Fréttablaðið - 28.07.2008, Page 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú bráðlega staðið stýrisvaktina í
heilan mannsaldur svo að engan
þarf að undra þótt fæturnir gerist
fúnir. Eftir því sem valdatímabil
Flokksins lengist fara fleiri og
fleiri að efast um að samfélaginu
sé hollt að því síðara sé stýrt öllu
lengur af hinu fyrra.
ÞJÓÐIN hefur þolað Flokknum
margt af tveimur ástæðum. Í
fyrsta lagi stóð hann jafnan vakt-
ina hér á árum áður þegar efna-
hagsmálin voru annars vegar. Og í
annan stað eru dugmiklir íhalds-
flokkar nauðsynlegt bætiefni í
lýðræðisþjóðfélögum - þótt óhollt
sé að lifa á bætiefnum eingöngu.
En nú dansa þau saman deyfðin og
ráðleysið. Eina lífsmarkið er
þegar dómsmálaráðherrann
gjammar að forsætisráðherranum
og vill taka upp evru en lýsa frati
á Evrópusambandið sem á höfund-
arréttinn að þeirri mynt.
„VALD spillir“ er grundvallarlög-
mál sem gildir um bæði stjórn-
málaflokka og manneskjur. Löng-
um valdaferli fylgir hroki,
hugmyndakreppa og andlegur
doði. Öll þjóðin þekkir nýleg dæmi
um stjórnmálamenn sem voru
fyrst efnilegir og síðan öflugir en
sátu of lengi og enduðu sem nátt-
tröll. Sama á við um stjórnmála-
flokka. Endurnýjunarkrafti
Flokksins er best lýst með því að
rifja upp að sá draumaprins sem
Flokkshestar trúa að eigi að vekja
Flokkinn af Þyrnirósarsvefngöngu
heitir Bjarni Benediktsson.
VAR einhver að tala um valdaapp-
arat ætta- og fjármagnstengsla?
Var einhver að tala um endurtekið
efni? Var einhver að tala um meira
af því sama? Ber það ekki vott um
kulnun í starfi og forneskjuleg
viðhorf þegar Flokknum dettur
það helst í hug í efnahagskreppu
að kýta um hvort Bjarni II sé rétt-
borinn til að erfa veldi Bjarna I -
hversu huggulegur maður sem
Bjarni krónprins kann að vera?
Og núna er ýmislegt annað meira
aðkallandi fyrir íslensku þjóðina
en að bíða eftir því að Flokkurinn
leysi forystuvandamál sín. Til
dæmis að leysa Flokkinn undan
forystuhlutverkinu og gefa honum
svigrúm til að leysa innri vanda-
mál sín í næði. Vonandi er utanrík-
isráðherrann ekki of upptekin af
sjálfri sér og gloríu embættisins
til að hugsa um hvað sé Flokknum,
þjóðinni og meira að segja Sam-
fylkingunni fyrir bestu.
Kulnun í starfi
Í dag er mánudagurinn 28. júlí,
211. dagur ársins.
4.23 13.34 22.43
3.48 13.19 22.47