Tíminn - 15.06.1983, Blaðsíða 7

Tíminn - 15.06.1983, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ1983 7 ■ „Eigum við að hlaupa einu sinni enn í kring um engið, eða eigum við að hvíla okkur fyrst?“ spyr Cisela litla pabba sinn. AUGU DOTTURINNAR SJÁ FYRIR ÞAU FEÐGININ BÆÐI ■ Rune Stridh og dóttir hans taka sér daglega góðan hlaupatúr. Hún er 8 ára, en Rune pabbi hennar 36 ára. Arið 1969 slasaðist Rune við störf sín í herþjónustu, og lá lengi milli heims og helju. Hann missti svo til alveg sjónina og taka varð af honum báðar hendur og handleggi um olnboga. Þegar slysið varð var Rune trúlofaður, og var SaUy kærast- an hans löngum við sjúkrabeð hans. Þegar hann hresstist giftu þau sig, og nú eiga þau lítið hús á Gotlandi í Svíþjóð og tvö börn. Dóttirin Cisela hefur verið sérstaklega iðin við að aðstoða pabba sinn við trimmið. Þcgar þau fara út að hlaupa, þá bindur hún teygju- band í handleggsstúf pabba síns, og svo hlaupa þau í takt. Rune sér aðeins mun dags og nætur, en hefur nú fengið vonir um að hægt verði að hjálpa honum við að fá aftur sjónina. Rússneskir og banda- rískir læknar hafa náð langt í þeim augnaðgerðum, sem hann þarfnast, og bíður hann nú eftir því að komast að hjá sérfræðingum öðru hvorum megin Atlantshafsins. Assil að algert stríð ríkti nú í öllum 26 fylkjum landsins. „Sovétmenn beita nýjustu vopna- tegundum í styrjöldinni, en andstöðuna skortir mjög vopn,“ og eitt af erindum mínum á vesturlöndum er að hvetja til aukinnar hernaðaraðstoðar við andspyrnuhreyfinguna í landi mínu. Að meginhluta til eru þau vopn sem hún hefur yfir að ráða sovésk vopn sem fallið hafa henni til í orustum." 80% landsins er nú á valdi andspyrnuhreyfingarinnar, en stríðið heldur áfram og Sovét- menn reka eyðingarstríð gegn afgönsku þjóðinni. Engin verk- smiðja er lengur starfandi í Afganistan, þeir drepa búpening og eyðileggja akra, eins og þeir vilji eyða allri lífsbjörg fólksins. Ein af afleiðingum stríðsins er sú að íbúum Afganistan hefur fækkað um meir en 5 milljónir. 4 milljónir hafa fallið, flestir óbreyttir borgarar, þ.á.m. börn, konur og gamalmenni sem ekki geta borið hönd fyrir höfuð sér. 1.5 milljón hefur flúið land, flestir til íran og Pakistan, en einnig til vesturlanda. Hvaða hjálp geta vesturlönd látið ykkur í té? Númer 1, vopn. Vesturlönd verða að átta sig á að við erum að heyja frelsisbaráttu, ekki bara fyrir okkur sjálfa heldur einnig vesturlönd. Hernaður Sovét- manna í Afganistan er aðeins æfing fyrir frekari landvinninga, sem hafa það markmið að kom- ast yfir olíulindirnar við Persa- flóa og hvar standa vesturlönd þá. Við þurfum einnig hjálp til að geta haldið uppi læknisþjón- ustu við sjúka og særða, en Sovétmenn hafa drepið marga af læknum okkar. Við þurfum póli- tískan og siðferðilegan stuðning og við biðjum þá sem vinna við fjölmiðla að gleyma okkur ekki né baráttu okkar. Sovétmenn reyna að þvinga upp á okkur hugmyndafræði sinni, en það tekst þeim ekki og til þess hafa þeir engan rétt. Við eigum sjálfir okkar eigin hug- myndafræði, og fyrir hana, sjálf- stæði okkar og fullveldi munum við berjast meðan einn sovéskur hermaður er eftir á afganskri grund. - JGK erlent yfirlit ■ Veðráttan hefur verið ís- lendingum erfið undanfarna mánuði, en þó einkum norðan- og austanlands. Það eru hins vegar miklu fleiri en íslendingar, sem hafa þessa sögu að segja, og hana raunar miklu verri. Þannig telja Bandaríkjamenn að veðráttan í vetur og vor hafi verið hin versta hjá þeim um 40 ára skeið, þótt nokkuð sé þetta misjafnt hjá þeim eftir lands- hlutum, eins og hjá okkur. Marga aðra hefur veðráttan þó leikið enn grálegar. Þetta gildir ekki sízt um Afríku-menn, en í a.m.k. 18 löndum Afríku hafa verið svo miklir þurrkar um lengra skeið, að mikil hætta er á, að hundruð þúsunda manna deyi úr hungri, ef ekki berst stóraukin hjálp utan frá. Víða í þessum löndum þykir ■ Þar sem vatnsmiklar ár runnu áður er nú nær ekkert vatn að fá. Suður-Afríku, en þeir eru taldir þeir mestu, sem þar hafa orðið í heila öld. Þótt þurrkarnir hafi orðið verulegir í nokkrum hluta Tanz- aníu, hafa þeir ekki enn valdið eins stórfelldu tjóni og í Mosam- bik og Suður-Afríku. Zambía og Zimbabve hafa orðið illa úti, en þó tæpast eins og tvö áðurnefndu löndin. I Zimbabwe hefur það komið sér verst, að þurrkarnir hafa orðið mestir í Matabelelandi, en þar hefur ríkt ófriðarásand og aukið á vandræðin. í Mosambik er ástandið talið mjög alvarlegt. Þar hafa haldizt miklir þurrkar í átta af tíu fylkj- um landsins. Hinar hefðbundnu vorrigningar urðu þar hinar minnstu í manna minnum og mun það valda miklum upp- Mikill mannfellir vofir yfir Afríku vegna þurrka Ástandið verra en 1972-1973,þegar 2-300 þús. horféllu Dökku blettirnir sýna helztu þurrkasvæðin í Afríku. nú stefna í sömu átt og á árunum 1972-1973, en þá ríktu miklir þurrkar í sex löndum sunnan við Sahara, eða í Senegal, Mauri- taniu.Malí, Efri Volta, Niger og Chad. Þrátt fyrir mikla erlenda hjálp, sem þjóðum þessara landa barst, er talið að milli 200-300 þúsund manns hafi orðið hungurmorða á umræddu tímabili. ÞURRKARNIR, sem nú ógna lífi hundruð þúsunda og jafnvel milljóna manna í Afríku, ná yfir miklu víðlendara svæði en 1972-1973. í Vestur-Afríku eru það Mauritanía, Mali, Ghana og Togo, sem hafa orðið harðast úti. í Ghana er ástandið enn verra sökum þess, að um ein mílljón Ghanabúa, sem höfðu setzt að í Nígeríu, voru reknir þaðan á síðastliðnum vetri. Þetta fólk hefur flest ekki haft að neinu að hverfa eftir heimkom- una til Ghana. í Marokko hafa einnig orðið verulegir þurrkar, en ástandið er þó ekki eins slæmt þar og í hinum löndunum. Hins vegar er það mjög slæmt á Grænhöfða- eyjum (Cape Verde), en íbúarn- ir þar hafa fengið talsverða hjálp utan frá, m.a. frá íslendingum, sem hafa verið að kenna þeim fiskveiðar. Vegna þurrkanna hefur ekki aðeins gróður eyðzt, heldur hef- ur vatn þornað í vötnum og fljótum og vatnið spillzt af þeim ástæðum, m.a. vegna þess, að saltmagn í því hefur aukizt. Bú- peningur hefur hrunið niður mun meira en ella af þessum sökum. í Mið-Afríku hafa þurrkarnir orðið mestir í Chad og Kame- roon. í Chad hefur það gert ástandið verra, að nær stöðug borgarastyrjöld hefur ríkt þar sfðustu árin. Hjálparstarfsemi hefur sökum þess farið meira og minna í handaskolum. I Austur-Afríku hafa þurrk- arnir verið mestir í norðurhluta Eþíopíu og hafa haldizt þar um lengra skeið. Stór landsvæði hafa verið yfirgefin. Hjálparstarfsem- in hefur verið heldur í skárra lagi en víða annars staðar, en þó gengið misjafnlega. Fyrir skömmu rigndi þar verulega og hyggjast því margir ■ hverfa aftur til fyrri heimkynna. Sá örðugleiki kemur þá til sögunn- ar, að búpeningurinn er fallinn að mestu og endurnýjun hlýtur að taka sinn tíma. Þurrkar munu ekki óvenjuleg- ir í framannefndum löndum, en það hefur aukið á vandann, að verulega hefur verið breytt um búskaparhætti. Áður reikuðu menn um með hjarðir sínar og fluttu sig um set eftir veðráttu. Á síðari tímum hafa bændur tekið sér fasta búsetu og það hefur víða haft þær afleiðingar að gengið hefur verið á gróður- inn meira en áður. Þegar þurrk- arnir hafa komið, hefur viðnám- ið verið veikara en áður. Loks er svo að geta um þurrk- ana, sem hafa komið til sögu í skerubresti. Bersýnilega verður þar þörf fyrir mikla hjálparstarf- semi. Þá veldur það ekki minnstu áhyggjunum, að óttast er nær algcrt vatnsleysi í höfuðborginni Maputo, sem hefur um 850 þús. íbúa. Á venjulegum tímum hef- ur verið erfitt að fullnægja vatns- þörf höfuðborgarinnar, en nú þykir það viðfangsefni næstum óleysanlegt. í sambandsrfkinu Suður- Afríku hafa þurrkarnir orðið mestir í þeim landshlutum, sem aðallega eru byggðir blökku- mönnum. í sumum þeirra óttast menn mannfall í stórum stíl af völdum þurrkanna, nema ríkis- valdið grípi í taumana með víð- tæka aðstoð. Það ætti að vera bót í máli, að Suður-Afríka er ríkt land og er þess megnug að halda uppi hjálparstarfseminni á þessu sviði. Það gildir ekki um önnur ríki Afríku. Sjálfstæðu blökkumannaríkin í Suður-Afríku, Botswana, Swaziland og Lesotho hafa mjög orðið fyrir barðinu á þurrkunum og verða því Suður-Afríku enn háðari en áður. FAO.en matvæla- og landbún- aðarstofnun Sameinuðu þjóð- anna gengur venjulega undir þeirri skammstöfun, hefur fylgzt með þurrkum í Afríku. í nýkom- inni skýrslu frá FAO, er ástandið talið enn verra en á árunum 1972-1973. FAO hefur nýlega sent áskorun til 27 ríkja, sem helzt gætu veitt hjálp, og beðið um aðstoð þeirra. Sum hafa þegar brugðizt vel við, en mest munar um framlög Bandaríkjanna, en þau ráða yfir miklum kornbirgðum. Áætlað er að Bandaríkin leggi fram 262 milljónir dollara til umræddrar aðstoðar á þessu ári. Vissulega munar um það, en vafalítið þarf miklu meiri hjálp, ef koma á í veg fyrir stórfellt mannfall af völdum þurrkanna. Þórarirm Þórarinsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.