Fréttablaðið - 22.08.2008, Blaðsíða 42
t íska
ferskleiki dagsins í dag
NÝ TEGUND AF NAGLALAKKI
Nú er komin á markaðinn ný tegund af naglalakki frá Lancome. Lakk-
ið sjálft kemur í litlum krukkum, en með fylgir lítið plastáhald sem notað
er til að dreifa lakkinu yfir nöglina. Með áhaldinu þarf aðeins
eina til tvær strokur á hverja nögl, ekkert fer út fyrir og lakkið
þornar á örskotsstundu.
8 • FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 2008
Svört, hnésíð Dúnúlpa,
með prjónaermum og kraga.
„Við erum að opna með allt nýtt,
bæði haust- og vetrarlínu, en svo
koma nýjar vörur vikulega fram
að jólum,“ segir Ragnheiður Ósk-
arsdóttir, eigandi og framkvæmda-
stjóri Ilse Jakobsen, en í dag verð-
ur verslunin opnuð á nýjum stað,
í verslunarkjarnanum í Litlatúni
í Garðabæ. „Ég sá Ilse Jakobsen-
vörurnar úti í Danmörku á sínum
tíma og fannst merkið mjög flott,
í kjölfarið opnaði ég verslunina
fyrir þremur árum á Garðatorgi,
sem varð fyrir valinu þar sem ég
bý rétt hjá. Þetta átti aðeins að
vera smá föndur til að byrja með,
en við fengum æðislegar móttökur
strax frá fyrsta degi. Vörumerki
Ilse hefur líka verið að stækka ört
á síðustu árum svo nú erum við
að stækka við okkur,“ útskýr-
ir Ragnheiður, en Ilse Jak-
obsen er ein af þremur
vinsælustu skóhönn-
uðum í Skandinavíu.
Verslanir vöru-
merkisins eru nú
orðnar tuttugu
talsins í Skandin-
avíu og í Evrópu
og við skólínuna
hafa bæst föt,
töskur og fylgi-
hlutir. „Nú
erum við að fá
aðra fatalín-
una sem hún
hannar. Bol-
irnir frá henni
eru mjög vin-
sælir, en svo
eru skórnir og stíg-
vélin sívinsæl,“ segir
Ragnheiður að lokum.
Ilse Jakobsen flytur í nýtt húsnæði í Garðabæ:
Opna nýja
og stærri verslun
Ragnheiður Ólafsdóttir, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Ilse Jakobsen, ásamt dóttur
sinni, Ástu Ólafsdóttur verslunarstjóra.
LEYFÐU SUMRINU AÐ LIFA INN Í HAUSTIÐ
Vincenzo Baroney-ilmur, sturtusápa og
body lotion er nýjasta línan
í Pier bath & body deild-
inni. Vörurnar eru fáan-
legar í vanillu, kókos og
mangó og eru tilvaldar
fyrir þá sem kjósa nátt-
úrulegan ilm. Þeir sem
vilja sitt lítið af hvoru er
hægt að blanda lykt-
unum, enda passa þær
einstaklega vel saman
og útkoman verð-
ur skemmtilega exótísk.
Freistandi vörur á frá-
bæru verði fyrir þá sem
vilja halda í ferskleika
sumarsins.
Leðurlakkstígvél með svartri
teygju sem gefa eftir við kálf-
ann, einnig úr haustlínunni.
Nylon-taska, með lakkhöldum
og hólfum að framan er partur af
töskulínu Ilse.
Handgerðu gúmmístígvélin eru
þekktustu skór Ilse. þau eru
án gerviefna og fóðruð að
innan með ull. stígvélin
koma í öllum litum, bæði
há og lág og án reima.