Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 62

Fréttablaðið - 07.04.2008, Page 62
34 7. apríl 2008 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. hróss 6. guð 8. klettasprunga 9. árkvíslir 11. tímabil 12. helber 14. sanka 16. pot 17. fum 18. hélt á brott 20. eldsneyti 21. þjappaði. LÓÐRÉTT 1. þrákelkni 3. líka 4. lögtak 5. áverki 7. heilmikill 10. siða 13. bókstafur 15. frumeind 16. einatt 19. kyrrð. LAUSN LÁRÉTT: 2. lofs, 6. ra, 8. gjá, 9. ála, 11. ár, 12. alger, 14. safna, 16. ot, 17. fát, 18. fór, 20. mó, 21. tróð. LÓÐRÉTT: 1. þráa, 3. og, 4. fjárnám, 5. sár, 7. allstór, 10. aga, 13. eff, 15. atóm, 16. oft, 19. ró. „Það er einfalt að svara því, það er Bylgjan. Hún rúllar hérna allan daginn.“ Auður Þórisdóttir, klæðskeri í Saum- sprettunni. „Ég er ekki svo grænn að vita ekki að einhverjir koma ekki hlaupandi á uppboð til mín,“ segir Pétur Þór Gunnarsson, eigandi Gallerís Borgar. Sá sögulegi viðburður verður 20. apríl að Gallerí Borg mun aftur gangast fyrir málverkauppboði. Sögulegur, því Pétur Þór, sem áður hafði staðið í brú Gallerís Borgar, stóð í málarekstri í tæp níu ár í því sem kallaðist Stóra málverkaföls- unarmálið – eitthvert umfangs- mesta mál íslenskrar réttarfars- sögu. Pétri var gefið að sök að hafa falsað eða selt vísvitandi verk sem hann vissi að væru fölsuð. Pétur er meðvitaður um að ýmsir sem tengdust málinu telji sig hafa verið hlunnfarna í við- skiptum við sig. „Fólk situr uppi með málverk sem ákveðnir aðilar hafa dæmt fölsuð en engin niðurstaða hefur fengist í því hvort svo er eða ekki. Og trúir því statt og stöðugt að ég hafi verið að mála Kjarval og Jón Stefánsson í stórum stíl. Ef ég hefði falsað myndir fyrir hundruð milljóna eins og sumir hafa haldið fram, sæti ég nú einmana með slæma samvisku á fjarlægri sólar- strönd, drekkandi kokteila úr kókoshnetum. Ég hélt fram sak- leysi mínu í átta ár og var á endan- um sýknaður í Hæstarétti. Þess vegna er ég hér og get með góðri samvisku haldið áfram að gera það sem ég er næstbestur í, selja málverk,“ segir Pétur Þór. Gallerí Borg var um árabil ein- rátt á markaði eða frá 1987 til 1998. Nú er staðan sú að Gallerí Fold, þar sem Tryggvi Páll Frið- riksson fer fyrir, hefur verið eitt fyrirtækja um málverkauppboð. Pétur segir pláss fyrir fleiri. „Þetta hefur snúist við. Mér finnst eðlilegt að hér séu tvö uppboðshús og í raun með ólíkindum að ekkert af þeim listaverkasölum sem hafa starfað um árabil hafi ekki fyrir löngu opnað uppboðshús. Pétur Þór ætlaði ekki að fara af stað með uppboð fyrr en í september á þessu ári, ekki eru nema fjórir mánuðir síðan hann opnaði Gallerí Borg að nýju, en úr svo mörgum myndum er að moða að hann ákvað að gangast fyrir uppboði strax nú í þessum mánuði. Pétur Þór ætlar sjálfur að bjóða upp, á í fórum sínum gamlan sýslumanns- hamar, og stefnir að því að láta uppboðið ganga hratt fyrir sig eða í eina og hálfa klukkustund. Hann ætlar að takmarka uppboðið við áttatíu myndir og leggur á það áherslu að þær verði allar fyrsta flokks. Og verkin sem þegar eru komin eru ekkert slor. Eftir Louisu Matthíasdóttur, Kjarval, Ásgrím, Þorvald og Svavar svo einhverjir sé nefndir. Og Mugg: „Mögnuð mynd,“ segir Pétur og má segja að hún sé ekki síður merk í listsögulegu samhengi en Hvítasunnudagur Kjarvals sem sleginn var fyrir ári í Kaupmanna- höfn á rúmar 20 milljónir. „Margt er líkt með sögu þessara mynda. Þessi er máluð 1919. Báðar nánast hurfu þær í Danaveldi. Koma svo fram, önnur á uppboði hjá Bruun Rasmussen en hin hjá Gallerí Borg.“ jakob@frettabladid.is UPPBOÐ: MAGNAÐUR MUGGUR Á MÁLVERKAUPPBOÐI Pétur Þór slær myndir á ný PÉTUR ÞÓR Með merkan sýslumannshamar í hönd en hann gengst að nýju fyrir málverkauppboði eftir hremmingar. FRÉTTBLAÐIÐ/GVA Franska leikkonan Isild Le Besco hefur verið ráðin í hlutverk í kvikmynd Dags Kára, The Goodheart. Leikstjórinn var að vonum ánægður með að hafa landað Le Besco sem vafalítið á eftir að hafa góð áhrif á gengi kvikmyndar- innar í heimalandi hennar. Fjölþjóðlegur her leikara kemur því að gerð The Goodheart en auk Le Besco verða breski leikarinn Brian Cox og bandaríska ungstirnið Paul Dano í helstu hlutverkum. „Sögu- sviðið er náttúrlega New York þar sem ægir saman fólki af öllu þjóðerni,“ segir Dagur Kári en búið er að ákveða að hefja tökur þann 29. apríl, sama hvað gerist. Þær fara fram bæði í New York og Reykjavík en ekki liggur fyrir á hvorum staðnum verði byrjað. Le Besco er rísandi stjarna í franska kvik- myndaheiminum og hefur meðal annars tví- vegis verið tilnefnd til hinna virtu Cesar- verðlauna sem efnilegasta leikkona Frakka. Hún var útnefnd besta unga leikkonan á Feneyjahátíðinni fyrir tveimur árum fyrir frammistöðu sína í L‘Intouchable. - fgg Dagur Kári fær franska stjörnu RÍSANDI LEIKKONA Isild Le Besco er rísandi stjarna í Frakklandi og hefur tvívegis verið tilnefnd sem besta unga leikkona Frakka. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES. Eymar Gunnarsson og Silja Þorbjörnsdóttir reka saman fyrirtækið Reddarinn, sem eins og nafnið gefur til kynna sér um að redda hinu og þessu. Þau eru þúsundþjalasmiðir og ekkert verk er of lítið fyrir þau. Samkvæmt heimasíðunni geta þau meðal annars gert við bílinn, lagt parkett, skipt um ljósaperu, stússast, komið á óvart og búið til æfingaplan í ræktinni. „Við gerum allt. Ekkert verk er of lítið og ekkert er of stórt,“ segir Eymar. „Við byrjuð- um í febrúar og fókusinn var fyrst á litlu verkin, sem okkur fannst enginn vera að sinna. En svo vatt þetta fljótt upp á sig enda greinilega mikil þörf á öllum sviðum. Okkar markmið er að það sé bara nóg að hringja á einn stað – í okkur – og þá sé málinu reddað, sama hvað það er.“ Eymar segist hafa marga verkmenn á sínum snærum sem hann fær í verk ef hann og Silja ráða ekki við þau sjálf. „Við pössum okkur vel á því að fara ekki í verk sem við erum ekki hæf í. Sjálfur er ég verklaginn bifvélavirki og hef unnið við byggingarfram- kvæmdir en Silja er öll í bókhaldinu.“ Það óvenjulegasta sem Eymar hefur gert til þessa er að færa vinkonu viðskiptavinar morgunmat og kaffi. „Jú, stelpan var frekar hissa þegar ég, bláókunnugur maðurinn, mætti með þessa leynilegu sendingu til hennar. En maður reddar svona, og öllu náttúrulega, nema það sé eitthvað verulega afbrigðilegt.“ - glh Reddarinn reddar öllu SÁTTUR Dagur Kári stýrir fjölþjóðlegu liði leikara í nýjustu kvikmynd sinni, The Goodheart. EKKERT VERK OF LÍTIÐ Eymar Gunnarsson reddar málunum. VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8. 1 Paul Simon 2 Í Hlíðarfjalli 3 Til Flórens Það var ræðulið Menntaskólans í Reykjavík sem bar sigur úr býtum í úrslitaviðureign Morfís á laug- ardagskvöld. MR sigraði MH í skemmtilegri keppni, en 52 stig skildu liðin að. MH-ingurinn Birkir Blær var valinn Ræðumaður Íslands. Magnús Þorlákur Lúð- víksson, forseti skólafélagsins Framtíðarinnar í MR, var rogginn þegar hann greindi frá úrslitunum á heimasíðu félagsins: „MR hefur því endanlega sannað yfirburði sína með því að sigra í þrem stærstu keppnum ársins: Morfís, Gettu betur og MR- ví. Þetta afrek hefur enginn skóli unnið áður og mega MR-ingar vera gífurlega stoltir.“ Umboðsmaðurinn Einar Bárðarson heyr nú lokaorust- una í baráttu sinni fyrir því að Garðar Thor Cortes hljóti Brit-verð- launin í sígildri tónlist. Í tölvu- pósti sem Einar sendi fjölmiðlum í gær greinir hann frá því að í dag sé síðasti dagur netkosningar á slóðinni Classicalbrits.co.uk/nom- inations. Umboðsmaðurinn hvetur fólk til að senda póstinn áfram svo að sem flestir greiði íslenska tenórnum sitt atkvæði. Einar lætur til öryggis enskan texta fylgja með. „Til að senda gömlum pennavinum og nýjum vinum erlendis“ segir umboðsmaðurinn. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.