Fréttablaðið - 11.03.2008, Síða 12
11. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
SPÁNN, AP Jose Luis Rodriguez
Zapatero, forsætisráðherra
Spánar, boðar nýtt tímabil í
spænskum stjórnmálum og hvet-
ur landsmenn til að forðast har-
kaleg átök.
„Þegar maður fær fleiri
atkvæði og fleiri þingsæti verður
maður að styrkja möguleika sína
á því að ræða við aðra,“ sagði
Zapatero í gær, á fyrsta blaða-
mannafundi sínum eftir kosn-
ingasigurinn.
Hann segir að nýja stjórnin
muni sýna ábyrgð og einbeita sér
að því að blása nýju lífi í efna-
hagsmál, atvinnumál og velferðar-
mál, og það muni hann gera í sam-
ráði við aðra.
Zapatero hyggst þó ekki mynda
samsteypustjórn með smærri
flokkum þrátt fyrir að hafa ekki
tryggt sér meirihluta á þingi í
kosningum á sunnudag.
Sósíalistaflokkur hans bætti
við sig fimm þingsætum í kosn-
ingunum, er nú með 169 þing-
menn en vantar enn sjö til að hafa
hreinan meirihluta á þingi. Zapat-
ero ætlar að nýta sér stuðning
smærri flokkanna í einstaka
málum, rétt eins og hann gerði á
síðasta kjörtímabili.
Þjóðernisflokkur Baska, sem
fékk sex þingmenn, bauðst þegar
til að ganga til samstarfs við
stjórnina svo finna megi lausn á
vandamálum Baskahéraðanna.
Zapatero fagnaði þessu boði, en
sagði of snemmt að ræða um sam-
starf.
Kosningarnar voru haldnar í
skugga morðsins á Isais Carras-
co, fyrrverandi bæjarstjórnar-
fulltrúa Sósíalistaflokksins, sem
var jarðsunginn á laugardaginn.
Basknesku aðskilnaðarsamtökin
ETA hafa lýst yfir ábyrgð sinni á
morðinu.
Í sigurræðu sinni vottaði Zap-
atero Carrasco virðingu sína, og
sagði að með réttu hefði hann nú
átt að vera að fagna sigri með
fjölskyldu sinni.
Tímasetning árásarinnar, svona
rétt fyrir kosningar, vakti upp
minningar um hryðjuverkin í
Madríd 11. mars árið 2004, aðeins
fáeinum dögum fyrir síðustu
kosningar þegar Zapatero vann
óvæntan sigur, sem rekja má
beint til þess að Spánverjar sættu
sig ekki við viðbrögð þáverandi
hægristjórnar við voðaverkun-
um.
gudsteinn@frettabladid.is
Tónlist beint
í símann
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Sony Ericsson V640i
Lipur og nettur Walkman tónlistarsími. 3G, EDGE, 256
Mb minniskort. Fer á Netið með Vodafone live! Fæst í
„Havana Gold“ og svörtu. Eingöngu hjá Vodafone.
19.900 kr.
Milljón lög til eignar í Vodafone
tónlistarsímann þinn
Komdu við í næstu Vodafone verslun og fáðu þér
tónlist í símann.
Sósíalistaflokkurinn bætti við sig fimm
þingmönnum frá síðustu kosningum
en vantar þó sjö til að hafa hreinan
meirihluta.
Zapatero boðar nýtt
tímabil stjórnmála
Sósíalistaflokkurinn á Spáni fagnar kosningasigri og hvetur landsmenn til að
standa saman að lausn erfiðra deilumála. Stjórn Zapateros bætti við sig fimm
þingmönnum en vantar þó sjö til að hafa hreinan meirihluta.
FÖGNUÐUR Í HERBÚÐUM SÓSÍALISTA-
FLOKKSINS Zapatero forsætisráðherra
og eiginkona hans, óperusöngkonan
Sonsoles Espinosa, fögnuðu kosninga-
sigrinum í hópi félaga sinna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP