Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 20.01.2008, Blaðsíða 46
ATVINNA 20. janúar 2008 SUNNUDAGUR2618 Vantar þig smiði, múrara, pípara eða járnbindingarmenn? Höfum á skrá menn sem að óska eftir mikilli vinnu. Geta hafi ð störf nú þegar. ventus Traust starfsmannaþjónusta Sími:661-7000 Skóladeild Glerárgötu 26 600 Akureyri Skíðagæslumaður - Slökkviliðs- og sjúkrafl utningamaður. Hjá Slökkviliði Akureyrar er laust til umsóknar starf slökkviliðs- og sjúkrafl utningamanns. Um er að ræða 100 % starf í vaktavinnu við sjúkrafl utninga, slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarfl utninga sem og skíðagæslu í Hlíðarfjalli yfi r skíðatímabilið. Starf slökkviliðs-og sjúkrafl utningamanns, skíðagæslumanns er nýtt starf sem miðast við að sinna sjúkrafl utningnum úr skíðabrekkum og sinna öryggisþáttum á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli Laun eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs-og sjúkrafl utningamanna. Hæfniskröfur: • Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr reglugerðar nr.792/2001 um Brunamálaskólann og réttindi og skyldur slökkviliðsmanna. • Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið og leigubifreið. • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. • Þeir sem ráðnir eru til starfa sem slökkviliðsmenn skulu hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og ekki vera haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. • Hafa jákvætt hugarfar og gott vald á mannlegum samskiptum. • Hafa sterka skíða og /eða snjóbrettakunnáttu • Akureyrarbær áskilur sér rétt til að óska eftir meðmælum. • Æskilegt er að umsækjendur geti hafi ð störf sem fyrst. Framangreindum hæfniskröfum er ekki raðað eftir mikilvægi. Að loknum sex mánaða reynslutíma verður tekin ákvörðun um fastráðningu eftir að umsækjandi hefur gengist undir próf í þeim þáttum sem tilgreindir eru í hæfniskröfum. Umsóknir Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknumSækja verður um starfi ð rafrænt á heimasíðu Akureyrabæjar: www.akureyri.is/auglysingar/atvinnuumsokn/auglyst-starf Umsóknarfrestur er til 30.janúar 2008. Umsækjendur þurfa að skila inn eftirfarandi fylgigögnum: Læknisvottorði, sakavottorði, prófskírteini og ljósriti af ökuskírteini og ökuferilsskrá. Fylgigögnum má annað hvort skila inn til Slökkviliðs Akureyrar eða senda á rafrænu formi í umsóknarferli á heimasíðu Akureyrarbæjar. Fylgigögnum verður að skila eigi síðar en 20. desember 2007. Tekið verður tillit til jafnréttisáætlunar Slökkviliðs Akureyrar og samþykktar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfi ð. Frekari upplýsingar veitir Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar, Árstíg 2, á staðnum eða í síma 461-4200, fax: 461-4205. Umsóknarfrestur er til 30.janúar 2008. Slökkviliðsstjórinn á Akureyri. Reykjavíkurborg - Einn vinnustaður Hlutverk skipulags- og byggingarsviðs er að veita borgarbú- um, borgarfulltrúum, ráðgjöfum, hönn- uðum, bygging- arverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulags- og bygg- ingarmál. Sviðið er jafnframt stefnumót- andi í skipulags- og byggingarmálum borgarinnar í sam- vinnu við skipu- lagsráð. Hlutverk embættis bygging- arfulltrúa er m.a. að sjá um að framfylgja ákvæðum skipulags- og byggingarlaga, byggingarlögum og reglugerðum er byggingarmál varða. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur arkitekt - skipulagsfræðingur Ef þú hefur menntun og reynslu á sviði skipulags og vilt vinna að fjölbreyttum, skemmtilegum og ögrandi verkefnum sem gefa tækifæri til þess að læra og bæta við starfshæfnina þá erum við hjá skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar að leita að frjóum og skemmtilegum starfsfélaga sem hefur gaman af að vinna í góðum hópi fagmanna. Starf Nýr starfsmaður mun vinna að margvíslegum verkefnum, þ.m.t. verkefnisstjórnun, á sviði skipulags og öðrum verkefnum því tengdu. Næsti yfirmaður starfsmanns er aðstoðarskipulagsstjóri Reykjavíkurborgar. Menntunar- og hæfniskröfur Umsækjandi skal hafa menntun á sviði skipulags, s.s. arkitektúr, skipulagsfræði eða sambærilegu námi. Áhugi á skipulagsmálum er nauðsynlegur og reynsla æskileg en ekki skilyrði. Umsækjandi þarf að geta unnið sjálfstætt og átt góð samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini sviðsins. Í boði Skemmtilegt og skapandi starfsumhverfi og fjölbreytt og krefjandi starf og tækifæri til þess að taka þátt í metnaðarfullri uppbyggingu borgarinnar. Sviðið mun flytjast í nýtt húsnæði á næstu mánuðum þar sem kappkostað hefur verið að bjóða upp á góða vinnuaðstöðu. Upplýsingar um starfið Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólöf Örvarsdóttir, aðstoðarskipulagsstjóri, netfang olof.orvarsdottir@reykjavik.is. Skriflegum umsóknum skal skilað til Ingibjargar R. Guðlaugsdóttur, mannauðsstjóra, netfang ingibjorg.gudlaugsdottir@reykjavik.is, eigi síðar en 1. febrúar 2008. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi hlutaðeigandi stéttarfélags Upplýsingar um Skipulags- og byggingarsvið og starfsemi þess er að finna á vefsíðunni skipbygg.is. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynjanna í störfum og því að vinnustaðir borgarinnar endurspegli fjölbreytileika reykvísks samfélags. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar í síma 4 11 11 11 eru veittar allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og símasamband við starfsmenn einstakra sviða og deilda www.ark.is ARKITEKTAR & BYGGINGAFRÆÐINGAR Við leitum að arkitektum og byggingafræðingum sem geta starfað sjálfstætt og stýrt verkefnum fyrir hönd fyrirtækisins. Reynsla af stjórnun verkefna æskileg. Einnig leitum við að arkitektum og byggingafræðingum til starfa við almenna hönnun. Reynsla í faginu æskileg. TÖLVUMAÐUR Leitum að tölvumanni til að sjá um uppsetningu og viðhald á notendavélum og netþjónum. Einnig felur starfið í sér almenna notendaþjónustu fyrir starfsmenn. Sérfræðiþekking í AutoCad er nauðsynleg. Áhugasamir hafi samband við Þorvarð Björgvinsson í síma 822 2065, Svövu Bragadóttur í síma 867 1895, eða sendi póst á netfangið thorri@ark.is. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál. Í hjarta Reykjavíkur vinnur samheldinn og góður hópur fagmanna. Þessi hópur er duglegur en verkefnum ölgar hratt. Því leitum við að liðsauka. Við bjóðum upp á a ragðsgóða vinnuaðstöðu í þægilegu umhverfi með skemmtilegu og hæfileikaríku fólki. STARFSFÓLK ÓSKAST ARKÍS er framsækið alhliða hönnunar- og ráðgjafafyrirtæki sem leggur áherslu á vönduð og traust vinnubrögð. ARKÍS var stofnað árið 1997 og hélt því upp a 10 ára afmæli sitt á síðasta ári. Við státum af samheldnum og færum hópi starfsmanna með víðtæka menntun og reynslu. Hjá ARKÍS starfa arkitektar, byggingafræðingar, innanhússarkitektar, skipu- lagsfræðingur, verkfræðingur, grafískur hönnuður, tækni- teiknarar auk skrifstofufólks. Starfsmenn er 55 talsins í Reykjavík og á Egilsstöðum og er ARKÍS ein stærsta arkitektastofa landsins. ARKÍS hefur unnið ölda verkefna á alþjóðlegum grunni og ARKÍS er einn af stofnendum og eigendum arkitekta- og verkfræðistofunnar ARSO í Vilnius og í Riga, þar sem nú starfa yfir 30 manns. Verkefni ARKÍS eru ölþætt en má þar helst nefna hönnun verslunarhúsnæðis, skólabygginga, skrifstofu- og atvinnu- húsnæðis, skipulagsverkefna auk annara verkefna fyrir sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Mörg þessara verk- efna hafa fengið verðlaun og viðurkenningar. TÖLVUMAÐUR BYGGINGAFRÆÐINGAR ARKITEKTAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.