Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 20

Tíminn - 19.05.1988, Blaðsíða 20
Sparisjóösvextir á téKKaraKninga hávaxtaKjörum SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF Auglýsingadeild hannar auglýsinguna fyrir þig Ökeypis þjónusta Fisksölumálin vestanhafs: Verulegt tap vegna kaupa á fiskblokk Verulegar birgðir af fiskblokk höfðu safnast um síöustu áramót hjá sölufyrirtækinu Iccland Seafood Corporation í Bandaríkjunum. Vegna verðlækkunar á blokk á Bandaríkjamarkaði stefnir nú í umtalsvert tap hjá fyrirtækinu af þessum sökum. Eru horfur á að það tap muni hlaupa á einhverjum miljónum dollara. Þetta kom fram á aðalfundi sölu- vík í gær í tengslum við nýafstaðinn félagsins sem haldinn var í Reykja- aðalfund Félags Sambandsfiskfram- leiðenda. Meðal þess, sem þar kom fram, var að sala Iceland Seafood Corporation jókst um 15,2 miljónir dollara eða 9,7% frá árinu á undan. Heildarsala fyrirtækisins á flökum og verksmiðjuframleiddum vörum varð 172,3 miljónir dollara, saman- borið við 157,1 miljón árið 1986. Milljónir á hverjum laugard Upplýsingasími: 6851/1 Lengst af á síðasta ári einkenndist markaðurinn í Bandaríkjunum af mun meiri eftirspurn eftir freðfiski en hægt var að fullnægja. Þrátt fyrir miklar verðhækkanir í dollurum tal- ið á því tímabili skorti samt mikið á að Bandaríkin gætu boðið sambæri- legt verð við það sem framleiðendur þóttust sjá á öðrum mörkuðum. Þar var fyrst og fremst um Evrópulönd að ræða, þar sem í boði var hækk- andi verð og til viðbótar mjög sterkir gjaldmiðlar. Er talið fullvíst að hlut- ur Bandaríkjanna í heildarútflutn- ingnum hefði orðið mun meiri ef ekki hefði komið til það samspil gjaldmiðlanna sem varð á liðnu ári. Þegar leið að hausti fór hins vegar að gæta samdráttar vestra. Þá breytt- ust aðstæður þannie að ekkí yar lengur um að ræða hreinan seljenda- markað, heldur það sem menn þar í landi nefna kaupendamarkað. Birgðir fóru að safnast af fiskblokk í Bandaríkjunum hjá öllum seljend- um og tilhneigingar fór að gæta til verðlækkunar af þeim sökum. Hjá Iceland Seafood Corporation varð veruleg Dirgðasöfnun á síðustu mán- uðum liðins árs af þessum ástæðum, og það svo að um áramótin voru birgðir um þrem fjórðu hærri en í byrjun ársins. Aðeins hluti blokkar- birgðanna var frá íslandi, en megin- þorrinn blokk sem keypt hafði verið vestra til vinnslu í verksmiðju fyrir- tækisins. { ágúst var opinber verðskráning á blokkinni 2,00 dollarar á pundið og hafði hækkað úr 1,70 í ársbyrjun. Síðan hefur verðið hins vegar lækk- að töluvert. Það er núna 1,80 dollar- ar pundið, en heyrst hefur um lægra verð, allt niður í 1,50-1,60 dollara. Þessi lækkun var fyrirséð um ára- mót, en birgðir Iceland Seafood voru hins vegar ekki lækkaðar í verði í tæka tíð til by“ "g unnt værj áo taicá tiiiit til þessa í reikningsupp- gjöri fyrirtækisins. Nánar til tekið horfa mál þannig að Iceland Seafood muni tapa um einni miljón dollara fyrir hver tíu sent sem blokkarpund- ið lækkar. Eins og horfur eru núna á markaðnum er því talið fullvíst að fyrirtækið muni tapa umtalsverðum fjárhæðum á yfirstandandi ári vegna þessarar verðlækkunár. -esig Eigendaskipti á skóverksmiðjunni Iðunni á Akureyri: Skór frá Striki eftir 1. Frá og með 1. ágúst í sumar halda nýir menn um stjórnartaumana hjá skóverksmiðjunni Iðunni á Akur- eyri. Reyndar skiptir verksmiðjan einnig um nafn á þessum tímamótum og mun bera nafnið Strikið í höfðuð- ið á samnefndu hlutafélagi 6 Akur- eyringa um rekstur verksmiðjunnar. Jón Ellert Lárusson, einn sex- menninganna, segir að sumarmán- uðurnir verði nýttir til endurskipu- lagningar á rekstrinum. Að hans ágúst sögn eru ekki fyrirætlaðar neinar stórar rekstrarbyltingar eða umpól- anir í framleiðslu verksmiðjunnar. Gert er ráð fyrir að þrír eigenda verksmiðjunnar muni vinna við hana, þeir Haukur Ármannsson, Ármann Þorgrímsson og Sigurður Magnússon. Jón Ellert, Unnar Þór Lárusson og Guðmundur Eiríksson munu að auki sitja í stjóm fyrirtækis- ins. óþh fréttastjóri Bogi Ágústsson hefur verið ráðinn fréttastjóri Sjónvarpsins. Bogi fæddist í Reykjavík 6. apríl 1952. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972, nam síðan sagnfræði við Háskóla íslands og stundaði kennslu í íslensku og ensku með námi. Árið 1977 var hann ráðinn fréttamaður hjá Sjónvarpinu. Bogi var fréttamaður Sjónvarps- ins á Norðurlöndum frá 1984 til 1986 og síðan aðstoðarfram- kvæmdastjóri Útvarpsins í rúmt ár uns hann réðist til Flugleiða sem blaðafulltrúi. Bogi er kvæntur Jónínu Maríu Kristjánsdóttur, kennara, og eiga þau þrjú böm. Nýskipaður fréttastjórí Sjón- varpsins, Bogi Ágústsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.