Tíminn - 03.12.1982, Síða 3
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1982.
3
fréttir
SKIPSTJORI í BREIDHOLTI
KEYPTI OLÍUSKIP AF SÍS
fer í olíuflutninga fyrir danskt fyrirtæki
■ Sigurður Markússon, skipstjóri sem
búsettur er í Breiðholtinu í Reykjavík
hefur keypt olíuskipið Litlafell af Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga. Skipið
hefur hlotið nafnið Þyrill og fór það í
sína fyrstu ferð fyrir hinn nýja eiganda
seint í gærkvöld, með lýsisfarm áleiðis
til Rotterdam í Hollandi.
- Ég hef samið við danskt fyrirtæki
um að flytja fyrir þá olíu og lýsi innan
Evrópu, sagði hinn nýi eigandi Sigurður
Markússon í samtali við Tímann
skömmu fyrir brottförina. Ekki vildi
Sigurður gefa upp kaupverð skipsins, en
sagði að verið gæti að hann myndi stofna
sérstakt skipafélag í framtíðinni, en
Sigurður er eini eigandinn.
Sigurður Markússon er enginn ný-
græðingur innan þessarar greinar, því að
áður hefur hann átt olíuskipið Dag-
stjörnuna sem hann keypti af Einari
Guðfinnssyni í Bolungarvík og flutn-
ingaskipin, Sögu 1 og Sögu 2. Dagstjam-
ar sem Einar Guðfinnson keypti af
; Skipaútgerðinni hét áður Þyrill og þaðan
er nafnið á nýja skipinu komið.
- ESE
Harður
árgkstur
á Oskju-
hlíðarvegi
■ Mjög harður árekstur varð í gær
á Öskjuhlíðarvegl rétt hjá Fossvogs-
kapellu. Farþegi og ökumaður í
annarri bifreiðinni meiddust og voru
fluttir á slysadeild. Bílamir eru
mikið skeipmdir.
Umferðin í Reykjavík gekk mjög
erfiðlega fyrir sig í gær og hafði
lögreglan afskipti af 27 árekstmm í
allt, en um slys á fólki var ekki að
ræða nema í þessu eina tilviki.
Már Elísson
forstjóri
Fiskveiða-
sjóðs
■ Á fundi stjórnar Fiskvciðasjóðs
s.l. þriðjudag var ákveðið að ráða
Má Élísson fiskimálastjóra forstjóra
sjóðsins í stað Sverris Júlíussonar,
sem lætur af störfum um áramótin
fyrir aldurs sakir.
Már Elísson hlaut 4 atkvæði stjórn-
armanna í starfið, en Svavar Ár-
mannsson aðstoðarforstjóri 3 at-
kvæði. Aðrir umsækjendur voru
Hákon fsaksson stýrimaður, Harald-
ur Jóhannsson hagfræðingur og Jón
Gunnar Stefánsson viðskiptafræð-
ingur.
Stálvík hf.
verkefna-
laus
— á sama tfma
er samiö um
bátasmíöi í
Póliandi
■ - Við höfum fengið tilboð um
smíði átta skipa á þessu ári, en t
öilum tilvikum hefur verið neitað um
lán úr fiskveiðisjóði. Engin umsókn
á þessu ári hefur fengið jákvæða
meðferð sjóðsins, og ég verð að segja
í því sambandi að mér finnst það
andskoti hart að á sama tíma er
samið um smíði tveggja skipa 'af
sömu stærð í Póllandi, sagði Jón
Sveinsson forstjóri skipaspiíðastöðv-
arinnar Stálvík í samtali við Tímann
í gær.
Þessar umsóknir vörðuðu raðsmíði
á landróðrarbátum og þegar þeim
hefur vcrið hafnað og togarinn er
búinn er stöðin að heita má verkefna-
laus. Stálvík er eina skipasmíðastöð-
in á landinu sem er eingöngu hönnuð
fyrir nýsmíði.
- Ég get ekki sagt um það nú'hvað
við tekur, það hefur engum verið
\ sagt upp og okkur hefur verið lofað
verkefnum við raðsmíði og ég trúi
því ekki fyrr en ég tek á því að það
verði svikið. Þessi stöð er búin að
vera ef við þurfum að seeia okkar
fólki upp. - JGK.
Kirkjuþing vill
þrengingu
fóstureyðinga-
löggjafar
■ Nýafstaðið kirkjuþing samþykkti
eindreginn stuðning við frumvarp
fjögurra þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins um þrengingu 'heimilda til
fóstureyðinga og félagslcga lausn á
vanda barnshafandi kvenna.
í ályktun þingsins segir m.a. að
þingið fagni frumvarpinu og að það
skori á alþingismenn að samþykkja
það. Ennfremur er skorað á presta
og safnaðarfólk um land allt að veita
þeim brautargengi með hverjum
þeim hætti sem um getur orðið að
ráða. s “ Sjó.
■ Skipstjóraefni, nemendur Stýrimannaskólans í Reykjavík, sækja um þessar mundir námskeið í Sundhöll Reykjavíkur. Á námskeiðinu eru þeim kennt að fara
með gúmbjörgunarbáta, köfunarútbúnað og ýmislegt fleira. Ásgrímur Bjömsson, eríndreki hjá SVFI, er leiðbeinandi á námskeiðinu. Tímamynd GE.
Formanna- og flokksrádsfundur Sjálfstæðisflokksins verður lokadur:
„FORKASTANLEGT AÐ
LOKA SVONA FUNDI”
— segir Ómar Valdimarsson, formaður Blaðamannafélags íslands
Jólaauglýsingar sjónvarpsins:
UPPSELTí FLESTA
AUGLÝSINGATÍMA
■ „Mér finnst það bókstaflega vera
forkastanlegt að loka svona fundi fyrir
blaða- og fréttamönnum," sagði Ómar
Valdimarsson, formaður Blaðamanna-
félags íslands í samtali við Tímann,
þegar hann var spurður álits á því að
formanna- og flokksráðsfundur Sjálf-
stæðisflokksins, sem hefst á Hótel Sögu
í dag, verður haldinn fyrir luktum
dyrum, og verður fréttamönnum með
öllu meinaður aðgangur að honum.
„Við hefðum varla verið að hrósa
Framsóknarflokknum fyrir það að hafa
vísað tillögunni frá um að meina
fréttamönnum aðgang að flokksþingi
sínu, ef við værum ekki þeirrar skoðunar
að svona fundir ættu að vera opnir,“
sagði Ómar jafnframt.
Ómar sagði að á svona fundi væri
væntanlega verið að ráða ráðum stórs og
mikils stjórnmálaafls fyrir næstu kosn-
ingar og slíkt gæti varla átt að
vera mikið leyndarmál. „Það ætti síst af
öliu núna,“ sagði Ómar, „að hvíla hula
yfir því hvað gerist á þessum fundi,
vegna þess að það er verulegur spenning-
ur fyrir því um land allt, hvað gerist á
þessum fundi.“
Ómar sagði að það væri augljóst af
þeirri ályktun sem stjórn B.í. gerði um
daginn að stjórn Blaðamannafélags ís-
lands væri öll á þeirri skoðun að svona
fundir ættu að vera opnir. - AB
■ „Það er uppselt í alla auglýsingatíma
fyrir jól nema eitthvað er enn laust fyrir
kl.20.00 á milli táknmáls og fréttatím-
ans, en þar höfum við 5 mínútna
auglýsingatíma," sagði Auður Óskars-
dóttir auglýsingastjóri sjónvarpsins er
Tíminn spurðist fyrir um hvernig auglýs-
ingatímum yrði háttað fyrir jól.
„Við höfum sama hátt á nú og
undanfarin ár að við setjum þak á lengd
■ - Orsakir þessa slyss liggja ljósar
fyrir, enda urðu fjölmargir vitni að því,
sagði Skúli Sigurðsson hjá Loftferðaeft-
irlitinu í samtali við Tímann er hann var
inntur eftir því hvenær skýrslu væri að
vænta vegna þyrluslyssins sem varð við
Sjónvarpshúsið á dögunum.
Skúli sagði það Ijóst að þyrlan hefði
auglýsingatímans, hann verður hæst 12
mínútur milli dagskrárliða. í upphafi var
auglýsingatíminn ótakmarkaður og gat
þá farið allt upp í 20 mínútur á milli
dagskrárliða, sem hafði í för með sér
óviðunandi röskun á dagskrá."
Auður var spurð hvort sjónvarpið
hefði af þessu sökum orðið að hafna
birtingu auglýsinga, en hún kvað svo
ekki vera, það hefði verið hægt að leysa
skollið í jörðina vegna þess að loftnets-
vírinn sem strengdur var á milli Sjón-
varpshússins og Tónabíós hefði lent í
skrúfunni. Er þyrlan skall í jörðina og
þyrlublaðið hefði hætt að snúast þá hefði
lóð í enda blaðsins losnað og það væri
þetta stykki sem flogið hefði um 250
metra leið og flogið í gegn um rúðuna
með tilfærslum á milli tíma. En vera
mætti að ekki hefðu allir auglýsendur
' fengið þá fyrirgreiðslu sem þeir hefðu
óskað.
Auk þeirra kvöldauglýsingatíma sem
hafa verið nefndir verða auglýsingar
einnig á dagskrá á laugardags- og
sunnudagseftirmiðdögum, og eru þeir
tímar þegar uppkeyptir.
hjá BM Vallá, en Tíminn greindi frá því
máli jafnhliða frásögninni af slysinu.
Um skýrsluna sjálfa sagði Skúli að hún
yrði væntanlega tilbúin einhvern tímann
fljótlega eftir áramót, en sökum anna
hjá Loftferðaeftirlitinu væri ekki hægt
að ganga frá þessari skýrslu strax.
- ESE
JGK
Þyrluslysið við Sjónvarpshúsiö:
Orsök þessa slyss
Ijós fyrir”