Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 25.05.2008, Blaðsíða 65
SUNNUDAGUR 25. maí 2008 17 fætur öðru þangað til ég var orðin örmagna. Ég hafði enga löngun til að vinna lengur og fannst ég ekki hafa neitt að segja. Á þessum tímapunkti gerðist ýmislegt í lífi mínu, pabbi minn dó og þremur vikum síðar kynntist ég mannin- um mínum og við eignuðumst tvö börn. Þá skildi ég að ég átti líf sem hafði ekkert með Hollywood að gera og alla þá neikvæðni sem bransanum fylgdi. Ég var mjög hamingjusöm heimavinnandi móðir í þrjú ár og var ekki viss um að ég myndi nokkurn tímann leika aftur. En þá hringdi Jon Favreau í mig og bauð mér hlut- verkið í Iron Man og mig hafði alltaf langað til að vinna með Robert Downey Jr. Sama með James Gray, mig hafði lengi lang- að að vinna með honum og að fá að leika á móti Joaquin Phoenix var svo rosalega gefandi. Núna fókusera ég á að vinna bara með því fólki sem mér finnst gefandi og langar til að vinna með. Það koma stundir sem ég er ekki með fjölskyldunni minni en í staðinn er ég að koma með eitthvað heim með því að fara út að vinna og þroska sjálfa mig. Ég fann að listamaðurinn í mér vildi komast aftur í að leika, það eru hæfileik- ar sem mér voru gefnir og núna ætla ég að nota þá vel og velja vel. Ég er líka miklu öruggari með sjálfa mig sem konu og listamann og tek að mér það sem mig langar til frekar en að reyna að þóknast öðrum. Ég passa líka að fjölskyld- an sé alltaf í fyrsta sæti.“ Börnin Moses og Apple Börnin þín heita mjög óvenjuleg- um nöfnum, hvaðan koma þau? „Maðurinn minn sagði að ef við eignuðumst stelpu vildi hann að hún héti Apple og mér fannst það mjög kúl. Það passar líka fullkom- lega við hana. Moses er mjög stórt nafn, pabbi minn var gyðingur og Moses var gyðinganafnið hans, mér fannst það bara fínt nafn á son minn.“ Alin upp í Hollywood Þú hefur verið viðloðandi kvik- myndir og leikhús frá því þú fædd- ist, pabbi þinn, Bruce Paltrow, var leikstjóri og Blythe Danner, mamma þín, leikkona. Hvaða áhrif hafa þau haft á þig? „Við bjuggum í Santa Monica í Kaliforníu og pabbi fór í vinnuna í dalnum þar sem hann leikstýrði og framleiddi. Ég kom aldrei svo mikið nálægt þeim heimi. Aftur á móti fór ég mikið með mömmu í leikhúsið og horfði á hana æfa leik- rit. Ég elskaði að vera í leikhúsinu og fylgjast með henni. Ég sat mjög upprifin tímunum saman og fylgd- ist með, ég fann hvað mamma varð full af orku og lífi þegar hún var á sviði og sem lítil stelpa hafði það mikil áhrif á mig. Hún var ótrúleg. Ég vildi bara verða eins og hún. Ég vildi aldrei verða leikkona til að vera fræg eða lifa því lífi sem því fylgir. Ég vildi bara vera eins og mamma. Þess vegna held ég að ég beri meiri virðingu fyrir starfinu og listinni sem slíkri, ég veit hvað þarf til að leika vel og ég á það mömmu minni að þakka.“ Austurlensk heimspeki Á tímabili fjallaði pressan mikið um erfiðleika í lífi þínu. Pabbi þinn dó, þú dróst þig í hlé og þið Chris voruð hundelt af ljósmyndurum. Það er kannski ekki alltaf auðvelt að vera stjarna í sviðsljósinu sama hvað gengur á í einkalífinu? „Það hafa verið erfiðleikar í mínu lífi en það sem lífið hefur kennt mér er að hræðast aldrei þjáninguna. Þjáningin hefur kennt mér svo mikið og fengið mig til að hugsa meira um og hlúa að and- legum gæðum. Að óttast það að eitthvað slæmt gerist er svo mikil sóun á orku, ég óttaðist alltaf að pabbi myndi deyja en svo gerðist það og þótt það sé enn þá erfitt þá kenndi það mér margt. Ég trúi ekki að neitt gerist af tilviljun, það er ástæða fyrir öllu sem ger- ist í lífinu, hvort sem það eru góðir hlutir eða slæmir. Það eru engin slys. Það sem gerist á að gerast og ég reyni að óttast ekk- ert. Mitt líf er í rauninni ekkert öðruvísi en annarra. Fólk lítur kannski á mig öðrum augum vegna þess að ég er fræg en í rauninni er ég bara manneskja eins og hver önnur. Ég trúi að við manneskjurnar séum allar tengd- ar og komnar frá sömu sálinni og séum að takast á við sömu vanda- málin og erfiðleikana í lífinu. Við erum öll eitt, og ég er jafn dauð- leg og hver annar.“ Þín heimspeki og sýn á lífið, hefur hún eitthvað með kabbala- trú að gera sem er svo vinsæl meðal Hollywood-stjarna í dag? „Ég hef áhuga á allri andlegri iðkun, hvort sem það er kabbala, búddismi, hindúismi eða súfismi. Ég les allt um andleg málefni og það sem er áhugavert er að allar þessar stefnur komast að sömu niðurstöðu og segja allar það sama. Ég hef mikinn áhuga á austur lenskri heimspeki og trú og les mikið um hana.“ Ný von í Obama Þú ólst upp í Bandaríkjunum en býrð núna bæði í New York og London. Breytir það sýn þinni á Bandaríkin að búa í Evrópu? „Það er í raun fullkomin blanda að búa í þessum tveimur borgum. New York verður stundum mjög krefjandi, sérstaklega með tvö börn og paparazzi-ljósmyndara. London er rólegri og meira af grænum svæðum fyrir börnin, London finnst mér fullkomin borg til að ala upp börn í. Ég er samt mjög stolt af því að vera amerísk. Það eru ótrúleg tækifæri sem fylgja því og mikið stolt. Fólk er ekki hrætt við að komast áfram og ná langt í lífinu og fólk ýtir hvað öðru áfram. Síðustu átta ár höfum við samt unnið mikinn alþjóðlegan skaða og misst trú- verðugleika í heiminum, það að búa í New York hálft árið þýðir að ég er stöðugt að verja Bandaríkin. Það verður mjög mikið og erfitt starf að hreinsa upp allan skað- ann sem George Bush hefur valdið. En góðu fréttirnar eru þær að það er raunveruleg von í Obama, hann er ótrúlegur hugs- uður og akkúrat það sem Banda- ríkin þurfa. Bara hugmyndin um að Bandaríkin geti í dag kosið for- seta sem heitir Barack Hussein Obama er einstaklega ánægju- legt. Ég held að það séu skilaboðin sem við þurfum að senda heimin- um og ég er mjög vongóð um að hann vinni.“ H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 0 6 5 Skráning er hafin fyrir haustönn 2008 www.opinnhaskoli.hr.is OPINNHÁSKÓLI Símennt HR Boðið er upp á hagnýt námskeið á háskólastigi samhliða vinnu sem metin eru til eininga í samvinnu við deildir Háskólans í Reykjavík. Námskeiðin eru opin þeim sem vilja auka samkeppnishæfni sína og bæta við sig þekkingu án þess að fara í fullt nám. Námskeiðin henta þeim sem stefna á nám á háskólastigi og jafnframt þeim sem þegar hafa lokið háskólanámi og hafa áhuga á að ná sér í meiri þekkingu. Eftirfarandi eininganámskeið verða í boði á haustönn 2008: Viðskiptadeild • Markaðsfræði • Stjórnun • Viðskiptaenska • Viðskiptalögfræði • Viðskiptaspænska Kennslufræði- og lýðheilsudeild • Árangursríkir kennsluhættir • Íþróttastefnumótun og verkefnastjórnun • Stjórnun í íþróttum Lagadeild • Félagaréttur • Upplýsingatækniréttur Tækni- og verkfræðideild • Burðarþolsfræði – Tölvustudd hönnun Tölvunarfræðideild • Hugbúnaðarfræði • Stýrikerfi • Viðmótshönnun Nánari upplýsingar gefur Tinna Ösp Ragnarsdóttir í síma 599-6386, tinnao@ru.is. www.simennthr.is Vissir þú að... - Nátturulegur háralitur Gwyneth Paltrow er músabrúnn - Gwyneth Paltrow er dýrkuð af fatahönnuðum, sem segja hanna fædda til að klæðast fallegum fötum þar sem hún er há og grönn. - Hún og eiginmaður hennar Chris Martin, söngvari í Coldplay, eiga tvö börn, Apple og Moses. - Paltrow fylgir makróbíótísku matar æði, stundar jóga og pilat- es og er að eigin sögn með fóbíu fyrir sýklum. - Hún snæðir Þakkargjörðarmáltíð- ina á hverju ári með góðvinum sínum Steven Spielberg og eigin- konu hans Kate Capshaw. - Eftirlætisdrykkir hennar eru Guinness-bjór og rauðvín. - Paltrow er gyðingatrúar og er komin af frægum pólskum rabb- ína, David HaLevi Segal frá Kraká.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.