Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 9

Tíminn - 11.09.1987, Blaðsíða 9
Föstudagur 11. september 1987 Tíminn 9 VETTVANGUR ílllllll!!!ll!i!lll!!!l!!llliii Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli: Þegar deilt er á samvmnuhreyfinguna Stundum tula menn eins og þeim finnist að ástæðulaust sé að atvinnufyrirtæki hafi fjárhagslegan afgang frá rekstrarkostnaði. Af- ganginunt ætti að skipta upp milli starfsfólks. Það eigi þennan afgang að réttu lagi og eigi að fá hann strax. Enda þótt rétt sé að vinnan hafi skapað verðmætið er þetta viðhorf ósköp grunnfærnislegt og vanhugs- að. Staða fyrirtækja ræðst mjög af því hvort þau eiga eitthvert fjár- magn eða ekki. Eigið fjármagn skiptir miklu máli. Fyrirtæki sem styðst að verulegu leyti við eigið fjármagn hefur stór- um minni fjármagnskostnað en hitt sem rekið er mcð lánsfé ein- göngu. Þess vegna þolir það hærri laun. Þannig er hægt að færa tölu- leg rök að því að starfsfólkinu sé betra að vinna þess hafi rnyndað eigið fé fyrirtækisins en öllu hafi verið skipt upp um leið og það aflaðist. Þetta er þó allt háð því hvernig á er haldið hvcrju sinni en eigið fé skapar svigrúm. Þegar fjármagns er þörf Stundum krefst almannahagur þess að lagt sé í dýrar frantkvæmd- ir. Hvar á þá að taka féð? Margir nefna þá ríkissjóðinn og margan vanda hefur hann leyst. Margt er gott um það að segja en ekki getur hann verið allt í öllu. enda er það ekki æskilegt, þó unnt kynni að vera. Nú segja sumir að bankarnir eigi að lána og einkabankar séu vel færir að meta það hvað sé arðvæn- legt og þeir velji þau verkefnin úr og fjármagni þau en sinni ekki kvabbi um óarðbær gæluverkefni. Samt sem áður þolirgróið fyrirtæki með nokkurt eigið fé betur hið dýra fjármagn bankans en hitt sem ekkert á. Það er því gæfulegri skuldunautur fyrir bankann. Það hlýtur að hafa meira lánstraust. Undanfarna daga hefur Morgun- blaðið birt ýmsar greinar sem sýna mjðg neikvæða afstöðu gagnvart samvinnufélögum. Er helst svo að sjá að ýmsir stríðsmenn Sjálf- stæðisflokksins vilji bæta sér kosn- ingaósigur mcð því að fjandskapast við samvinnuhreyfinguna. Arásir þeirra hljóta að vekja menn til umhugsunar. Er ástæða til að óttast samvinnuhreyfinguna? Er hún kolkrabbi eða krabbamein í þjóð- félaginu? Er samvinnuverslun hættuleg? Ég er samvinnumaður og hef alltaf talið Framsóknarflokknum það til gildis að hann hefur alla tíð viljað verja rétt manna til að mynda samvinnufélög og starfa í þeim. Leyfið mér nú aö nefna nokkra kosti samvinnuformsins. Tökum dæmi nærri höfuðstaðabúum. Kaupfélag Reykjavíkur og ná- grennis - Kron - heíur starfað í rúmlega 50 ár. Á þeim tíma hafa myndast hjá því nokkrar eignir. Þær eru sameign þess fólks á byggðarlaginu sem á hvcrjum tíma vill vera í kauþfélagi. Þær verða því notaðar í þágu verslunarinnar framvegis. Ekki skal hér talað ilfa um Silla og Valda, dugandi kaupsýslumenn. sem áratugum saman ráku verslun samhliða Kron. En án þess að fjölyrða meira um þessi efni er hér minnt á tvennskonar form venju- legu fólki til umhugsunar. Höfum við ástæðu til að hræðast Kron? Þurfa menn að iðrast þess að hafa átt skipti við það? Er samvinnuverslunin hættuleg Reykjavík eða Reykvíkingum? Hvers vegna reka samvinnufélög atvinnu? Víða um land eru samvinnufélög þátttakendur í atvinnurekstri. Þeg- ar andstæðingar samvinnuhreyf- ingarinnar eru að mikla fyrir sér ofurvald hennar scgja þeir gjarnan að hún hafi á hendi 40% af freðfisk- framlciðslu þjóðarinnar. Hvernig er þessi atvinnurckstur til kominn? Hafa kaupfélögin yfir- leitt byrjað illvfga sámkcppni viö einhvcrja máttarstólpa sem báru sveitartclagið uppi og kontið þeim á kné? Engan veginn er það almennt. Hins eru mörg dæmi að þegar einkareksturinn var kominn í þrot og atvinnuleysi og vandræði vofðu yfir byggðinni hófu samvinnumenn atvinnurekstur á rústum hans af illri nauðsyn til að hamla gegn auðn og upplausn. Þetta vita þeir sem citthvað þekkja að gagni til atvinnusögu íslensku þjóðarinnar á þcssari öld. En allt má heimskum scgja. Eigendur fyrirtækja Ég held að það sé farsælt ;iö sveitarfélög og samvinnufélög eigi verulegan lilut að atvinnurekstri. Með því er það tryggt aö reksturinn sé miðaður við hagi og þarfir almennings í byggðarlaginu. Þá leiðir af eöli málsins að haldið verður áfram á þeint grundvclli en annarlegsjónarmið um einkagróða af sölu á hentugum tíma koma ekki til greina. Hér ætti ekki að þurfa að tclja upp einstök dæmi um verslun, útgerð og fiskvinnslu sem var i cinkarekstri en taldi sig ekki bundna neinum skyldum og meö- ferö þeSs sem vaxið er af vinnu almennings í héraði sé engu .-háð nema geðþótta eins eða örfárra eigcnda. Það er byggðinni fyrir bestu aö til sé fjármagn sem er félagscign þeirra sem binda vilja örlög sín og framtíð viö staöinn. Samvinnusagan Þegar samvinnuhreyfingunni óx fiskur um hrygg og það varö Ijóst að hún stóð föstum fótum mynduö- ust pólitísk samtök til að vinna gegn henni. Þá þokuöu samvinnu- menn sér saman til varnar félagsleg- um rétti hins einstaka manns til að standa meðöðrum og vinna saman. Þá varð Framsóknarflokkurinn voldugt þjóðmálaafl. Þá vissu líka forustumenn í launþegahreyfingu og Alþýðuflokki hvílík kjarabót alþýðumanni gat verið að sam- vinnustarfinu ef samheldni skorti ekki. Jafnvel þó að fyrir kæmi að verkalýðsfélag ætti í harðri kaup- dcilu við samvinnufélag datt eng- unt í hug aö tala um krabbamein. Nú má gjarnan hcyra menn sent tclja sig til vinstri og leita fylgist hjá alþýðu manna tala um fornar hug- sjónirsem samvinnuhreyfingin hafi átt en sé búin að tapa. Lítið verður þó unt svör þegar lýst er eftir þessum hugsjónum. Hverjar voru þær? Fyrstu samvinnufélögin á Islandi voru stofnuð til að útvega félags- mönnum sínum vöru á sannvirði og koma framlciðslu þeirra í verð. Aö því var unnið bæði með mark- aðsleit og vöruvöndun. Þetta var hið upphaflega takmark. Þetta voru fyrstu hugsjónirnar. Og á þeini grundvelli er starfað enn. Þar hcfur engin breyting orðið á stefnu og markmiöi þó að tímarnir séu aðrir. Kaupfélögunum var aldrei ætlað að vera góðgjörðafélög scm önnuðust fátækra framfæri. Skilvísin var grundvallaratriði. En mcð vöruvöndun, markaðsleit og hagkvæmni í rekstri var stefnt að því að drýgja tekjur hins fátæka manns viö kaup og sölu svo að fleiri yrðu sjálflijarga. Þctta var stefnan og aö þessu cr unnið enn þann dag í dag. Sama stel'na, sömu markmiö. Þannig er samvinnusaga íslend- i.nga. Orð hafa gildi Þessi atriði þjóðarsögunnar scm hér hefur veriö minnt á eru stað- reyndir sem allir ættu að þekkja. Urn þá hluti má langt mál flytja. Komi í Ijós aö ýtarleg umræða sc nauðsynleg vegna þess að almenn þekking á verslunarsögu og at- vinnusögu sé svo gloppótt verður auðvitaö að sinna þeirri fræðslu betur. Ádeilur Morgunblaðsins hafa þaö gildi aö nú vita menn betur unt skoöanir og hugarfar þeirra sem að þeim stnnda. Þaö hefur sitt gildi. Samvinnumönnum er eins og öðr- um gagnlcgt að vita hverjir eru vinir þeirra og hvar þeir eiga sér óvildarmenn. Það er gott að menn segi hug sinn opinskátt og undanbragða- laust. Þannig á umræðan að vcra í frjálsu landi. Svo kemur væntanlega í Ijós hver uppskeran veröur af árásum á samvinnuhreyfinguna. H.Kr. Völundur rifinn og sagaður niður Árið 1905 fannst gullið í Öskju- hlíðinni, Marconi-loftskeytin fóru að berast til landsins og sunnlenskir bændur riðu hundruðum saman til Reykjavíkur, til að mótmæla rit- símasamningi ráðherra íslands. Þetta ár var einnig tekin í notkun stór og vönduð trésmíðaverksmiðja. Árið áður hafði trésmíðafélagið Völundur verið stofnað af 40 tré- smiðum og þann sjöunda nóvember 1905 tók svo verksmiðjan þeirra til starfa þar sem við núna köllum á horni Skúlagötu og Klapparstígs. í trésmíðaverksmiðju Völundar voru scttar upp 15 smíðavélar og taldist þá til tíðinda að liver þcirra vann sitt ákveðna verk. Nú í haust er unnið að því að rífa niður þessi hús og smíðasali ásamt öllum skemmum og skýlurn sem verksmiðjum trésmiðanna tilheyrði. Nú á næstu dögum á turninn að hverfa eins og allt annað. Lóðinj verður jöfnuð við jörðu. Þykir mörg-j um borgarbúanum það hinn mesti i sjónarsviptir því að víst hafa húsin, sett sterkan svip á umhverfi sitt, nær alla þessa öld. Eitt af fyrstu verkefnum trésmíð- averksmiðjunnar var uppsetning á loftneti Marconi-loftskeytastangar- innar við Rauðará. Það var hr. Magnús Blöndal, formaður Völund- ar, sem tók að sér verkið, eins og segir í Öldinni okkar. Niðurrifsniennirnir eru hér komnir niður á aðra hæð Þurrkhússins frá 1909. Járnið og klæðningin fer austur fyrir fjall, en enn standa burðarviðirnir sem Ragnheiður Þórarinsdóttir, borgarminjavörður talar um í greinarstúfinum. Tímamyndir pjetur Síðasti forstjóri Völundar á Klapparstígnum var Sveinn Sveins- son, sonur Sveins í Völundi. Völ- undur er nú rekinn í Skeifunni að öllu leyti. Þegar Völundarhúsiö var byggt var enginn Klapparstígur til. Það breyttist eftir að trésmiðirnir höfðu sett upp bryggjuna sína út á Klöpp- ina. Áf því dró svo stígurinn nafn sitt. En sjónarsviptir er að mörgu öðru en bryggjunni og skemmunum. Nú hverfur turninn sem blasað Itefur við sæförum og öðrum vegfarend- um. Hann hefur alla öldina að kalla verið öruggt merki þess að nú sé komið til Reykjavíkur. En fleira hverfur. Landsverslunin er þegar komin að jöfnu við jörðu og Þurrkhúsið er senn að hverfa. Ut úr þurrkhúsinu var hægt að fá þurrk- aðan við gegn 10-11% hærra verði. Segir það sína sögu um þróun timb- urgeymslumála síðustu ára. Nú er næstum allt timbur geymt í skýlum og undir þaki þó að þarna hafi vcrið bryddað upp á umtalsvcrðum nýj- ungum árið 1909. Hjá Ragnheiði Þórarinsdóttur, borgarminjaverði, fékk Tíminn þær upplýsingar aö lengi hafi verið barist fyrir því að fá elstu húsin friðuð, en allt komið fyrir ekki. Hins vegar hafi hún fengið það í gegn að Árbæjar- safnið fengi uppistöðuviðinn gamla úr Þurrkhúsinu og einnig grjótið úr hleðslunum. Erfitt cr að fá tirnbur af þessu tagi og á þessum aldri, en það hæfir vissulega bctur en nýtt í endur- byggingum gamalla húsa. Timbrið úr Þurrkhúsinu fer í að gera upp Suðurgötu 7, sem lengi hefur beðið viðgerðar og einnig Lækjargötu 4, en þar var Hagkaup lengi ti! húsa. Bókmenntafélagið á lóðina þar og er' búið að fá leyfi til að byggja nýtt hús í Lækjargötunni. Grjótið úr sökkl- unum fer í þann gamla draum Ár- bæjarsafnsmanna að endurbyggja Skólavörðuna. Sagði Ragnheiður að lokum að mikið grjót þyrfti í Skóla- vörðu og þetta væri þrátt fyrir allt, sem hvalreki fyrir safnið. KB Völundarhúsið frá 1905. Þakið er þegar af og svo fer um öll húsin, skorsteininn háa og turninn tigna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.