Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 91

Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 91
FIMMTUDAGUR 6. mars 2008 55 KÖRFUBOLTI KR-ingurinn Joshua Helm var með hæsta framlag allra leikmanna Iceland Express-deild- ar karla í febrúar en hann skilaði 32,0 framlagsstigum til síns liðs í þeim fjórum leikjum sem Íslands- meistaranir spiluðu í mánuðinum. Joshua Helm var með 24,3 stig, 9,8 fráköst og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik en mesta athygli vakti skotnýting kappans, sem nýtti 70 prósent skota sinna í leikj- unum fjórum. Helm var sem dæmi með rúmlega fimm prósentum betri nýtingu í skotum utan af velli en í vítaskotum sínum, en hann nýtti 64,7 prósent víta sinna. Nate Brown lék einnig mjög vel með ÍR-liðinu í febrúar en hann var með 22,5 stig, 8,5 stoðsending- ar, 8,0 fráköst og 4,8 stolna bolta að meðaltali í leik í fjórum leikj- um Breiðholtsliðsins. Enginn stal fleiri boltum í febrúar en Nate Brown. Grindvíkingurinn Páll Axel Vil- bergsson var efstur af íslensku leikmönnunum með 26,8 fram- lagsstig í leik, tveimur stigum á undan Hlyni Bæringssyni hjá Snæfelli sem kom næstur. Páll Axel var með 31,5 stig og 6 fráköst að meðaltali í leik en hann nýtti rúmlega 56 prósent skota sinna. Þar af setti hann niður 51,2 prósent af 43 þriggja stiga skotum sínum. Enginn leikmaður deidlar- innar skoraði meira en hann í mán- uðinum en nýi Stjörnumaðurinn Jarrett Stephens kom næstur með 27,7 stig í leik. Hlynur var með 15,3 stig, 14,8 fráköst, 3,5 stoð- sendingar og 3,0 stolna bolta að meðaltali í leik en enginn leikmað- ur deildarinnar tók fleiri fráköst en hann í febrúar. - óój HÆSTA FRAMLAGIÐ Í FEBRÚAR: Joshua Helm, KR 32,0 Nate Brown, ÍR 31,0 Darrell Flake, Skallagrími 29,8 Jarrett Stephens, Stjörnunni 29,0 Cedric Isom, Þór Ak. 28,5 Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 26,8 Justin Shouse, Snæfelli 25,8 Hlynur Bæringsson, Snæfelli 24,8 Damon Bailey, Njarðvík 24,5 Brenton Birmingham, Njarðvík 24,3 EFSTU TÍU ÍSLENDINGAR: Páll Axel Vilbergsson, Grindavík 26,8 Hlynur Bæringsson, Snæfelli 24,8 Brenton Birmingham, Njarðvík 24,3 Friðrik Stefánsson, Njarðvík 18,8 Svavar Birgisson, Tindastóli 18,0 Helgi Már Magnússon, KR 17,0 Sveinbjörn Claessen, ÍR 16,0 Svavar Páll Pálsson, Hamar 14,8 Hreggviður Magnússon, ÍR 14,3 Fannar Freyr Helgason, Stjörnunni 13,5 Fréttablaðið skoðar hver var með hæsta framlagið til sinna liða í Iceland Express-deild karla í febrúar: Joshua Helm stóð sig best allra í febrúar BESTIR Í FEBRÚAR KR-ingurinn Joshua Helm og Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI HK-ingar hafa styrkt sig fyrir komandi tímabil því liðið hefur nú samið við þrjá erlenda leikmenn fyrir átökin í Lands- bankadeild karla í sumar. HK hafði áður fengið króatíska miðjumanninn Goran Brajkovic og slóvenska sóknarmanninn Mitja Brulc en samdi nú síðast við Danann Iddi Alkhag. Iddi Alkhag er 29 ára gamall sóknarmaður og hefur spilað undanfarin tíu ár í tveimur efstu deildunum í Danmörku, með liðum Esbjerg, Silkeborg og Frem. Alkhag á samtals að baki 107 úrvalsdeildarleiki í Danmörku og hefur skorað í þeim 28 mörk en á sínum tíma spilaði hann 15 leiki með danska 21 árs landsliðinu. - óój Landsbankadeild karla: HK komið með þrjá erlenda KÖRFUBOLTI Nýliðar Stjörnunnar eiga enn möguleika á að komast inn í úrslitakeppnina en til þess þurfa þeir að gera það sem liðið hefur aðeins gert einu sinni í vetur; að vinna á útivelli. Stjarnan er búin að tapa sex síðustu útileikjum sínum og vann eina sigur sinn utan Garðabæjar í Njarðvík 8. nóvember. Það er eini útisigur Stjörnunnar í tuttugu útileikjum í efstu deild en Garðbæingar eiga tvo af þremur síðustu leikjum sínum á útivelli og þurfa helst að vinna þá báða til þess að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn. Stjarnan heimsækir ÍR í Seljaskólann í kvöld og ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. ÍR-ingar hafa unnið þrjá af síðustu fjórum heimaleikjum sínum og hafa unnið tvö af þremur efstu liðum deildarinnar í síðustu tveimur leikjum sínum. - óój Iceland Express-deild karla: Stjarnan þarf stig á útivelli HVAÐ GERA ÞEIR? Fannar Freyr Helga- son, fyrirliði Stjörnunnar, og félagar hans þurfa að vinna í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SKRÚFUDAGUR Komdu og taktu þátt í skemmtilegri dagskrá í Fjöltækniskóla Íslands og Flugskóla Íslands við Háteigsveg laugardaginn 8. mars kl. 13:00 - 16:30. NÁMSKYNNING Stúdentspróf Einka- og atvinnuflugmannspróf Vélstjórnar- skipstjórnarpróf Alþjóðleg réttindi Nám í Iðnskólanum í Reykjavík DAGSKRÁ Véla-, siglinga- og flughermar Nemendur og kennarar að störfum við vélar og tæki Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 14:00 Turninn verður opinn gestum Ókeypis ferðir á milli Fjöltækniskólans og Flugskólans á Reykjavíkurflugvelli Ferðaklúbburinn 4x4 verður með jeppasýningu á staðnum Dregið úr lukkupotti kl. 16:00. Tímar í flughermi og útsýnisflug yfir Reykjavík í verðlaun. Útsýnisflugið er strax að útdrætti loknum Kvenfélögin Hrönn og Keðjan selja kaffiveitingar gegn vægu gjaldi Allir velkomnir Vinnið útsýnisflug yfir Reykjavík og tíma í flughermi. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 14:00. HÁTEIGSVEGI 105 REYKJAVÍK SÍMI 522 3300 WWW.FTI.IS Nám í Fjöltækniskóla Íslands og Flugskóla Íslands hentar m.a. þeim sem vilja ljúka stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með véltækni,- raftækni,- skipstækni- eða einkaflugmannsprófi. Náimið hentar líka þeim sem vilja verða skipstjórar, flugmenn, vélstjórar, vélfræðingar hjá orkufyrirtækjum eða vilja undirbúa sig fyrir háskólanám á tæknisviði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.