Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 74
50 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR Eimskipsbikar kvenna: Grótta-Stjarnan 26-31 (13-15) Mörk Gróttu (skot): Pavla Plaminkova 10/7 (15/7), Auksé Vysniauskaité 5 (9), Karólína B. Gunnarsdóttir 5 (10). Arndís M. Erlingsdóttir 2 (3), Ragna Karen Sigurðardóttir 2 (5), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 2/1 (6/3). Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir 12 (40/3), 30%, Íris Björk Símonardóttir 0 (3/1), 0%. Hraðaupphlaupsmörk: 2 (Karólína, Arndís). Fiskuð víti: 12 (Anna 4, Auksé 3, Pavla 3, Eva, Ragna). Utan vallar: 2 mínútur. Mörk Stjörnunnar (skot): Alina Petrache 9/ (16/1), Arna Gunnarsdóttir 6/2 (8/3), Birgit Engl 6 (9), Ásta Agnarsdóttir 3 (5), Rakel Dögg Bragadóttir 2 (2), Anna Bryndís Blöndal 2 (2), Sólveig Lára Kjærnested 2 (4), Elísabet Gunnars dóttir 1 (1). Varin skot: Florentina Stanciu 21 (46/10), 46%, Helga Vala Jónsdóttir 0 (1/1), 0%. Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Anna 2, Sólveig 2, Birgit 2). Fiskuð víti: 5 (Elísabet 2, Arna, Birgit). Utan vallar: 6 mínútur. Valur-Fylkir 21-22 (9-9) Mörk Vals: Hafrún Kristjánsdóttir 4/1 (6/1), Eva Barna 4 (10), Nora Valovics 3 (6), Kristín Collins 3 (6), Ágústa Edda Björnsdóttir 3 (6), Dagný Skúladóttir 2 (6), Katrín Andrésdóttir 1 (3), Rebekka Skúladóttir 1 (3), Anna María Guðmundsdóttir (1), Kristín Guðmundsdóttir (1), Íris Ásta Pétursdóttir (3) Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 18/1 (40/3 45%) Mörk Fylkis: Natasa Damljanovic 9/1 (15/1), Sunna María Einarsdóttir 7/1 (15/2), Sunna Jóns dóttir 3 (6), Áslaug Gunnarsdóttir 1 (1), Elzbieta Kowal 1 (2), Ingibjörg Karlsdóttir 1 (3), Ásdís Guðmundsdóttir (1), Tinna Jökulsdóttir (1) Varin skot: Jelena Jovanovic 19 (40/1 47,5%) Iceland Express-deild kvk: Keflavík-Valur 93-84 (41-47) Stig Keflavíkur: Kesha Watson 38, Margrét Kara Sturludóttir 13 (12 frák., 7 stolnir), Pálína Gunnlaugsdóttir 12, Susanne Biemer 11, Hrönn Þorgrímsdóttir 8, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 5, Rannveig Randversdóttir 4, Birna Valgarðsdóttir 2. Stig Vals: Molly Peterman 34 (7 frák., 6 stoðs., 5 stolnir), Hafdís Helgadóttir 17, Signý Her mannsdóttir 16 (10 frák., 8 varin), Tinna Björk Sigmundsdóttir 9 (8 stoðs.), Þórunn Bjarnadóttir 6 (11 frák.), Guðrún Baldursdóttir 2. Haukar-Hamar 82-74 Grindavík-Fjölnir 108-61 Evrópukeppni félagsliða: Brann-Everton 0-2 0-1 Leon Osman (59.), 0-2 Victor Anichebe (88.). Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson voru í byrjunarliði Brann í leiknum. PSV-Helsingborg 2-0 1-0 Timmi Simons (7.), 2-0 Danko Lazovic (33.). Ólafur Ingi Skúlason var í byrjunarliði Helsing borgar. ÚRSLITIN Í GÆR FÓTBOLTI Real Madrid er áfram ríkasta félag heims samkvæmt nýrri úttekt Deloitte en þrjú ensk félög eru meðal þeirra fimm efstu. Madrídarliðið jók gróða sinn um tuttugu prósent á síðasta tímabili en hann var alls 351 milljón evra eða um 35,5 milljarð- ar íslenska króna. Manchester United fór upp um tvö sæti milli ára og er nú annað ríkasta félag heims. Barcelona fór niður um eitt sæti í 3. sætið en Chelsea (4. sæti) og Arsenal (5. sæti) eru síðan einnig meðal ríkustu fótboltafélaga heimsins í dag. Á lista yfir tuttugu ríkustu félögin eru sex ensk félög, fjögur félög frá Þýskalandi og Ítalíu, þrjú frá Spáni, tvö frá Frakkland og loks eitt frá Skotlandi. Það fylgir sögunni að ensku félögin Aston Villa, Everton, Manchester City og West Ham United séu öll rétt fyrir utan listann og líkleg til að komast inn á hann á næstu misserum. - óój Fjármál fótboltafélaganna: Real er ríkasta félag heimsins GOTT ÁR Real-menn unnu spænska titilinn í fyrra og græddu líka vel. NORDICPHOTOS/GETTY HANDBOLTI Stjarnan gerði góða ferð á Seltjarnarnes í gærkvöld og lagði Gróttu 26-31 í undanúr- slitum Eimskipsbikars kvenna í gærkvöld. Það vantaði ekki bikarstemn- inguna á Seltjarnarnesi í gær- kvöld. Leikurinn fór vel af stað og var hraður á upphafsmínútunum þar sem heimalið Gróttu var jafn- an skrefinu á undan. Stjarnan fylgdi þó fast á eftir og komst svo yfir í fyrsta sinn þegar rúmar tíu mínútur voru liðnar af leiknum í stöðunni 6-7. Stjarnan skipti í framhaldinu um gír svo um mun- aði og í stöðunni 7-8 skoraði liðið fjögur mörk í röð og staðan því orðin 7-12 þegar rúmar tíu mínút- ur lifðu leiks í fyrri hálfleik. Gróttustúlkur voru hins vegar ekki af baki dottnar. Þær svöruðu fyrir sig og skoruðu fimm mörk í röð í stöðunni 8-14 og minnkuðu muninn niður í eitt mark. Stjörnu- stúlkur áttu þó síðasta orðið og staðan því 13-15 í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt eltingar- leikurinn áfram en Stjarnan náði að halda Gróttu í hæfilegri fjar- lægð nær út allan hálfleikinn. Grótta fékk þónokkur tækifæri til þess að minnka muninn niður í eitt mark en alltaf virtist vanta herslumuninn upp á og Stjarnan skoraði í kjölfarið. Þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma var munurinn fjögur mörk og þá var allur vindur úr Gróttu. Lokatölur urðu svo 26-31 og Stjarnan leikur því til úrslita í Laugardalshöll. Aðalsteinn Eyj- ólfsson, þjálfari Stjörnunnar, var hæstánægður með stelpurnar sínar. „Mér fannst varnarleikurinn reyndar ekki vera sérstakur en í bikarleikjum á maður ekkert að vera að velta sér of mikið upp úr handboltafræðunum. Mér fannst við sýna mikla leikgleði og gríðar- legan vilja og ég er mjög stoltur af liði mínu. Það komu vissulega tímar þar sem maður var stress- aður í síðari hálfleik en stelpurn- ar lögðu mikið á sig til þess að halda Gróttu alltaf í hæfilegri fjarlægð,“ sagði Aðalsteinn. Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Gróttu, var ósáttur með tapið en fannst lið sitt spila vel. „Ég er mjög ánægður með mitt lið og það vantaði alveg grátlega lítið upp á að við næðum að fá eitt- hvað út úr leiknum. Nú verðum við bara að reyna að klára tímabil- ið í deildinni á góðum nótum,“ sagði Alfreð. omar@frettabladid.is Stjörnustúlkur héldu haus Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru komnir alla leið í úrslitaleik Eimskipsbikars- ins eftir verðskuldaðan 26-31 sigur gegn Gróttu á Seltjarnarnesi í gærkvöld. ENGIN MISKUNN Gróttustúlkan Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fær hér óblíðar mót- tökur frá Stjörnustúlkum í bikarleiknum í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Íslendingaliðið Brann tapaði 0-2 gegn enska úrvalsdeild- arliðinu Everton í fyrri leik lið- anna í 32-liða úrslitum Evrópu- keppni félagsliða í gærkvöldi. Noregsmeistarar Brann urðu að sætta sig við svekkjandi tap á heimavelli sínum gegn Everton. Fyrirfram var búist við erfiðum leik fyrir Brann enda Everton lík- legt til þess að ná langt í keppn- inni. Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson voru á sínum stað í vörn norska liðsins en Ármann Smári Björnsson og Gylfi Einarsson voru ekki í leikmanna- hópi liðsins að þessu sinni. Brann náði lengi vel að halda í við Everton og staðan var marka- laus í hálfleik. En það dró til tíð- inda á 59. mínútu þegar boltinn barst til Leon Osman út í teiginn hægra megin eftir að varnarmönn- um Brann hafði mistekist að hreinsa boltann almennilega í burtu og hann átti hnitmiðað skot sem Opdal í marki Brann kom engum vörnum við. Victor Anichebe bætti seinna markinu við í lok venjulegs leik- tíma. Nígeríumaðurinn fékk þá góða fyrirgjöf frá Jolean Lescott á fjærstöngina og kláraði færið vel og skoraði annað markið á 88. mínútu og þar við sat. - óþ Everton lagði Brann 0-2 í Evrópukeppni félagsliða: Everton of sterkt BARNINGUR Kristján Örn Sigurðsson reynir hér að halda aftur af framherjanum Andy Johnson í leik liðanna í gærkvöld. NORDIC PHOTOS/AFP KÖRFUBOLTI Keflavík vann 93-84 sigur á Val í skemmtilegum leik í Keflavík í toppsæti Iceland Express-deildar kvenna í gær og heldur því áfram hundrað pró- senta sigurhlutfalli á heimavelli og toppsæti deildarinnar. Kesha Watson gerði út um leikinn með frábærum þriðja leikhluta þar sem hún skoraði 19 stig en Kesha var alls með 27 af 38 stigum sínum í seinni hálfleik. Valsliðið hitti úr 12 fyrstu skot- um sínum í leiknum og komst í 9- 26 í upphafi leiks en þegar Kefla- víkurpressan fór í gang voru Keflavíkurstúlkur ekki lengi að vinna upp gott forskot gestanna. Það tók þær ekki nema tæpar fimm mínútur í kringum leikhluta- skiptin að breyta stöðunni úr 11-28 í 31-31. Valur náði aftur forskoti og var 41-47 yfir í hálfleik en réð ekkert við Keshu í þriðja leik- hlutanum sem Keflavík vann með 13 stigum, 31-18. Valskonur gáfust ekki upp og minnkuðu muninn í eitt stig í lokaleikhlutanum en nær komust þær ekki og þurftu að sætta sig við sitt fyrsta tap í fimm leikjum. Kesha Watson (38 stig, 6 þrist- ar) var mjög góð í seinni hálfleik, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir kom með mikinn kraft í vörnina og þær Margrét Kara Sturludóttir (13 stig, 12 fráköst, 7 stolnir) og Pál- ína Gunnlaugsdóttir (12 stig) áttu báðar ágætan dag. Hrönn Þor- grímsdóttir setti líka niður þrjár stórar körfur í þriðja leikhlutan- um og var með 8 stig á 10 mín- útum. Molly Peterman (34 stig, 7 frá- köst, 6 stoðs.) var mjög góð að vanda hjá Val, Signý Hermanns- dóttir (16 stig, 10 fráköst, 8 varin) var illviðráðanleg þegar Valsliðið náði að stilla upp og hin 43 ára gamla Hafdís Helgadóttir átti afbragðsleik og var með 17 stig og 8 fráköst á 24 mínútum. Grindavík er eitt í öðru sætinu eftir öruggan heimasigur á Fjölni, 108-61, en 82-74 sigur Hauka á Hamri þýðir að nú munar aftur orðið tíu stigum á Haukum og Val í baráttunni um síðasta sætið inn í úrslitakeppni. - óój Keflavík er áfram í toppsætinu þrátt fyrir að lenda 9-26 undir gegn Val í Iceland Express-deildinni í gær: Draumabyrjun Valsliðsins dugði ekki HART BARIST Signý Hermanns- dóttir reynir hér að brjóta sér leið í gegnum vörn Keflavíkur í leiknum í gærkvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN BJÖRN HANDBOLTI Fylkir blés á allar hrakspár þegar liðið vann óvæntan sigur á Val á útivelli í undanúrslitum Eimskipsbikars kvenna, 22-21. Liðin skiptust á að leiða en aldrei munaði miklu á liðunum. Sunna María Einarsdóttir kom Fylki í 22-21 þegar ein og hálf mínúta var eftir af leiknum. Valur fékk þrjú fín tækifæri til að jafna metin en ávallt var frábær markvörður Fylkis fyrir tilraun- um Vals og því er Fylkir á leið í úrslitaleik bikarsins í fyrsta sinn í sögu félagsins. Guðríður Guðjónsdóttir, þjálf ari Fylkis, var í skýjunum í lok leiks. „Þetta er ótrúlega flott. Þetta eru ungar stelpur. Útlend- ingarnir draga vagninn, eru stöðugt að peppa hinar upp og kenna þeim og sjálfstraustið kemur alltaf meira, meira og meira. Við spiluðum vörnina eins og markvörðurinn okkar vill. Hún vill fá hornin inn og eins og sást þá lokaði hún á hornin í þessum leik,“ sagði Guðríður sem hlakkar mikið til að fara með hið unga lið Fylkis í úrslitaleikinn í höllinni. - gmi Eimskipsbikar kvenna: Óvæntur sigur Fylkisstúlkna SEIGLA Fylkisstelpur sýndu hvers þær eru megnugar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.