Fréttablaðið - 31.07.2008, Síða 30

Fréttablaðið - 31.07.2008, Síða 30
[ ] Metaðsókn er í þjónustu frístundamiðstöðvarinnar Guf- u nesbæ í Grafarvogi þar sem alls konar spennandi afþreying er í boði. „Þetta er algjört metsumar í Gufunesbæ. Að meðaltali komu tuttugu og þrír á dag í júní í fyrra en í ár voru það um sextíu manns,“ upplýsir Þorsteinn V. Einarsson, leiðbeinandi í frí- stundamiðstöðinni Gufunesbæ í Grafarvogi. „Mikill fjöldi fólks hefur komið á sumrin og þá sér- staklega núna. Í sumar hefur fólk verið nánast allan daginn á svæð- inu í folfi, klifri og blaki.“ Frístundamiðstöðin í Gufunes- bæ hefur verið rekin í um það bil tíu ár, bæði á sumrin og veturna, en Þorsteinnn telur ástæðu auk- innar aðsóknar þá að sífellt fleiri séu að uppgötva svæðið og þá fjölbreyttu afþreyingu sem þar er í boði. „Aðstaðan á svæðinu hefur vaxið alveg gífurlega á undan- förnum árum. Afþreyingarmögu- leikum fer sífellt fjölgandi,“ segir Þorsteinn. „Hér er strand- blakvöllur, sem settur var upp síðastliðið sumar, átján holu folf- völlur, sem líklega er sá eini sinn- ar tegundar á höfuðborgarsvæð- inu, og tólf metra hár klifurturn í gömlum súrheysturni. Hér er líka útigrill á pallinum rétt við klifurturninn, hjólabrettapallar og svo fótboltavöllur rétt hjá.“ Inntur eftir því hverjir sæki þá afþreyingu sem Gufunesbær býður upp á, segir Þorsteinn það helst vinnuskólahópa og hópa á vegum ÍTR. „Ég get ekki sagt að hingað komi mikið af vinahópum eða afmælishópum. Ég held hreinlega að fólk utan ÍTR viti ekki af þessu.“ Hann bætir við að allir séu þó velkomnir. „Það eina sem þarf að gera er að hringja í 520-2300 og panta tíma.“ martaf@frettabladid.is Algjört metsumar Þorsteinn V. Einarsson frístundaleið- beinandi segir að strandblakvöllur hafi verið settur upp í Gufunesbæ síðasliðið sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Boðið er upp á klifur í tólf metra háum súrheysturni. MYND/ÆGIR ÞÓR STEINARSSON Sólarvörn er nokkuð sem allir ættu að hafa við höndina í veðurblíðunni sem leikur við okkur þessa dagana. Golfbílar Verð kr 599.000 Með Trojan rafgeymum frá USA Rafskutlur Verð kr.149.000 Með 2 körfum og stafahaldara Golfhjól Verð kr 156.000 2 gerðir Henta einnig mjög vel til ýmisa nota Heildverslun Lónsbraut 6 • 220 Hafnarfjörður Iceland • Símar 866-6610 og 893-3347 • www.hberg.is • E mail hberg@hberg.is Visa M asterca rd til 3 6 mán Síðustu forvör að ná sér í rafskuttlu og gólfbíla á þessu frábæra verði Verð 499 þúsund Súpersól til Salou 8. ágúst í viku frá kr. 49.990

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.