Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 10
 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR RV Unique örtrefjaræstikerfið - hagkvæmt, vistvænt og mannvænt Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar RV Bodil Fur, sölumaður hjá RV Unique í Danmörku UniFlex II H Fiber ræstivagn RV U N IQ U E 02 08 02 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is A T A R N A – K M I / F ÍT Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is blettakerfi 8 kg. 15 mín. hraðkerfi 60 mín. kraftþvottakerfi Snertihnappar A+ ORKA Landsvirkjun sendi í gær frá sér tilkynningu með yfirskriftinni „Orkan í neðri hluta Þjórsár seld með fyrirvara um að leyfi fáist“. Þar segir að fyrirtækið hafi rætt við fjölmörg hátæknifyrirtæki sem hafi áhuga á raforkukaupum úr virkjunum þeim sem fyrirhug- aðar eru í neðri hluta Þjórsár. Auk gagnaversins megi minna á mögulega framleiðslu á hreinkísli í Þorlákshöfn. Ljóst sé að eftirspurn eftir orku er langt umfram framboð. Lands- virkjun hafi ekki aðra virkjunar- kosti en í neðri hluta Þjórsár til- tæka til raforkusölu á Suður- og Vesturlandi. Þá sé lítið svigrúm í raforku- kerfinu til aukinnar framleiðslu því raforkusala hafi aukist mikið. Benda megi á að Becromal opni orkufreka rafþynnuverksmiðju á Akureyri síðar á árinu með raf- magni frá Landsvirkjun, án nýrra virkjana. Þar sem ekki hafi enn verið gefið út virkjunar- og fram- kvæmdaleyfi fyrir virkjunum í neðri hluta Þjórsár séu samningar Landsvirkjunar við Verne og aðrir orkusölusamningar sem fyrirtæk- ið kunni að gera gerðir með fyrir- vara um að tilskildar heimildir fáist fyrir virkjunum í Þjórsá. - kóþ Samningsstaða Landsvirkjunar og áform reifuð í tilkynningu: Orka í neðri hluta Þjórsár seld ÖLMÓÐSEY Í ÞJÓRSÁ Landsvirkjun segist vera byrjuð að semja um að selja orkuna sem muni fást úr virkjunum í Þjórsá, enda hafi fyrirtækið ekki aðra virkjunarmöguleika á svæðinu. MYND/LOFTMYNDIR UMHVERFISMÁL Með auknu vatns- streymi af bráðnun jökla verður til nógu mikil orkuaukning í núverandi virkjanakerfi fyrir væntanlegt gagnaver Verne Hold- ing á Suðurnesj- um, til dæmis í Kárahnjúka- virkjun. Því þarf ekki að virkja Þjórsá, að sögn talsmanns Sólar á Suðurnesjum, Guðbjargar R. Jóhannesdóttur. Því harmi samtökin stefnu Landsvirkjunar og nýlegar yfir- lýsingar for- stjóra hennar, en fyrir tækið gerði þann fyrirvara við orkusölu til gagnaversins að leyfi fengist til að virkja Þjórsá. Gagnaverið muni nota lítinn hluta þeirrar orku, sem færi til dæmis í álver í Helguvík, einungis 25 MW til að byrja með og í mesta lagi 50 MW. Álver í Helguvík þyrfti allt að 435 MW. „Þess vegna er gagnaverið nátt- úrlega frábær þróun. Það er byrj- unarskref en hér eru ýmsir aðrir möguleikar,“ segir Guðbjörg og telur til að nú þegar sé unnið að háskólauppbyggingu og jafnvel kvikmyndaveri á svæðinu. Hún telur tímaskekkju að reisa orku- frekt álver því það skemmi fyrir öðrum möguleikum. - kóþ Sól á Suðurnesjum: Bráðnun jökla bjargi Þjórsá URRIÐAFOSS Í ÞJÓRSÁ Guðbjörg segir að ekki sé þörf á að virkja hér fyrir nýja gagna- verið. Orkuþörf þess megi fullnægja með annarri orku. Einnig segir hún að álver í Helguvík myndi eyðileggja fyrir annarri uppbyggingu á Suðurnesjum. MYND/SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON GUÐBJÖRG RANNVEIG JÓHANNESDÓTTIR ORKA „Það er varla hægt að taka það alvarlega þegar þessum tveimur óskyldu hlutum er stillt upp með þessum hætti,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra um fyrirvara Lands- virkjunar við orkusölu til gagna- vers Verne í Keflavík. Eins og greint var frá í Frétta- blaðinu í gær gerir Landsvirkjun það að skilyrði fyrir sölunni að virkjunarleyfi fáist í Þjórsá. Viðskiptaráðherra segist ekki sjá hvernig gagnaver, sem noti 25 megavött, hafi nokkuð með virkj- un Þjórsár að gera. „Auðvitað er það ekki forsenda gagnavers,“ segir Björgvin og minnir á andstöðu sína við téðar virkjanir. Mörður Árnason, Samfylkingu, vakti athygli þingheims á frétt blaðsins í gær. Sagði hann Lands- virkjun reka áróður „eins og hver annar stjórnmálaflokkur“. Fyrir- tækið notaði vinsælt mál, eins og gagnaver, til að koma fram óvin- sælu máli; virkjun í Þjórsá. „Landsvirkjun er að nota gagna- verið sem fjárkúgun, sem blakk- meil á Alþingi. Hvað á þetta frí- ríki, þetta sjálfstýrða apparat, eiginlega að komast upp með af dónaskap og frekju í garð kjör- inna fulltrúa hér og í garð ríkis- stjórnarinnar og alls almennings?“ spurði Mörður og var þá kallað fram í að hann skyldi spyrja iðn- aðarráðherra að þessu. Kristján Þór Júlíusson, Sjálf- stæðisflokki, kvað næst að óábyrgt væri að nýta ekki Þjórsá. Hann vænti þess að þingmenn fögnuðu áformunum, líkt og iðnaðarráð- herra hefði gert. Helgi Hjörvar í Samfylkingunni kom þá og efaðist um að rétt hefði verið haft eftir upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar. Þetta væri lík- lega óþarfa uppsláttur í blaðinu. Að lokum tók Álfheiður Inga- dóttir úr VG til máls og sagði óþarft fyrir Helga að bera blak af upplýsingafulltrúanum. Helgi gæti lesið sér til um fyrirætlanir Landsvirkjunar á heimasíðu fyrir- tækisins. Össur Skarphéðinsson iðnaðar- ráðherra er erlendis og svaraði engu um málið í gær. klemens@frettabladid.is Gagnaverið óháð Þjórsá Viðskiptaráðherra segir nálgun Landsvirkjunar á tengsl gagnavers og Þjórsár sérkennilega. Þetta séu óskyldir hlutir. Rætt var um málið á Alþingi í gær. esjum a orku- BJÖRGVIN G. SIGURÐSSON MÖRÐUR ÁRNASON KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON HELGI HJÖRVAR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.