Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 49
LIFI ÞRÓTTUR
Þrusu Þróttarar og bráðskemmtilegir Blikar
í margslungnum leik í Laugardalnum kl. 20 í kvöld
Grillvagninn frá
Þessi ósyfjaða verslunarkeðja lætur sér ekki nægja að vera helsti styrktaraðili Þróttar heldur
splæsir líka pylsum á mannskapinn. En munið bara að pylsupottinum verður skellt aftur korteri
fyrir leik svo hvernig væri nú bara að mæta tímanlega?
Mark frá miðju taka lýsi, taka lýsi oleioleioleioleiolei
Völdum áhorfendum gefst nú færi á að skora frá miðju - nokkrum fyrir leik og öðrum í hálfleik. Verðlaunin í
þessum heimaleik eru frá Lýsi. Þeim sem tekst að senda knöttinn í mark í loftinu, fá svo annað tækifæri á
síðasta heimaleik Þróttar því þar verður keppt til þrautar um sigurvegara og verðlaunin vegleg.
Lýst er eftir Þrótturum
Þegar síðast sást til, fór af vellinum fjöldi manna að meðaltali
meðalmenn á hæð, uppáklæddir eins og vera ber en svolítið súrir.
Við minnum þessa félaga okkar á, að hafi verið ástæða til að vera
súr þann daginn, þá er löngu búið að kvitta fyrir það og Þróttur á
fínni siglingu í úrvalsdeild.
Í engri sérstakri röð koma þessir menn upp í kollinn og eru þeir, sem vita um ferðir þeirra,
beðnir um að taka þá með á völlinn.
Koma svo:
Steini Gunn, Tryggvi Geirs, Óli Morthens, Steini Snædal, Siggi Pé, Siggi spíra, Diddi Palli Ólafs, Þormóður og Siggi Sveins, Helgi Gunn og
Gunni bróðir hans, Haukur Hafsteins, Haukur Nikk, Hallur Baldvins, Tommi Jönu, Hrossagrjóni og Goggi, Höddi, Pétur æskuvinur, Benni og
Höddi, Jón eldhúsrúlla, Gunni Skapta, Tóti te, Brilló, FréttaBenni og LýsisDolli, Gummi Erlings, Nikki höttur, Kristján (hvorki séð né heyrt)
Kristján Gísla, Deidó, Siggi Gunn, Hilli og Óli, Gísli Jóns, Gummi Kærn, Svenni, bróðir Evu og félagar hans, Gunni Árna, Valdi, Leifur og aðrir
blakarar, Hafliði, Jói Fel og aðrir bakarar, Jörgen, Dóri rakari og aðrir rakarar.......Þegar þessari lauslegu upptalningu er lokið veltir maður
svo fyrir sér hvar kvenfólkið sé því Þróttur er talinn vera með eitt alkarlmannlegasta knattspurnuliðið á Norðurlöndum.
Þeir aðilar sem standa sérstaklega á bakvið heimaleikjaátak Þróttar á þessum leik eru:
Tvö áræðin lið undir stjórn köttaðra þjálfara, sem kalla ekki allt ömmu sína þegar stilla á upp fótboltaliði.
Hvernig á svona leikur að geta verið annað en skemmtilegur?