Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. september 1987 Tíminn 3 Fiskveiðiþjóðir norðurhjarans: Sameiginlegt áróðursstríð Eftir að ljóst var að Steingrímur Hermannsson ljáði ekki máls á því að ræða við dr. Callio, fulltrúa í viðskiptaráðuneytinu í Washing- ton, var gert hlé á fundum. Mátti glöggt greina að þróun málsins kom fulltrúum ráðuneytisins mjög á óvart. Eftir fundarhlé komu þeir til baka og kváðust vilja leggja fram ákveðna hugmvnd um lausn á hvalveiðimálinu, og voru þá um leið að leita að útgöngudyrum fyrir sig. Fulltrúar utanríkisráðherra sögðust myndu taka við þeirn hug- myndum en án umræðu. Eftir tveggja tíma hlé komu fulltrúar viðskiptaráðuneytsins aftur með tillögur sínar skrifaðar. Tillögurnar voru í þeini dúr að Bandaríkjámenn geta fallist á að íslendingar veiöi 20 sandreyðar. Þeir heita meira samstarfi ríkjanna innan Alþjóða hvalveiðiráðsins, og þeir heita stuðningi við vísinda- veiöar íslendinga. Þó skal leggja vísindaáætlanir fyrir vísindanefnd Alþjóða hvalveiöiráðsins til sam- þykktar. í samtali við Tímann í gær sagði Steingrímur Hermanns- son, utanríkisráðherra, að hann vildi ekki ræða tillögur Bandaríkja- manna á þessu stigi. en það scm þcgar hefði komið fram um þær væri rétt í mcginatriðum. „Við teljum út af fyrir sig erfitt að hafna því að fara eftir vísindalegum ráð- leggingum í þessu máli. Við höfum aldrei viljað það. Hitt er svo annað mál, að samkvæmt 8. grein hval- veiðisáttmálans er hverju landi Staðan í hvalamálinu: Aðeins tíma- bundið stopp „Það má segja að Bandaríkja- menn hafi komið með opnun í málinu og viö höfunr ákveðið að vinna á þeim grundvelli. Ekki er hægt að segja neitt frekar um málið og hvort það leiðir til einhverrar niðurstöðu." sagði Halldór Asgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, eftir fund utanrík- ismálanefndar Alþingis, en hon- um lauk um hádegisbil í gær. „Ég get ekki sagt hvaða tillögur þetta eru frá Bandaríkjamönn- um. Það hefur verið sanrþykkt aö fjalla ekki um málið opinberlega á þessu stigi, en við teljum að hér sé um það mikilvæga opnun aö ræða, að rétt sé að láta á þaö reyna hvort hægt vcrður að ná fram niðurstöðu sem er viöun- andi fyrir báða aðila” sagði Hall- dór ennfremur. Halldór var spurður hvort hval- veiðar Islendinga héldu áfram. en þær áttu að hefjast í gær. Halldór sagði að þær yrðu ekki hafnar meðan viðræður færu fram. Rannsóknarleiðangrinum væri lokið og skipin komin inn. Hann sagði hins vegar ekki rétt að cngar hvalveiðar myndu eiga sér stað. Aðeins yrði um tíma- bundna stöðvun að ræða, meðan viðræður ríkjanna tveggja færu fram. „Það er ckki hægt að segja hvenær þessum viðræðum lýkur, en lögð verður áhcrsla á að þeim ljúki á næstu þremur til fimm dögum. Viðræðurnar munu fyrst og fremst eiga sér stað í gegnum scndiráð okkar í Was- hington og ég á ekki von á að þar þurfi að koma til sérstakra fund- ahalda, nema þá á milli sendir- áðsins og bandarískra stjórn- valda. Ég vil hvorki vera bjart- sýnn.né svartsýnn. Það verður unnið í málinu næstu daga og við munum sjá hvernig það gengur," sagði Halldór einnig. -SÖL frjálst að stunda vísindarannsókn- ir. Sömuleiðis höl'um við verið ákaflega óánægðir með skipan vís- indanefndarinnar. Hún lieíur verið hlaöin allskonar öfgamönnum. Iriöunarsinnum og við höfum lagt til að hún yrði endurskipulögö og yrði trúverðug. Bandan'kjamenn luifa tekið undir það aö nokkru leyti, þ.e. aö nefnditi sé ekki trú- verðug. Ekki er rétt að Banda- ríkjamenn hafi lofaö að styðja okkur í hvalveiöiráðinu." A þessum upplýsingum utanrík- isráðherra sést að farið er að rofa til í hvalveiöideilunni. Fulltrúar viðskiptaráðuneytisins virtust hafa komið umboöslausir til fundarins í byrjun. en þegar þeir afhentu tillögur sínar skriflega munu þeir hafa htift samþykki stjórnarinnar í Washington fyrir þeim. I samtali Tímans við utanríkis- ráðherra kom í ljós, að hann helur átt mjög fróðlegar samræöur við sjáyarútvegsráðherra Kanada og mun ræða við utanríkisráðherra landsins í dag. „Viö ræddum m.a. hvalveiðimálið í gær og sjávarúl- vegsráðhern. er alveg jafn uggandi og viö út af þessari öfgastefnu friðunarsinna. Kanadamenn eru alveg sömu skoðunar og viö að þessar skepnur eigi að nýta en undir ströngu eftirliti með vernd- unarsjónarmið að sjálfsögðu í huga, eða að þess verði gætt að ekki verði um ofnýtingu að ræða. Þessar viðræður hafa veriö mjög Þcirstanda ístrungu þessadagana. fróðlegar. og þeir eru fleiri hér, sem hafa tekið í sama streng. I Kanada hafa verið menn Irá Bandaríkjunum sent hafa verið að leggja til að hafin yrði kynningar- herferð á sjónarmiðum veiöiþjóöa norðurslóða. Þeir hafa líkti veriö á Ískmdi ;ið tilhlutan utanríkisráðu- neytisins. Hingað til hafa þessar þjóðir halt þá stefnu að þegja við ágangi friðunarsinnn. En þaðgeng- ur bara ekki." Þannig eru líkur til þess að liskveiðiþjóðir norðurhjar- ans sameinist í áróöursstríöi gegn ölgastefnu friðunarsinna, sem lengið helur að leika lausum liala um langa stund. „Bilunin sjálf cr ekki cnn fundin. en okkur hcfur tekist að koma dælunum í gang aftur," sagði Stefán Hannesson verkstjóri hjá Reykja- vtkurborg, er Tíminn innti hann eftir stöðu mála varðandi flóðin undir brúnni á Miklubraut. Þar undir liggur ein af aðalbrautum út af og inná Kringluna. „Ljóst er að stýri- búnaðurinn hefur bilað og dælurnar hafa því ekki sinnt því hlutverki sínu að dæla vatninu upp í holræsakerf- ið." Dælukerfi fyrir hitalagnir í göt- um og gangstéttum fyrir allt Kringlu- svæðið var í hættu, þar sem það er staðsett í sama dæluhúsi. Þctta var heldur blaut sjón sem fyrir augu vegfarcnda blasti í gær- morgun, en Stefán og hans nrenn unnu í því í allan gærdag að koma tækjunum í gang að nýju. Ekki var liægt að leggja mat á það að svo stöddu hvort vatnsdælurnar hefðu skaðast að öðru leyti en því að nokkrir mælar voru greinilega ónýt- ir. Unnið verður áfram að því að finna liina raunverulegu bilun í stýri- búnaðinum sem kostaði nokkur hundruð þúsund. Öllu alvarlegar leit út með afdrif flókins dælubúnaðar, sem settur var í gang fyrir einni til tveimur vikum, og er staðsettur niðri í þessu sama dæluhúsi. Dælubúnaður sá er til þess ætlaður að knýja allt heitavatnskerf- ið í götu og gangstéttalögnum á þessu svæði. Sá búnaður er afar dýr og er ekki búið að meta það til fulls marki. Talið er að þar gætu milljónir Stefán Hannesson verkstjóri að störfum í gær ásamt mönnum sínum, við að hvort hann hafi skaðast að einhverju verið í húfi. KB bjarga rándýrum dælubúnaði frá vatnsskemmdum. Tímamynd Itrcin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.