Tíminn - 23.07.1983, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.07.1983, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 23. JÚLÍ 1983 'm mmningf Hjónaminning Sigríður Gísladóttir og Jóhann Guðmundsson frá Pann 13. þ.m. andaðist í Sjúkrahúsinu í Siglufirði Jóhann Guðmundsson fyrr- verandi bóndi á Þrasastöðum í Stíflu í Fljótum, áttatíu og fimm ára að aldri. Rúmum fimm árum fyrr 4. desember 1977 andaðist kona hans frú Sigríður Gísladóttir einnig í Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar. Hún var fædd að Ljótsstöðum í Hofshreppi 8. júlí 1896. Mig langar nú á útfarardegi Jóhanns Guðmundssonar að minnast með nokkr- um orðum þessara ágætu hjóna, en hjá þeim á Þrasastöðum dvaldi ég hluta úr nokkrum sumrum á árunum 1926-1930. Þar naut ég einstakrar góðvildar þeirra og umhyggju. Hef ég því ríka ástæðu til að færa þeim að leiðarlokum þökk mína og virðingu. Sigríður var eins og fyrr segir fædd að Ljótsstöðum. Hún var dóttir Gísla P. Sigmundssonar bónda þar, sem fæddur var 23. júlí 1851 að Ljótsstöðum, hann dó 31. mars 1927. Móðir Sigríðar var Friðrikka Guðrún Friðriksdóttir, fædd 12. janúar 1854 að Miklabæ í Óslands- hlið, dáin 25. maí 1939. Hún var áður gift Páli bróður Gísla, en hann lést 2. júní 1884. Þau áttu eina dóttur Pálínu Guðrúnu. Friðrikka Guðrún og Gísli giftu sig 3. desember 1889. Hálfsysturnar Pálína og Sigríður ólust upp við mikið ástríki foreldra sinna - heimilisbragur allur var til fyrirmyndar, efnin þokkaleg og Ljótsstaðahjónin nutu virðingar ná- granna sinna. „Forfeðurnir höfðu gjört garðinn frægan a.m.k. héraðskunnan" segir Bjöm í Bæ í fallegri minningargrein í Morgun- blaðinu þann 9. desember 1977, um frú Sigríði og um föður hennar segir hann: „Gísli P. Sigmundsson var lærður tré- smiður frá Danmörku, hann fann upp taðkvörnina sem þótti á sínum tíma mikil uppfmning vegna landbúnaðar- starfa. Var hann talinn á undan sinni samtíð á mörgum sviðum, Ljótsstaða heimilið var einnig talið að nokkru hálfgerður kvennaskóli fyrir verðandi húsmæður sem þangað var komið“. Systurnar á Ljótsstöðum nutu góðs uppeldis á heimaslóð og voru mjög samrýndar alla tíð. Oft heyrði ég Sigríði tala um Ljótsstaði og lífið þar af sérstakri ánægju og þakklæti og virtist rödd henn- ar þá fá annan hreim. Hún aflaði sér menntunar eftir því sem tök voru á fyrir ungar stúlkur á öðrum tug þessarar aldar. „Heim að Hólum“ hélt hún rúm- lega tvítug, þó ekki til náms, heldur til starfa við skólabúið. Skólastjóri var þá Páll Zophaníasson. Á Hólum kynntist hún ungum myndarlegum bóndasyni, Jóhanni frá Þrasastöðum. Þau felldu hugi saman og giftu sig 1923 og hófu búskap það ár á Þrasastöðum í félagi við föður Jóhannsfen stuttu síðar tóku þau ein við búskapnum. Jóhann Guðmundsson er í dag kvadd- ur frá Siglufjarðarkirkju. Hann var fæddur að Þrasastöðum 29. maí 1898. Foreldrar hans voru hjónin sem þar bjuggu, Guðmundur Bergsson, fæddur 11. janúar 1871 að Mjóafelli Jónssonar, en hann andaðist 7. apríl 1961 og Guðný fædd 8. desember 1876, dáin 22. mars 1917 Jóhannsdóttir bónda á Sléttu Magnússonar. Guðný og Guðmundur Bergsson tóku við búsforráðum árið 1898 er Bergur og kona hans Katrín Þorfinnsdóttir létu af búskap. Dvöldu þau hjá syni sínum og tengdadóttur til dauðadags. Guðný og Guðmundur eign- uðust tólf börn, fjögur þeirra misstu þau í æsku en þessi komust til fullorðins ára auk Jóhanns: Þorvaldur, kvæntur Kristj- önu Magnúsdóttur frá Koti í Svarfaðar- dal, búsett í Siglufirði. Bergur , kennari, búsettur í Neskaupstað, ókvæntur. Jón, hann kvæntist Guðrúnu Pétursdóttur, þau skildu. Síðari kona Jóns var Helga Guðmundsson, færeyskrar ættar, hún er látin, en Jón býr í Neskaupstað. Jórunn Ingibjörg, gift Vilhjálmi Einarssyni frá Reykholti, búsett á Selfossi. Eiríkur, byggingameistari í Siglufirði, hann andaðist 19. maí 1980. Hannvarkvæntur Herdísi Ólöfu Jónsdóttur frá Tungu, er hún búsett í Kópavogi. Hartmann Kristinn, bóndi á Þrasastöðum, kvæntur Kristínu Halldórsdóttur frá Garðakoti, nú búsett á Akureyri. Sigríður Stefanía, hún var gift Hrólfi J. Þórarinssyni frá ísafirði, hann lést 14. 6. 1976, hún er búsett í Reykjavík. Guðmundur og Guðný voru eins og flestir þeir er hófu búskap um aldamótin, efnalítil en full af bjartsýni og dugnaði. Þau juku bústofn sinn ár frá ári svo afkoman varð sæmileg, þrátt fyrir mikla ómegð. Jafnframt búskapnum stundaði Guðmundur sjósókn á vertíð. Fór hann á vorin, en að sjálfsögðu var það oft erfiðleikum bundið að fara frá heimilinu hvernig sem á stóð. Jóhann Guðmunds- son var eins og fyrr segir elstur systkina sinna. Hann var hvorki hár í loftinu né gamall þegar hann fór að hjálpa til við búskapinn. Guðmundur sá vel hvað í syni sínum bjó og sótti því sjóinn fastar er Jóhann komst á legg. Jóhann fann ungur til þeirrar ábyrgðar sem á honum hvíldi í fjarveru föður síns og höfðu þau styrk hvort af öðru, mæðginin Jóhann og Guðný, en hún var mikilhæf eiginkona og móðir, er stjórnaði heimilinu með dugnaði, forsjá og festu. Hún féll frá 1917 og var það mikið áfall fyrir Guð- mund og börnin hans átta, en það yngsta var þá aðeins 3ja ára gamalt. Jóhann naut þeirrar barnafræðslu sem í boði var í sveitinni. Hann fór síðar í Hóla- skóla þegar aldur og efni leyfðu. Stóð hann sig þar með prýði enda vel gefinn og ákveðinn að nota vel tímann til náms. Eins og getið er um hér að framan var það á Hólum sem þau kynntust, Sigríður og Jóhann, og 1923 giftu þau sig og hófu þá búskap á Þrasarstöðum eins og áður sagði. Það mun ekki of mælt þó fullyrt sé, að það hafi verið draumur flestra kaupstaða- bama á fyrri hluta þessarar aldar og er e.t.v. enn, að „komast í sveit“. Þannig var því háttað með mig, oft bað ég foreldra mína um að „koma mér í sveit" eins og það var orðað. Á endanum hafðist það. Þrasastaðahjónin höfðu fall- ist á að hýsa þennan Siglufjarðargutta „eins og í mánuð eða svo“ svo notuð séu orð Sigríðar, en hún og móðir mín voru góðar vinkonur. Ég man vel mína fyrstu ferð í Fljótin, frá henni verður þó ekki sagt hér í þessari minningargrein um Þrasastaðahjónin , en án velvilja þeirra hefði hún ekki verið farin. Móttökunum á Þrasastöðum gleymi ég aldrei, það var komin nótt er þangað kom - júnínótt björt og litrík, örþreyttum snáða var hjálpað af hestbaki, loksins var hægt að sleppa hnakknefinu. Sigga á Þrasastöð- um, eins og móðir mín kallaði hana, tók mig í fang sér og bauð mig velkominn, það var lítill, syfjaður og lúinn karl sem staulaðist inn í bæinn. Góðgæti beið ferðalanganna og eftir að hafa notið þess, var ferðalangurinn litli hvíldinni feginn. Þessar fyrstu móttökur á Þrasa- stöðum eru mér ógleymanlegar og hafa fylgt mér í tæp sextíu ár. Á heimili Jóhanns og Sigríðar ríki einstakur þrifnaður og reisn var yfir öllum heimilisbrag, þar var oft mannmargt, margir komu „til að hringja", því þar var eina símstöð hreppsins. Stíflubændur, sem áttu erindi á símstöðina og Ólafsfirðingar, sem fóru yfir Lágheiði á leið út í Siglufjörð eða vestur í Skagafjörðinn komu jafnan við, þótt ekki ættu þeir erindi, og þágu veitingar. Það var því alltaf eitthvað um að vera á Þrasastöðum og það átti vel við sumardvalardrenginn. Aldursforsetarnir á heimilinu voru Guðrún móðir Sigríðar og Guðmundur faðir Jóhanns, þau eru mér minnistæð sakir góðvildar og mannkosta, þau voru á Þrasastöðum þann tíma sem ég dvaldi þar og áður er að vikið. Um þau gæti ég ritað langt mál, þó ekki verði gert hér, slíkur „sjarmi" var yfir þeim þó ólík væru, enda óskyld. Það var stormasamt í íslenskum stjórnmálum þann tíma sem ég var á Þrasastöðum. Á heimilinu var hvorki talað um erfiðleika nágrannanna né annarra hagi yfirleitt, en þeim mun meira um stjórnmál. Jóhann Guðmunds- son var mikill félagsmálamaður, oddviti hreppsins og átti sæti í ýmsum nefndum, það fór ekki milli mála að hann var framsóknarmaður. Hvort sem lesendum þessara lína líkar það betur eða verr, var svo komið 1930, að framsóknarfólk var á hverjum einasta bæ í Stíflu, að einum undanteknum, ég er ekki frá því, að áhrifa Jóhanns á hugi nágrannanna og afskipti hans af félagsmálum sveitarinnar hafi valdið þar nokkru um. Hjónaband Sigríðar og Jóhanns var hið besta. Þau eignuðust á Þrasastöðum fjögur börn, eru þau talin hér í aldurs- röð: Guðný (Gyða), gift Sigurði Jónssyni forsjóra Sjóvátryggingafél. íslands, eiga þau tvo syni, Valtý og Jóhann, búsett í Reykjavík. Ástrún, gift Birni Frið- björnssyni, eftirlitsmanni Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna, þau eiga þrjá syni, Friðbjörn, Inga Garðar og Ásbjörn, búsett í Siglufirði. Margrét, gift Jóni F. Arndal, umboðsm. Brunabótafélags ís- lands í Hafnarfirði og búsett í Hafnar- firði. Þau eiga tvo syni Hlyn og ívar. Gísli, hann var skrifstofustjóri Síldarút- vegsnefndar, en lést af slysförum þann 24. júlí 1964. Hann var kvæntur Guð- rúnu Gunnarsdóttur frá Siglufirði, áttu þau þrjú böm, Gunnar, Sigríði og Brynju. Guðrún er búsett í Reykjavík. Til Siglufjarðar fluttu þau Sigríður og Jóhann árið 1935 eins og áður segir. Þar fæddist þeim árið 1939 sonurinn Einar, hann var vélstjóri en lést ókvæntur 7. apríl 1974. Sonamissirinn var þeim reið- arslag og það sár greri aldrei, þó þau bæru harm sinn í hljóði. 1935 fluttu þau hjón eins og fyrr segir frá Þrasastöðum til Siglufjarðar þar sem Jóhann hóf verslunarstörf hjá Kjötbúð Siglufjarðar. Án efa hafa það verið þung ( spor fyrir Sigríði og Jóhann að taka ákvörðun um að hætta búskap og flytja af föðurleifð Jóhanns, en þar höfðu frá 1760 búið forfeður hans. Það sem mestu réði um þessa ákvörðun var, að Jóhann hafði ofnæmi fyrir heyverkun og hey- gjöf, svo og það að hann fýsti og þau hjón bæði að afla börnum sínum menntunar. Létti það viðskilnaðinn við Þrasastaði að vitað var að þeir myndu áfram haldast í ættinni. Hartmann bróðir hans og kona hans hófu þar búskap er Jóhann flutti þaðan með fjölskyldu sína. Þegar Jóhann lét af störfum í Kjötbúð Siglufjarðar eftir nokkurra ára störf þar, hóf hann störf við Síldarverksmiðjur ríkisins, vann hann þar meðan heilsan leyfði. Nú þegar ég lít til baka og minnist Jóhanns frá Þrasastöðum, minnist ég þess hversu ríka áherslu hann lagði á það að vinna öll störf þannig af hendi að sómi væri að fyrir þann er vann. Hann forðað- ist skuldir og gætti þess ætíð að sjá vel fyrir fjölskyldu sinni. Minningin um Þrasastaðahjóninm Sig- ríði Gísladóttur og Jóhann Guðmunds- son er mér kær, ég þakka þeim áratuga hugulsemi og vináttu. Fjölskylda mín og ég sendi dætrum þeirra, mökum og börnum og öðrum ástvinum þeirra sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minnfng þeirra. Jón Kjartansson. Bryngeir Guðjónsson veghefilstjóri, Selfossi Þegar við nú kveðjum Bryngeir Guð- jónsson, fyrrv. veghefilstjóra, langar okkur til að minnast hans nokkrum orðum. Bryngeir er fæddur í Sölvholti í Hraungerðishreppi 11. des. 1908, sonur hjónanna Guðjóns Guðnasonar og Bryngerðar Eiríksdóttur, sem þar bjuggu. í Sölvholti er Bryngeir fram yfir fermingu en flyzt þá með foreldrum sínum að Bitru í sama hreppi. í heima- húsum dvaldi Bryngeir fram til ársins 1939 að hann flyzt til Selfoss. Á Selfossi bjó hann síðan til æviloka en hann lézt 15. júlí s.l. Eftir að hann kom til Selfoss vann hann ýmis stö'rf fyrstu tvö árin en 1941 hóf hann störf sem veghefilstjóri hjá Vegagerð ríkisins og starfaði við það fram til ársins 1979 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Bryngeir kvæntist aldrei og átti ekki böm. Hann leigði sér herbergi lengst af hjá Ingibjörgu Árnadóttur og Einari Sig- urðssyni og síðar hjá Elínborgu Sigurð- ardóttur og Guðmundi Geir Ólafssyni. Hjá þessum hjónum báðum átti hann við gott atlæti að búa. Þegar hann svo lét af störfum hjá Vegagerðinni, fluttist hann fyrst að Ási í Hveragerði en síðan var hann í hópi fyrstu íbúanna í húsi sem byggt var fyrir aldraða á Selfossi. Þar undi hann hag sínum vel og átti ánægjulcgt ævikvöld. Hann var við tiltölulega góða heilsu allt þar til hann lézt og var því öðrum íbúum hússins, sem verr voru á sig komnir heilsufarslega mikil hjálparhella. Enda hjálpsemin söm og áður. Eins og áður segir starfaði Bryngeir hjá Vegagerðinni árin 1941-1979. Á þessum árum öllum hefur hann að sjálfsögðu átt marga vinnufélaga. Allir munu þeir ljúka upp einum munni að betri starfsfélaga en Geira hafi vart verið hægt að kjósa sér. Hann var hlédrægur og afskiptalítill en glaðlyndur, hjálpsamur og velviljaður og svo umtalsfrómur að ekki rekur okkur minni til að hann hafi borið illt orð milli nokkurra manna. Enda naut hann fádæma vinsælda ekki aðeins starfsfélaga heldur og allra þeirra annarra sem honum kynntust. Þá var eftirtektarvert hve gott hann átti með að umgangast ungt fólk og virtist skilja viðhorf þeirra vel. Á árum áður þegar vegir voru verri og veghefilstjórarnir voru því sem næst í útilegu, gistu þeir gjarna og borðuðu á sveitabæjum. Þannig kynntust þeir fólkinu og fólkið þeim. Á þessum bæjum var Geiri auð- fúsugestur. Þeir sem starfa að þjónustu við al- menning hjá opinberum fyrirtækjum liggja undir meiri gagnrýni, ýmist rétt- látri eða ranglátri, hvað varðar störf þeirra, en flestir aðrir. En ekki mun Geiri hafa legið undir slíkri gagnrýni. Svo þekktur var hann fyrir störf sín um alla sýsluna. Og allir vissu að starf sitt rækti hann af þeirri árvekni og trúmennsku að lengra varð ekki komist í þeim efnum. Enda hafði hann gaman af vinnu sinni og taldi ekki stundirnar til kvölds. Ekki leyfði hann sér mikinn munað‘ um ævina, nema ef vera kynni að kíkja stöku sinnum í glas. Ekki varð það þó til neins baga hvorki fyrir hann né aðra. Og ekki kom það niður á vinnu hans. Eftir að hann var hættur sem fastur starfsmaður var hann þó við sumaraf- leysingar í nokkur ár og alltaf hélt hann sambandi við okkur. Kom af og til og átti með okkur glaðar stundir, svo sem leikhúsferðir og annað þess háttar. Við fráfall Geira söknum við því vinar. En jafnframt gleðjumst við yfir því að hann þyrfti ekki að líða þjáningar langrar sjúkralegu og fengi að kveðja þennan heim sitjandi í stól heima í stofu sinni. Bræðrum hans og öðru venzlafólki sendum við irinilegar samúðarkveðjur. Starfsmenn Vegagerðarinnar í Árnessýslu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.