Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 64
40 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Fyrstu rafljósin voru kveikt á Íslandi á þess- um degi árið 1904 að undirlagi Jóhannesar Reykdal sem setti upp fyrstu rafmagnsveituna í Hafnarfirði. Jóhann- es hafði áður notað lækinn í Hafnarfirði til að knýja trésmiðju, en hann var mennt- aður trésmiður og hafði kynnst virkjunum þegar hann heimsótti systur sína í Noregi. Hann vildi þó nýta lækinn betur og keypti rafal í Noregi. Þá hóf hann samstarf við Halldór Guðmundsson, fyrsta íslenska raffræðinginn, sem var nýkominn úr námi frá Þýskalandi, og trésmiðinn Árna Sigurðsson, sem lagði raflagnir. Virkjunin tók til starfa 12. desem- ber 1904 og sama dag voru kveikt ljós í fimmtán húsum í Hafnarfirði og kveikt á fjórum götuljósum. Meðal þeirra húsa sem nutu birtunnar voru barnaskólinn og Góð- templarahúsið við Suðurgötu. Jóhannes lét þó ekki þar við sitja heldur reisti nýja rafstöð á Hörðuvöllum. Sú rafstöð framleiddi 37 kW sem var nóg rafmagn fyrir allan Hafnarfjörð. ÞETTA GERÐIST: 12. DESEMBER 1904 Fyrstu rafljósin kveikt MERKISATBURÐIR 1901 Marconi-félaginu tekst að senda útvarpsskeyti yfir Atlantshafið í fyrsta skipti. 1914 Dow Jones-vísitalan fell- ur um 24,39 prósent sem var þá mesta prósentu- lækkun á einum degi frá upphafi vísitölunnar. 1947 Björgunarafrekið við Látrabjarg er unnið og 12 skipverjum úr togaranum Dhoon er bjargað. 1963 Kenía hlýtur sjálfstæði frá Bretlandi. 1987 Hótel Ísland er tekið í notkun. 1990 Gísli Sigurðsson læknir, sem hafði verið gísl Íraka í Kúveit í fjóra mánuði, kemur aftur heim. Bernharð Laxdal, elsta starfandi kven- fataverslun landsins, fagnar 70 ára af- mæli í ár. Verslunin var stofnuð á Ak- ureyri árið 1938 af Bernharð Laxdal klæðskera en flutti í Kjörgarð, fyrsta íslenska stórmarkaðinn, þegar hann opnaði í kringum 1960. „Verslunin var á annarri hæð Kjör- garðs og muna margir eftir rúllustig- anum upp á efri hæðina en hann var sá fyrsti sinnar tegundar og þótti merki um nýja tíma,“ segir Guðrún R. Axels- dóttir sem keypti verslunina með eig- inmanni sínum, Einari Eiríkssyni, árið 2001. Hún hafði fram að því verið í eigu Laxdal-fjölskyldunnar. „Þetta var stærðarinnar verslun og ég held að hér hafi um tíma verið í kringum sjö afgreiðslustúlkur. Lengi vel var megináhersla á breitt kápuúrv- al og áttu margar stúlkur fermingar- kápur úr versluninni, þar á meðal ég,“ upplýsir Guðrún. Árið 1982 flutti verslunin í þá ný- byggt húsnæði við Laugaveg 63, þar sem hún er enn í dag. Enn er rík áhersla lögð á vandaðar kápur og yf- irhafnir en auk þess dragtir, spariföt og almennan klæðnað. Í dag starfa þar fjórar konur og selja vandaðan kven- fatnað meðal annars frá þýska fram- leiðandanum Gery Weber. „Viðskipta- vinir okkar eru flestir frá 35 ára og upp úr en þó er allur gangur á því. Við erum með allt frá mjög litlum upp í stórar stærðir og fjölbreytt úrval,“ segir Guðrún og bætir því við að á síð- asta ári hafi verslunin fengið andlits- lyftingu þegar ráðist var í stækkun og gagngerar breytingar á innréttingum. Guðrún segir verslunina eitt af kennileitum Laugavegarins, ásamt verslunum á borð við Guðstein og Líf- stykkjabúðina, og að það sé ánægju- legt hversu vel þessum verslunum hafi vegnað. Vörumerki verslunarinnar hefur einnig staðist tímans tönn. „Magnús Pálsson listamaður á heiðurinn að því en hann var góðvinur Vigdísar Finn- bogadóttur forseta sem var vinkona Þyríar Laxdal, fyrrverandi eiganda verslunarinnar.“ Merkið, sem sýnir konu í síðri kápu með regnhlíf, er sí- gilt og klassískt og lýsandi fyrir úrval- ið í versluninni. vera@frettabladid.is BENHARÐ LAXDAL: ELSTA STARFANDI KVENFATAVERSLUN LANDSINS 70 ÁRA Eitt af kennileitum miðbæjarins Guðrún R. Axelsdóttir ásamt starfsstúlkunum; þeim Hjördísi, Önnu og Rannveigu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FRANK SINATRA FÆDDIST ÞENN- AN DAG ÁRIÐ 1915 „Ég ætla að lifa þangað til ég dey.“ Söngvarinn Frank Sinatra lést 14. maí 1998 tæplega 83 ára að aldri. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Páll Helgason frá Kaldárholti, lést á Dvalarheimilinu Lundi á Hellu þann 9. desember. Jarðsett verður frá Árbæjarkirkju laugardaginn 13. desember kl. 14.00. Þorbjörn Helgi Pálsson Sóley Pálmadóttir Jóhanna Ósk Pálsdóttir Viðar Þór Ástvaldsson Anna Lára Pálsdóttir Ragnheiður Pálsdóttir Þórarinn B. Þórarinsson Árni Pálsson Elín Grétarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Kristinn Kristbjörn Bjarnason bifreiðastjóri, Grundargerði 13, Reykjavík, er látinn. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ástvinir þakka vináttu, hlýhug og kærleika. Aðstandendur. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ágústína Guðrún Ágústsdóttir Fellsmúla 2, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þann 8. desember. Gísli Baldur Jónsson Kristrún B. Jónsdóttir Magnús Sigurðsson Romeo D. Rosario Ástkær systir mín og frænka okkar Vigfúsína Bjarnadóttir Hrafnistu, Reykjavík, áður Vífilsgötu 20, Reykjavík, lést 10. desember. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. desember, kl. 11. Fyrir hönd annarra ættingja, Ingibjörg Bjarnadóttir Elsa Margrét Níelsdóttir Guðmundur Elías Níelsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafað- ir, afi og langafi, Bjarni Sigurðsson bifreiðastjóri og ökukennari, Heiðargerði 56, Reykjavík, er látinn. Útförin auglýst síðar. Kristín Ólafsdóttir Fríða Bjarnadóttir Kristín Bjarnadóttir Ólafur Bergmann Bjarnason Ólafía Aðalsteinsdóttir afa- og langafabörn. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, Lára Kristín Sigurðardóttir Laugateigi 54, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 9. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. desember klukkan 13.00. Skúli Þór Magnússon Guðrún Jóhannesdóttir Árni Magnússon Jóhanna Magnúsdóttir Óskar Margeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.