Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.09.1983, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983 fréttir Annað starfsár Mótettu- kórsins er að hefjast ■ Mótettukór Hallgrímskirkju er nú að hefja sitt annað starfsár. Markmið hans er að flytja mótettur (þ.e. kirkjuleg kórverk án undir- leiks) frá öllum tímum, en auk þess kantötur og litlar messur í helgihaldi Hallgrímskirkju. S.l. vetur var kór- inn skipaður um 25 manns, allt yngra fólki. og kom hann oft fram á hátíðum í kirkjunni. Æskileg stærð Mótettukórsins er 40 manns og getur kórinn þvt bætt við sig um 15 nýjum félögum. Skilyrði eru gerð fyrir nokkurri kunnáttu í nótnalestri og raddbeitingu og að mcðlimir séu á aldrinum 16-40 ára. Þeir sem hafa áhuga á að ganga í þcnnan kór eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við söngstjórann Hörð Áskelsson í síma 32219. -Jól. Ný Storð komin út ■ Annað tölublað af tímaritinu Storð er nú kontið út. Meðal efnis í blaðinu má nefna grein eftir Indriða G. Þorsteinsson unt Hornafjörð og Hornfirðinga, nýja smásögu eftir Þórarinn Eldjárn, myndaseríu frá orkuverinu í Svartsengi eflir Guö- mund Ingólfsson, grein um hljóm- leikaferð Þursadokksins eftir Stein- unni Sigurðardóttur, viðtal Illuga Jökulssonar við Guðberg Bergsson, þátt um íslenska hönnun á tískul'atn- aði úr leðri og ekki síst fjallað um þrjár hliðar á mcistaranum Erró. Auk ofangreinds efnis, sem allt er prýtt ntiklum fjölda litmynda, skrifar Matthías Sæmundsson um tímamót í íslenskri skáldsagnagerð, Jónas Har- alz skrifar um erlendar lántökur og Ágúst Guðmundson fjallar um stöðuna í íslenskri kvikmyndagerð. Storð er 100 síður að stærð og er allt blaðið litprentað. Blöndudeila í nýjan farveg ■ Horfið hefur verið frá gerð sér- staks kjarasamnings milli vinnuveit- enda og fulltrúa verkalýðsfélaganna við Blönduvirkjun. Milli deiluaðila hefur náðst samkomulag um að útkljá það sem á milli bar innan ramma kjarasamninga sem ná til allra virkjana Landsvirkjunar. Samkvæmt upplýsingum frá ríkis- sáttasemjara var á fundi í málinu á miðvikudag samþykkt svohljóðandi ályktun: „Samkomulag varð um það með samningsaðilum að stefnt skyldi að gerð heildarkjarasamnings vegna virkjanaframkvæmda Landsvirkjun- ar og fundir um slíka samninga hefjist sem fyrst.“ -Sjó. ■ Píanóleikarinn Teddy Wilson fór snyrtilegum fingrum um flygilinn. Trodfullf r Gamla bíó á hljómleikum The Great Eight: ■ The Great Eight slógu aldeilis í gegn í Gamla Bíói í fyrrakvöld. Átta swing- meistarar samankomnir undir einu þaki hver öðrum betri. Þetta voru þeir Téddy Wilson, píanóleikari, Billy Butterfield, trompetleikari, Red Norvovíbrafónleik- ari, Johnny Mince, klarinettuleikari, Tal Farlow gítarleikari, Sam Woodyard trommari, Buddy Tate á saxófón og síðast en ckki síst Arwell Shaw, er plokkaði kontrabassann af snilld í for- föllum Slam Stewart, er forfallaðist vegna alvarlegra veikinda. Troðfullt Gamla Bíó iðaði og skalf af „Swingfíling“. Þessir karlar kunnu sko á hljóðfærin sín. Gámlir swingstandardar ómuðu silkimjúkt um hinn hljómgóða sal og jazzgeggjarar landsins létu sér líða vel í tónaflóðinu. Gunnar Rcynir, Jón Múli, Svavar Gests, allir mættir á staðinn. Þessir samtals 539 ára gamla hljómsveit lék í nær 3 tíma og elskuðu grcinilega að spila gamla góða „swingið". -Jól. ■ Jón Páll var búinn að bíða lengi eftir ■ Klarincttulcikarinn Johnny Mince að sjá þennan. Meistari Tal Farlow átti var í Tommy Dorsey big-bandinu á , snilldarleik á gítarinn sinn. Góð sóló sínum tíma. Fyrsta flokks klarinettuleik- dro hvergi af ser, karlsins vöktu mikla athygli. Billy Butterfíeld blés vel að vanda og MEISTARATILÞRIF GÖMLIIMANNANNA ■ Tal Farlow er hér í hörkusólói og hinir fylgja létt með góðum rythma undir. Auðvitað er pása hjá blásurunum á meðan. - Tímamvndir: GE. ■ Buddy Tate, saxófónleikari kom hér síöast ’76 með Benny Goodman og sá hefur engu gleymt. ■ Hér heilsar Svavar Gests, jazzgeggjari og með fyrstu mönnum á íslandi til að leika á víbrófón, Red Norvo. Svavar hafði heyrt í honum áður á hljómleikum. Fer greinilega vel á með þeim köppum hér. ■ Arwell Shaw kom einna mest á óvart þetta kvöld. Hann lék ótrúlega á kontrabassann, náði að gera hluti sem menn furðuðu sig á. Frábær. Hann átti að koma hingað með Louis heitnum Armstrong á sínum tíma, en forfallaðist þá vegna vcikinda og nú var hann hingað kominn í forföllum annars. ■ Aldursforsetinn, Red Norvo, lék yndislega á víbrófóninn sinn, þrátt fyrir skerta heyrn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.