Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 18.08.1982, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982 íþróttir Svartur risi til UMFN ■ íslandsmeistarar UMFN í körfu- knattleik hafa ráðid til sín bandarískan leikmann fyrir komandi keppnistímabil, og mun hann jafnframt sjá um þjálfun liðsins. Leikmaður þessi heitir Alec Gilbert, og er kappinn sem er blökkumaður, 2.05 metrar á hæð. Hann hefur leikið með Indiana State University og var í byrjunarliði skólans þegar liðið komst í úrslitin í háskólakcppninni. Hann er geysilega sterkur undir körfunum, hirðir mikið af fráköstum og skorað grimmt. Eins og fram hefur komið mun Tim Dwyer leika með Val í vctur, ÍR-ingar verða án bandarísks leikmanns en hafa ráðið til sín bandarískan þjálfara. Tim Higgings verður áfram með ÍBK. Ekkert hefur hinsvcgar frést úr herbúð- um Fram og KR varðandi crlenda leikmenn eða þjálfara í vctur. gk-- ■ Valsmenn fagna hér sigri yfir KR-ingum fyrir þremur árum. Nú er Tim Dwyer væntanlegur til Valsmanna að nýju. örugg forusta hjá Víkingum í 1. deild ■ Víkingar tryggðu í gærkvöldi enn frekar stöðu sína í efsta sæti 1. deildar er þeir sigruðu Vestmannaeyinga á Laugardalsvelli með einu marki gegn engu. Þar með hafa þeir hlotið 19 stig og eru þremur stigum á undan næsta liði sem er KR með 16 stig. Víkingarnir voru öllu sprækari í fyrri hálfleiknum í gærkvöldi, en Vestmanna- eyingar höfðu undirtökin í þeim síðari. Vestmannaeyingar geta raunar sjálfum sér um kennt, því að þeir misnotuðu vítaspyrnu í annað sinn á stuttum tíma. Það er ekki furða þó að þeim gangi illa að skora ef þeir geta ekki einu sinni skorað úr vítaspyrnum. Á 14. mínútu fyrri hálfleiks átti Ómar Torfason gott skot á mark ÍBV, en Páll markvörður var vel á verði og bjargaði í horn. Upp úr hornspyrnunni skoraði Heimir Karlsson fyrsta og raunar eina mark leiksins. Stuttu síðar áttu Eyjamenn gott færi er Ómar Jóhannsson laumaði knettinum til Sigurláss, en Ögmundur bjargaði skoti hans vel. Á 42. mínútu mistókst Jóhanni Georgssyni illilega í góðu færi. Og rétt á eftir dæmdi Guðmundur Haraldsson dómari vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Sigurlás. Örn Óskarsson tók vítaspyrnuna, en skaut í þverslá og var skotið mjög fast og hrökk knötturinn langleiðina út að miðju vallarins. Síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks voru mjög fjörugar og marktækifæri á báða bóga, en án árangurs. í síðari hálfleiknum sóttu Vestmanna- eyingar mun meira en án árangurs. Fyrsta færi hálfleiksins átti Sverrir Herbertsson, en Páll varði í horn. Síðan kom tímabil þar sem Eyjamenn sóttu ákaft að marki Víkinga. Þar á meðal mistókst Kára Þorleifssyni að nýta tvö góð færi. Á 21. mínútu átti Ómar Jóhannsson glæsilegt skot að marki, en rétt yfir þverslána. Og áfram sóttu Eyjamenn, en þeim tókst ekki að skapa sér nein afgerandi færi. Jafntefli hefði ekki verið ósanngjörn úrslit í þessum leik. Eyjamenn voru klaufar að nýta ekki tækifæri sín og því fór sem fór. í Víkingsliðinu voru þeir Heimir Karlsson og Jóhannes Bárðarson bcstir og hjá Vestmannaeyingum, sem voru frekar jafnir, voru þcir Sigurlás og Sveinn Sveinsson einna bestir. Mark- verðir beggja liða sýndu einnig góðan leik. Leikinn dæmdi Guðmundur Har- aldsson. BH/sh Staðan ■ Staðan í 1. dcild eftir leikinn í gærkvöidi er sem hér segir: Víkingur 14 6 7 1 22-15 19 KR 14 4 8 2 11-10 16 ÍBV 14 6 3 5 16-13 15 Valur 15 5 4 6 16-14 14 ÍA 14 5 4 5 16-16 14 ÍBÍ 15 5 4 6 22-25 14 Breiðablik 15 5 4 6 13-17 14 KA 15 4 5 6 14-16 13 ÍBK ' 14 5 3 6 13-17 13 Fram 14 3 6 5 14-15 12 sh Urslitakeppni 3. flokks verður í Eyjum um helgina Átta lið leika um íslandsmeistaratitilinn ■ Senn líður að lokum knattspyrnu- vertíðarinnar hér á landi. Á sama tíma er hún að hefjast víða úti í Evrópu, en lega landsins gerir það að verkum að hætta er á vályndum veðrum þegar líða tekur á haustið. Einn þeirra flokka sem nú eru að fara að enda sitt keppnistímabil er 3. flokkur. Úrslitakeppni 3. flokks stendur fyrir dyrum um næstu helgi og verður leikið í Vestmannaeyjum. Átta lið leika til úrslita í 3. flokki. Þeim er skipt í tvo riðla í úrslitakeppn- inni. í A-riðli leika Reynir Sandgerði, KR, Breiðablik og Fram. í B-riðli leika Völsungur frá Húsavík, Fylkir, Þór Vestmannaeyjum og Sindri frá Horna- firði. Keppnin hefst á morgun fimmtudag og verður leikið sem hér segir. Fimmtud. kl. 18.30 Reynir-KR UBK-Fram kl. 19.00 Völsungur-Fylkir Þór V.-Sindri Föstud. kl. 18.30 KR-Fram Reynir-UBK Fylkir—Sindri Völsungur-Þór V. Laugard. kl. 10.00 UBK-KR Fram-Reynir Þór. V-Fylkir Sindri-Völsungur Að þessum leikjum loknum á að liggja ljóst fyrir hverjir eiga að leika til úrslita og leikið verður til úrslita um öll sæti. Þannig verður leikið um 7. sætið og 5. sætið á sama tíma á sunnudaginn klukkan 13.00 og strax á eftir verður leikið um 3. sætið. Urslitaleikurinn um Islandsmeistaratitilinn verðursíðan háð- ur klukkan 16.00 á sunnudaginn. ■ Meistaramót íslands í maraþon- hlaupi karla og 10 km. götuhlaupi kvenna fer fram í Hafnarfirði sunnudag- inn 5. september. Hlaupin hefjast í miðbænum og enda þar. Fundur mcð væntanlegum þátttakendum og öðru áhugafólki verður haldinn í Félags- heimili FH í Kaplakrika kl. 20 fimmtu- daginn 26. ágúst. Þá verður tilhögun Búast má viðþörkukcppni í 3. Ilokki eins og raunin cr í öllum flokkum og var kcppnin í a-riðli t.d. geysihörö. hlaupanna, m.a. leiðin, nánar útskýrð. Þátttökugjald, sem greiðast skal á fundinum er kr. 40. NIKE-umboðið, Austurbakki h.f., hefur gefið glæsileg verðlaun til kcppn- innar. Þeir aðilar munu einnig m.a. bjóða keppendum upp á Cramer sportdrykk í hlaupunum. Frjálsíþróttadeild FH Maraþonhlaup í Haf narf irði Arnóráfram hjá Lokeren ■ Arnór Guðjohnsen mun leika með liði Lokeren í Belgíu á næsta kcppnistimabili. Hann undirrítaði samning við félagið í síðustu viku og gildir sá samningur til eins árs. Greinilegt er að Lokeren lagði mikla áherslu á að halda Amóri lengur hjá sér. Félagið hefur misst marga góða leikmenn frá sér að undanfórnu og hefði Arnór horfið á braut hefði hann skilið eftir skarð, sem erfitt hefði reynst að fylla. En það breytir ekki þeirri staðreynd, sem Amór hefur lýst yfir opinbcrlega, að hann hefur fullan hug á að breyta til og verður það árciðanlcga ofan á að ári. ★ Leikmerm lækka íverði ■ Kreppan í Evrópu virðist greini- lega koma víða við. Svo virðist sem fjárhagur knattspyrnufélaga víða um heim standi vei en oftast áður og það er ncfnt nt.a. til marks um það, hversu lágar fjárhæðir cm scttar á góða leikmenn í ensku knattspyrn- unni. Þar er þróunin nefnilega sú sama og hér á landi (vonandi aðeins í bili), að áhorfendum fækkarog það kemur þá fljólt við fjárhag félaganna. ★ Hversvegna fækkar á- horfendum? ■ Það er haft eflir knatlspyrnu- leiðtogum hér á landi, að aðsókn á leiki 1. deildur í sumar sé nálægt helmingi minni en á síöasta sumri. Menn nefna ýmsar astæður. Sumir segja að það stafi af því hversu léleg knattspyrnan sé, en aðrir segja að ástæðan sé sú, að HM í sjónvarpinu hafi gert fólk óþarflega kröfuhart. Enn aðrir halda því fram að hið háa miðaverð sé helsti sókudólgurinn. ★ Flýtið leikjunum ■ Einn ágætur maður tjáði undir- rituðum i sumar, að ein besta leiðin til að fjölga áhorfendum á knatt- spyrnulcikjum sé sú, að flýta þeim á deginum. Hafa þá á þeim tíma, þegar fólk sé á leið úr vinnu. Fólk sem býr t.d, austan Elliðaáa gefi sér cinfald- lega ekki tíma til að koma aftur vcstur fyrir, eftir að búið er að borða og sjónvarpið að byrju og. ★ Keegan á förum? ■ Sú saga gengur rjöllunum hærra í Brctlandi þessa dagana, að fyrirliði enska landsliðsins Kevin Kecgan hafi mikinn hug á að skipta um félag í ensku deildakeppninni. Mörg félög hafa að sögn sýnt kappanum áhuga (enda engin furða) og hefur hann verið orðaður við lið Manchester United. Einnig hefur Newcastle sýnt Keegan áhuga.en ekki cr víst að sá áhugi sé gagnkvæmur. En hann vill semsagt síður lcika með síou félagi Southampton, sé eitthvað að marka þessar sögusagnir. ★ Barcelona ekki blankir ■ Fjárhagskreppan sem nefnd er hér að ofan virðist ekki hrjá öll félög i Evrópu, ekki ef citthvað er að marka þær tölur sem gefnar hafa verið upp sem söluverð á Maradona hinum urgentíska. En það eru reyndai svoleiðis leikmenn sem skapa félögum góðar tekjur...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.