Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 18

Fréttablaðið - 08.11.2007, Side 18
fréttir og fróðleikur Kynna verður rétt höfunda Sterk króna hefur hlíft Íslendingum undanfarið Lögreglan í Georgíu réðst í gær gegn hópi mótmæl- enda sem hafði safnast saman fyrir utan þinghúsið í Tíblisi. Óróinn í landinu hefur ekki verið meiri síðan Eduard Shevardnadze hrökklaðist frá völdum fyrir fjórum árum. Mikheil Saakashvili, forseti Georgíu, naut mikilla vinsælda þegar hann komst til valda fyrir fjórum árum. Nú er orðin breyt- ing þar á. Síðan á föstudag hafa á hverjum degi verið haldin mót- mæli fyrir utan þinghúsið í Tíblisi, höfuðborg landsins. Þúsundir manna hafa lagt þangað leið sína til að krefjast þess að Saakashvili segi af sér og boði til kosninga. Í gær réðst síðan lögreglan gegn mannfjöldanum og beitti kylfum, táragasi, þrýstivatns- byssum og gúmmíkúlum. Mót- mælendurnir flýðu og nokkur hundruð manns særðust í átökun- um. Þótt efnahagur landsins hafi batn- að og spilling minnkað í stjórnar- tíð Saakashvilis hefur hann verið sakaður um aukna einræðistil- burði. Fjölmiðlafrelsi er takmark- að og fólk hefur verið handtekið af pólitískum ástæðum, segja gagnrýnendur hans. Saakashvili hlaut snemma lýð- hylli fyrir að berjast gegn spill- ingu í Georgíu. Árið 2000 var hann gerður að dómsmála- ráðherra í ríkisstjórn þáverandi forseta Georgíu, Eduards Shevard- nadze, og varð fljótt vinsæll. Hann hlustaði á borgarana, not- aði almenningssamgöngur og gekk um stræti höfuðborgarinnar Tíblisi. Vendipunktur varð svo í Georgíu árið 2003. Hinn vinsæli Saaka- shvili fór í fararbroddi friðsam- legra mótmæla sem leiddu að lokum til þess að Shevardnadze sagði af sér en hann hafði í reynd stýrt landinu í ein þrjátíu ár – að undanskildum þeim sex árum sem hann var utanríkisráðherra Sovétríkjanna í stjórn Gorbat- sjovs. Afsögnin kom í kjölfar þess að flokkur hans hafði lýst því yfir að hann hefði unnið þingkosning- arnar í landinu. Yfirlýsingin leiddi til friðsamlegra fjöldamót- mæla á götum úti í þrjár vikur undir forystu Saakashvilis og enduðu mótmælin með því að Saakashvili fór fyrir fjölda manns inn í þinghúsið, Shevardnadze flýði bygginguna og sagði af sér skömmu síðar. Saakashvili var kjörinn forseti Georgíu í janúar 2004. Á vef for- setaembættisins segir að hann hafi beitt sér gegn spillingu innan- lands. Saakashvili á enn víðtækan stuðning almennings í Georgíu þó að stjórnarhættir hans þyki að sumu leyti minna á fyrri tíma þar sem lýðræði var ekki í hávegum haft. Forseti Georgíu hefur sterka stöðu, hann er valdamikill leiðtogi sem tekur óhikað ákvarðanir eftir því sem honum þykir þörf á. Georgíumenn eru vanir slíku frá fyrri tíð. Margir hafa þó orðið fyrir von- brigðum með Saakashvili og halda því fram að stjórnmálaástandið í Georgíu nú sé svipað og var á Sovéttímanum. Ekkert hafi breyst. Forsetinn Mikheil Saaka- shvili ráði því sem hann vilji ráða og gefi fyrirskipanir eftir hentug- leika. Lýðræðið sé ekki upp á marga fiska því að kerfi kommún- ismans hafi í raun haldið áfram undir öðru nafni. Eftir að Saakashvili sendi lög- regluna á mótmælendurna í gær virðist sem enn fleiri hafi misst trúna á honum. Mótmæli kveðin niður í Georgíu Góður hundur á gott skilið Hunda nammi (harðfisktöflur) Hunda bitafiskur Íslensk framleiðsla úr úrvals hráefni. Fæst í Bónus

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.