Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 12.12.2008, Blaðsíða 78
54 12. desember 2008 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Körfuknattleikskonan Birna Valgarðsdóttir hjá Keflavík hefur verið sjóðandi heit upp á síðkastið og nú skorað yfir þrjátíu stig í fjórum leikjum í röð með Íslandsmeisturunum, þremur leikj- um í Iceland Express-deildinni og einum í Subway-bikarnum. Birna hefur jafnan verið þekkt í gegnum tíðina sem ein fremsta þriggja stiga skytta deildarinnar og íslenska landsliðsins en upp á síðkastið hefur hún verið að sinna nýju hlutverki hjá Keflavík. „Jonni [Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur] vaknaði bara upp einn góðan veðurdag og ákvað að láta mig spila undir körfunni í stað þess að vera fyrir utan í skotbakvarðastöðunni eins og vanalega. Þetta hefur samt gefist bara nokkuð vel hingað til og vonandi heldur það bara áfram. Það er alla vega gaman að fá að prófa þessa stöðu en ég vil nú meina að ég sé ekki með neinar svaka hreyfingar inni í teignum,“ segir Birna og hlær við. Keflavík er í þriðja sæti deildarinnar sem stendur en sýndi sannkallaði meistara- takta í 62-90 stórsigri á KR á dögunum. „Á okkar degi getum við verið alveg þvílíkt gott lið en við erum stundum sjálfum okkur verstar og spilum þá alveg hörmulega. Mér finnst samt vera mikill stígandi í okkar leik upp á síðkastið og mórallinn í liðinu er frábær og einhvern veginn allt jákvætt í kringum liðið. Við lentum reyndar í smá meiðslavandræðum en þá þjöppuðum við okkur bara saman og fleiri leikmenn fóru að axla ábyrgð. Ég held að þetta sé bara allt að smella saman og þær breytingar sem gerðar hafa verið á leikskipulaginu eru smátt og smátt að skila sér. Svava [Ósk Stefánsdóttir] hefur til að mynda staðið sig frábærlega í leikstjórnandahlutverkinu og þetta er allt að hallast í jákvæðu áttina hjá liðinu,“ segir Birna. Birna telur annars Iceland Express-deildina vera afar jafna skemmtilega í ár. „Deildin í ár er mjög skemmtileg og ef til vill jafnari en í fyrra. Núna virðast allir geta unnið alla og það þarf að hafa virkilega fyrir hverjum einasta sigri og það er bara mjög jákvætt finnst mér,“ segir Birna að lokum. BIRNA VALGARÐSDÓTTIR: HEFUR SPILAÐ FRÁBÆRLEGA Í NÝJU HLUTVERKI HJÁ KEFLAVÍK UPP Á SÍÐKASTIÐ Er nú ekki með neinar svaka hreyfingar í teignum > Blikar á leið til WBA Tveir af efnilegri leikmönnum knattspyrnuliðs Breiðabliks, Finnur Orri Margeirsson og Guðmundur Kristjánsson, héldu í morgun til Englands þar sem þeir eru á leið til enska úrvals- deildarfélagsins WBA. Þar verða þeir til reynslu í vikutíma. WBA veitir ekki af aðstoð enda situr liðið í neðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með tólf stig eftir sextán leiki. Verður áhuga- vert að sjá hvort Blikastrákarnir nái að slá í gegn hjá félaginu. N1-deild karla: Valur-FH 29-20 (12-11) Mörk Vals (skot): Baldvin Þorsteinsson 9 (12), Arnór Þór Gunnarsson 7/3 (10/3), Elvar Friðriks son 3 (8), Hjalti Gylfason 3 (3), Heimir Örn Árna son 2 (9), Hjalti Pálmason 1 (5), Ingvar Árnason 1 (3), Markús Máni Michaelsson 1 (6), Orri Freyr Gíslason (2), Sigfús Páll Sigfússon (3). Varin skot: Ólafur H. Gíslason 15 (35/1) 43%, Ingvar Guðmundsson 1 (1). Hraðaupphlaup: 16 (Baldvin 7, Hjalti G. 3, Elvar 2, Markús, Ingvar, Heimir, Arnór). Fiskuð víti: 3 (Hjalti P., Heimir, Ingvar). Utan vallar: 8 mín. Mörk FH (skot): Jónatan Jónsson 4 (4), Aron Pálmarsson 4 (11), Guðmundur Pedersen 3/1 (7/1), Sigurður Ágústsson 3 (4), Örn Ingi Bjarkason 2 (9), Reynir Jónasson 1 (3), Jón Helgi Jónsson 1 (1), Hjörtur Hinriksson 1 (2), Ólafur Guðmundsson 1 (11). Varin skot: Magnús Sigmundsson 13 (51/2 ) 25%. Hraðaupphlaup: 5 (Guðmundur, Hjörtur, Örn, Ólafur, Aron). Fiskuð víti: 1 (Guðmundur). Utan vallar: 6 mín. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson, arfaslakir. HK-Akureyri 25-21 (14-10) Mörk HK: Valdimar Þórsson 8, Gunnar Jónsson 5, Ásbjörn Stefánsson 4, Ragnar Njálsson 3, Einar Ingi Hrafnsson 2, Ragnar Hjaltisted 1, Sigurgeir Árni Ægisson 1, Jón Björgvin Pétursson 1. Mörk Akureyrar: Jónatan Þór Magnússon 10/5, Hreinn Hauksson 3, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Andri Snær Stefánsson 2, Anton Rúnarsson 2, Þorvaldur Þorvaldsson 1. Víkingur-Haukar 22-25 (12-16) Mörk Víkings: Sverrir Hermansson 5, Einar Örn Guðmundsson 4, Þröstur Þráinss. 4, Sveinn Þorgeirsson 3, Davíð Georgssson 2, Hreiðar Haraldsson 2, Davíð Ágústsson 1, Hjálmar Þór Arnarson 1. Mörk Hauka: Elías Már Halldórsson 7, Einar Örn Jónsson 4, Gísli Jón Þórisson 3, Kári Kristján Kristjánsson 3, Andri Stefan 2, Gunnare Berg Viktorsson 2, Stefán Rafn Sigurmannsson 2, Freyr Brynjarsson 1, Arnar Jón Agnarsson 1. Subway-bikar karla: ÍR-Tindastóll 69-56 Stig ÍR: Hreggviður Magnússon 31, Ómar Sævars son 11 (14 frák.), Steinar Arason 11, Sveinbjörn Claessen 7, Eiríkur Önundarson 6, Davíð Fritzson 2, Þorsteinn Húnfjörð 1. Stig Tindastóls: Helgi Rafn Viggósson 18 (13 frák.), Ísak Einarsson 17, Svavar Birgisson 15, Sören Flæng 3. Keflavík-Höttur 107-58 Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 17, Gunnar Stefánsson 16, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 14, Sverrir Þór Sverrisson 11 (6 stoðs.), Jón Hafsteinsson 9, Jón Gauti Jónsson 9, Vilhjálmur Steinarsson 9, Guðmundur Gunnarsson 6, Almar Guðbrandsson 5, Þröstur Leó Jóhannsson 5, Eldur Ólafsson 4, Elvar Þór Sigurjónsson 2. Stig Hattar: Jerry Cheves 23, Brian Hill 15, Svein björn Skúlason 6, Sturla Höskuldsson 6, Ragnar Ólafsson 4, Hafliði Magnússon 2, Björgvin Karl Gunnarsson 2. Skallagrímur-Valur 79-82 Stig Skallagríms: Igor Beljanski 26 (13 frák., 5 stoðs.), Sigurður Þórarinsson 15, Landon Quick 14, Trausti Eiríkson 12, Sveinn Davíðsson 7, Bjarne Ómar Nielsen 5. Stig Vals: Hjalti Friðriksson 27, Steingrímur Ing ólfsson 19, Jason Harden 14, Hörður Hreiðarsson 9, Gylfi Geirsson 6, Guðmundur Kristjánsson 4, Kjartan Orri Sigurðsson 3. Subwaybikar kvenna: Haukar-KR(b) 118-45 Stigahæstar: Kristrún Sigurjónsdóttir 22, Guð björg Sverrisdóttir 18, María Lind Sigurðardóttir 14, Helena Hólm 13, Bryndís Hreinsdóttir 11, Sla vica Dimovska 11, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 9, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 9 - Hanna Björg Kjartansdóttir 17, Kristín Björk Jónsdóttir 8, Anna Svandís Gísladóttir 7. Fjölnir-Grindavík(b) 86-49 Stigahæstar: Ashley Bowman 30, Birna Eiríks dóttir 15, Efemía Sigurbjörnsdóttir 12, Bergdís Ragnarsdóttir 12 - Stefanía Ásmundsdóttir 14, Sandra Guðlaugsdóttir 12. ÚRSLIT KÖRFUBOLTI ÍR, Keflavík og Valur komust áfram í 8 liða úrslit Suw- bay-bikars karla í körfubolta í gær og bættust þar með í hóp Grindavíkur, Hauka og KR sem komust áfram í fyrrakvöld. Tveir leikir eru eftir í 16 liða úrslitun- um, Njarðvík mætir Þór í kvöld og ÍBV tekur á móti Stjörnunni á laugardaginn. ÍR-ingar hafa unnið alla sjö leiki sína í deild og bikar eftir að Hreggviður Magnússon sneri aftur úr meiðslum og ekki að ástæðulausu. Hreggviður var gjörsamlega óstöðvandi í 69-56 bikarsigri ÍR á Tindastól í Selja- skóla í gær. Hreggviður skoraði 31 stig í leiknum þar af sjö stig í röð þegar ÍR-ingar tóku frum- kvæðið í leiknum í lok þriðja leikhluta. ÍR breytti þá stöðunni úr 38-38 í 50-43 og eftir það var á brattann að sækja hjá Stólunum, sérstaklega hjá Alan Fall sem var stigalaus á 32 mínútum og klikkaði á öllum 10 skotum sínum. Leikurinn var mikill baráttu- leikur og það var lítið skorað og því munaði enn meira um fram- lag Hreggviðs sem skoraði 20 stigum meira en næsti maður í ÍR-liðinu. Helgi Rafn Viggósson og Ísak Einarsson voru öflugir í liði Tindastóls en liðið lék án Darrel Flake sem er meiddur. 1. deildarlið Valsmanna sló úrvalsdeildarlið Skallagríms út úr bikarnum í Borgarnesi í gær eftir spennandi leik. Valur vann 82-79 þar sem Jason Harden var hetja Hlíðarendapilta og setti niður sex síðustu stig liðsins á síðustu 47 sekúndum leiksins. Jason endaði með 14 stig en Hjalti Friðriksson átti stórleik og skoraði 27 stig. Landon Quick skoraði 14 stig í sínum fyrsta leik með Skallagrími en stigahæstur var þjálfarinn Igor Beljanski með 26 stig. Keflvíkingar unnu öruggan 49 stiga sigur á 1. deildarliði Hattar þar sem sjö leikmenn liðsins skor- uðu á bilinu 9 til 17 stig. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 17 stig og Gunnar Stefánsson var með 16 stig. - óój ÍR-ingar unnu sinn sjöunda leik í röð og slógu Tindastól út úr Subway-bikarnum í Seljaskólanum: Stólarnir réðu ekkert við Hreggvið í gær EKKERT GEFIÐ EFTIR Ísak Einarsson í baráttu við Þorstein Húnfjörð og Davíð Fritzson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HANDBOLTI Valsmenn sýndu mátt sinn gegn FH-ingum á Hlíðarenda í gær. Þeir tóku aðalmenn FH úr sambandi og spiluðu á styrkleika sínum sem er hraður leikur og FH-ingar áttu ekkert svar í síðari hálfleik eftir fínan fyrri hálfleik. Valsmenn byrjuðu varnarleik- inn á því að mæta Aroni Pálmars- syni og Ólafi Guðmundssyni langt úti á vellinum. Þeir tóku þá ekki bara langt út á velli heldur reyndu að koma þeim úr jafnvægi með alls konar „böggi“, óþarfa hrind- ingum og í raun almennum leið- indum eins og einhver sagði. FH-guttarnir létu þessa taktík Vals ekki slá sig út af laginu held- ur spiluðu skynsaman, yfirvegað- an sóknarleik og voru duglegir að finna línumenn sína. FH-ingarnir spiluðu að sama skapi klassavörn og mikið fát var á sóknarleik Vals- manna. FH náði fjögurra marka forskoti, 2-6, eftir 11 mínútna leik. Valsmenn voru á þessum kafla afar pirraðir og létu mótlætið fara í taugarnar á sér. Þá sérstaklega Baldvin Þorsteinsson sem virtist oft á mörkum þess að missa stjórn á skapi sínu. Þeir róuðu sig loks- ins, fóru að spila yfirvegaðan sóknarleik og smám saman unnu þeir sig inn í leikinn. FH-ingar að sama skapi fóru að gera mistök í sókninni, köstuðu frá sér boltanum og fengu hraða- upphlaup í andlitið. Lokamínút- urnar voru skrautlegar þar sem hver furðudómurinn rak annan meðal annars. Valsmenn gáfu ekki eftir og Ingvar Árnason kom þeim yfir í fyrsta skipti í hálfleiknum rétt áður en blásið var til leikhlés. 12-11 fyrir Val í leikhléi. Þessi lokakafli hálfleiksins virt- ist gefa Valsmönnum kraft því þeir mætti grimmir til síðari hálf- leiksins og komust fljótt þrem mörkum yfir, 17-14. Á þeim tíma voru FH-ingar að kasta boltanum hvað eftir annað frá sér og var refsað grimmilega með hröðu upp- hlaupi. Þá tók Elvar Erlingsson, þjálfari FH, leikhlé og það virtist vera að skila sínu því FH skoraði tvö mörk í röð. Eftir það voru lausnirnar aftur á móti ekki fleiri hjá Hafnfirðing- um og miskunnarlausir Valsmenn hreinlega keyrðu yfir þá á fullu gasi allt til enda og nutu hverrar mínútu. Nokkur harka var í síðari hálfleik og þá voru það FH-ingar sem voru pirraðir. Þeir misstu yfirvegunina, létu Valsmenn pirra sig og eftirleikurinn æði auðveld- ur fyrir heimamenn. „Ég á víst að vera meiddur. Mig sárverkjar í öxlinni og var ekki bjartsýnn fyrir leik að geta spilað. Svo kemst maður bara í gírinn og gleymir öllu. Heimir gaf mér líka hitakrem sem á víst að deyfa hesta og það skilaði sínu. Ég fann ekki fyrir öxlinni,“ sagði brosmildur Valsari, Baldvin Þorsteinsson, eftir leikinn en hann fór gjörsam- lega hamförum í leiknum. Skoraði níu mörk og þar af sjö úr hraða- upphlaupum. Hann hefur þar með skorað átján mörk í síðustu tveim leikjum og það meiddur - í það minnsta að eigin sögn en einhver myndi halda að hann væri að blekkja miðað við spilamennsk- una. „Ég var að æsa mig upp í fyrri hálfleik til þess að komast í gírinn. Ég var ekkert reiður út í einn né neinn. Auðvitað tók ég fast á Aroni enda lagt upp með að stöðva hann en það var ekkert gróft,“ sagði Baldvin en Aron Pálmarsson var brúnaþungur eftir tapið. „Ég er alveg búinn að átta mig á því að það er tekið fast á mér og ætla ekkert að skýla mér á bakvið slaka frammistöðu með því eða einhverjum meiðslum. Ég viður- kenni að við vorum pirraðir og sú taktík gekk upp hjá þeim því miður,“ sagði Aron svekktur en Valsmenn héldu honum og Ólafi algjörlega niðri. Þegar þeir loks- ins fengu að skjóta voru þeir í engum takti og í raun búið að taka þá úr sambandi. „Við vorum til- búnir í þessa varnartaktík og það virkaði vel í upphafi en svo hætt- um við að gera þetta eins og lið. Þá er ekki von á góðu. henry@frettabladid.is Hlíðarendahraðlestin í hörkuformi Grimmir Valsmenn hreinlega keyrðu yfir hið unga lið FH á Hlíðarenda í gær og unnu glæsilegan sigur, 29-20. Valsmenn áttu erfitt uppdráttar framan af leik en í síðari hálfleik var aðeins eitt lið á vellinum. FH skoraði aðeins níu mörk í síðari hálfleik og hraðaupphlaupsmörk Vals í hálfleiknum voru alls tólf. Í HELJARGREIPUM Besti maður vallarins, Baldvin Þorsteinsson, stöðvar hér Ólaf Guð- mundsson sem var pakkað saman en hann nýtti aðeins eitt af ellefu skotum sínum í leiknum. Baldvin skoraði níu mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.