Alusuisse frest segir Páll Pétursson JSG — „Ég tel víst að það verði mikil efnahagsmálaumræða i þinginu á næstu vikum”, sagði Páll Pétursson formaður þing- flokks Framsóknarflokksins i stuttu spjalli við blaðið i gær.. „Hún byrjaði reyndar litillega þegar I dag.” Alþingi kom saman til funda i gær að loknu jólaleyfi, og fór mestur hluti fundartimans i um- ræður utan dagskrár um atvinnu- mál og hættu á atvinnuleysi. „Ég er sæmilega bjartsýnn á þingstörfin á næstunni,” sagði Páll Pétursson. „Það þarf nú að leita staðfestingar á bráðabirgða- lögum um efnahagsaðgerðir sem stjórnarflokkarnir stóðu fyrir um áramótin. En ég er þeirrar skoð- unar að með þeim hafi að ýmsu leyti tekist vel til. Þjóðin hefur tekið þessum aðgerðum tiltölu- lega mjög vel.” „Nú liggur það ekki fyrir hvort þær ráðstafanir, sem þegar hafa verið ákveðnar, dugi til að koma verðbólgunni niður i 40%. Ef menn sjá að svo verði ekki, þá er gott svigrúm til frekari efnahags- aðgerða. Til þeirra verður að sjálfsögðu gripið. Þessi fjörtiu prósent eru útgangspunktur i efnah agsáætlun rikisstjórnarinn- ar,” sagði Páll ennfremur. „Stjórnarandstaðan er sannar- lega ekki öíundsverð af þvi að koma til þings núna, eftir dæma- laust klaufaleg viðbrögð við efna- hagsaðgerðunum. Mér sýnist að stjórnarandstaðan hefði átt að taka vel iþaðsem þeirsáu vera til bóta,ogstyðja rikisstjórnina i þvi sem þyrfti að gera.” „Ég held að rikisstjórnin standi vel, og það er min tilfinning að fólk vilji láta hana sitja áfram. Þvi er fullkomlega ljóst að við fengjum ekki aðra rikisstjórn sem liklegri væri til að ráða við þau verkefni sem endilega þarf að vinna,” sagði Páll Pétursson að lokum. — með því skilyrði að viðræður um endurskoðun samningsins fari fram AB — I siðustu viku barst Hjör- leifi Guttormssyni iðnaöarráð- herra bréf frá forráðamönnum Alusuisse, þar sem þeir fara fram á það, aö ráðherra veiti þeim frest til loka febrúarmán- aðar til að skila skýringum sin- um á hækkun súráls i hafi. Eins og kunnugt er, þá hafði iðnaðar- ráðuneytið óskað eftir þvi, að slik skýrsla bærist ekki siðar en 1 lok janúar. Hjörleifur Guttormsson tjáði blaðamanni Timans i gær- kvöldi, að þeir hjá Alusuisse hefðu borið þvi við að þarna væri um afskaplega mikið verk að ræða og að forráðamenn fyrirtækisins væru mikið erlend is þessa dagana. Hjörleifur sagöi, að það hefði orðiö niöur- staðan hjá þeim i iðnaðarráðu- neytinu, að vel athuguðu máli, að veita Alusuisse frest fram i miðjan febrUar, enda fari viö- ræður um endurskoðun á samn- ingunum fram i marsmánuði. Alusuisse hefur nú verið sent þetta svar ráöuneytisins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.