Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 6

Tíminn - 09.05.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn Þriðjudagur 9. maí 1989 Svíar hugleiða að taka Astrali og Bandaríkjamenn til fyrirmyndar: Ungum bílstjórum bannað að keyra að næturlagi? „Mér fínnst þetta mjög athyglisverö hugmynd, sem full ástæða væri tii að ræða um og skoða betur,“ sagði Sigurður Helgason upplýsingafulltrúi Umferðarráðs. En Tíminn bar undir hann þá hugmynd sem sænska umferðarráðið (trafíksakerhetsverket) er nú með í athugun, að fara að dæmi Ameríkana og Astrala um að banna ungum bflstjór- um að aka bíl frá kl. 10 á kvöldin til kl. 5 á morgnana. í þeim ríkjum Bandaríkjanna sem þetta hefur verið tekið upp hefur umferðarslysum fækkað mjög verulega. Hugmynd sænska umferðarráðs- ins má skoða í ljósi stórfjölgunar dauðaslysa í umferðinni þar í landi undanfarna mánuði, sem gengur þvert á það markmið stjórnvalda að fækka fórnarlömbum umferðar- innar, að sögn dagblaðsins Syd- svenskan. Hvað varðar næturöku- bannið þykir Svíum einnig koma til álita að láta það aðeins gilda um helgar. Að sögn blaðsins létust 152 í umferðarslysum í Svíþjóð á fyrsta fjórðungi þessa árs, sem er rúmlega 20% fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Miðað við fólksfjölda svarar það til 4-5 dauðaslysa hér á landi á sama tímabili. í reynd létust hér á landi 3 vegna umferðarslysa þessa fyrstu þrjá mánuði ársins, en síðan hafa 4 dauðaslys bæst við á rúmum mánuði. Sú er víðast hvar raunin að stærsti hluti óhugnanlegustu um- ferðarslysanna verður á nóttunni, sérstaklega um helgar. Og það eru yngstu ökumennirnir sem þar eiga lang stærstan hlut að máli. „Það liggur ljóst fyrir að alvar- legustu slysin hér á landi verða flest á kvöldin og nóttunni (tíma- bilinu frá kl. 10 á kvöldin til kl. 7 á morgnana), sérstaklega fyrir helg- ar og aðra frídaga. Við vitum einnig að það er ungt fólk, 15 til 24 ára sem er stærsti áhættuhópurinn og þó 17-20 ára fólk sérstaklega," segir Sigurður Helgason. 'T.gy smviflar pá amerUet,ns^ modell: Ungdomar kan fa nattligt körförbud i nfkr Hpn modc. Trafiken i Sverige kra- ver alltfler dödsoffer. För att vánda utvecklingen diskuterar trafiksáker- hetsverket att ge unga bi- lister körförbud nattetid. Under första kvarfalet t 4r omkotn 152 mánniskor, vilket &r 27 fler ánúnder samma penod förra Sret. F.nligt trafiksaker-. hotsverket_(TSV) ár “ neisvi--| rvs-s V — densamma för hela den senaste tolvmánadersperioden. Goda resultat De yngsta förama ár inblan- dade i en oproportionerhgt stor andel av olyckorna, menar löv .nm nu funderar óverenamsil^ *’---- modeII atnpfEíuda unga Báde i USA och Austrahen dár modellen provats, har re- sultatet blivit fárre olyckor. - Frágan ár lángt ifrán fár- digdiskuterad, sá det blir inga förbud den nármaste framU- den, men erfarenhetema utom- lands ár intressanta, ságer TSVs chefyurist Per Bjork- lund. Samtidigt har trafiksáker- hetsföreningen i Stockholm pá- börjat en enkjflmed 1 700 1 ál- dem 18-21. Det ár ungdomens uppfattning om trafiken som ska kartlággas. I de fiesta lánder intráffar merparten av de svára olyckor- na pá náttema, sárskilt nátter före helger. Och hár ár ung- domsinblandningen domine- rande. Dárför gár den modell TSV diskuterar ut pá att forbju- da unga bilförare att köra om- kring just pá natten mot lor- dagar. Vill vánda trenden TSVs tuffare tag ska ses mot bakgrund av regeringens mál- sáttning att minska antalet ska- dade och dödade i trafiken Trenden ár i dag den motsatta I de delstater i USA dár kör förbud nattetid införts har anta- let olyckor gátt ner dramatiskt. Förbudet gáller frán 10 pá kvál len till fem pá morgonen. I Australien har man kombi- nerat förbudet med en nollpro- millegráns för unga bilförare. Áven dár har dödsolyckoma minskats. Núll promill í Ástralíu hefur ungum öku- mönnum ekki aðeins verið bannað að aka á nóttunni, heldur hefur viðmiðun varðandi ölvunarakstur þar verið færð niður í 0 promill. Það fylgir fréttinni að einnig þar hafi dauðaslysum í umferðinni fækkað töluvert. Sigurður telur þetta einnig at- hyglisverða hugmynd, sem hann segir líka hafa verið til umræðu meðal sænskra stjórnmálamanna um nokkurt skeið. En þeir hafi lengi vel óttast að ákvörðun um slíkt yrði mjög óvinsæl. Það hafi hins vegar komið í ljós í almennri skoðanakönnun, að vel yfir 80% Svía vilja færa viðmiðun- ina niður í núllið, með því skilyrði þó að það yrði ekki saknæmt að drekka léttöl, þ.e. samsvarandi pilsnernum okkar. En yfir 50% hafi hins vegar fallist á núllið undantekninga- og undanbragða- laust. Að sögn Sigurðar hefur alvarleg umræða um ölvunarakstur verið f gangi bæði í Svíþjóð og þó ekki síður í Noregi undanfarin misseri. - HEI Utanríkisráðherra svarar fyrirspurn um ísfiskútflutning í gámum: 1394 GÁMAR FLUTT- IR ÚT FRÁ ÁRAMÓTUM Alls var veitt leyfí fyrir útflutningi á 1104 gámum af ísfíski til Bretlands og 290 gámum til Þýskalands frá áramótum til 22. aprfl sl. Þetta kom fram í svari utanríkisráðherra til Matthíasar Á. Mathiesen þingmanns við fyrirspurn hans um útflutning á ísfíski í gámum. AIIs höfðu 86 aðilar sótt um og fengið útflutningsleyfí á umræddu tímabili. I svari ráðherra kom fram að til viðmiðunar við úthlutun leyfa til útflutnings á ísfiski í gámum hefur verið lögð áhersla á að veita helst öllum umsækjendum einhverja úr- lausn vikulega, sem þó hafi ekki alltaf tekist þegar ásókn hefur verið hvað mest. Tekið hefur verið tillit til stærðar veiðiskipa og fjölda á vegum viðkomandi útflytjenda og litið hefur verið til þess hvaða verkunaraðstöðu útgerð eða út- flytjandi hafi í landi til að koma afla í vinnslu. Þá kemur einnig fram í svarinu að tillit hafí orðið að taka til forgangs ísfisklandana fiskiskipa sem LÍÚ hefur tekið ákvarðanir um og hefur svigrúm til fiskútflutnings í gámum þrengst sem því nemur. Tekið er fram að hlutur skipa í útflutningi hafi aukist sem af er þessu ári, miðað við sama tíma í fyrra. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs nam hlutur skipanna í ísfiskútflutningnum til Þýskalands 73,7% á móti 60,3% á sama tíma í fyrra, en til Englands 30% á móti 23% á sama tíma í fyrra. - ABÓ Blaðamenn samþykktu Blaðamannafélag íslands undir- ritaði kjarasamninga við viðsemj- endur sína, útgefendur, l.maí og voru þeir samþykktir á sérstökum félagsfundi á föstudag. Blaðamenn semja við útgefendur í tvennu lagi. Annars vegar er það samninga- nefnd sem mynduð er af fram- kvæmdastjórum Tímans, Þjóðvilj- ans, Blaðs hf. og Dags hf., eða öðru nafni Blaðaprentsblöðin. Hin samninganefndin var leidd fram af Félagi íslenska prentiðnaðarins og er það samningur við útgefendur Morgunblaðsins, DV og fleiri. Samningafundir voru haldnir samhliða með báðum aðilum, en fyrr gekk saman með blaðamönn- um og Blaðaprentsmönnum, nánar tiltekið á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Daginn eftir náðust síðan samningar við FÍP sem voru nánast samhljóða samningnum við Blaða- prentsblöðin. Á félagsfundi blaðamanna var fyrri samningur- inn samþykktur með öllum grefdd- um atkvæðum, en samningurinn við FÍP var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum nema þremur. í samningunum felst m.a. 2.000 króna launahækkun 1. maí, 1.500 kr. 1. september, 1.000 kr. 1. nóvember og 1.500 kr. 1. janúar 1990. Gildistíminn er til 28. febrúar 1990. Þá má geta þess að orlofs- auka var í fyrsta sinn bætt við kjör blaðamanna, kr. 6.500, og einnig var samþykkt lágmarksgreiðsla á desemberuppbót, 9.000 krónur. KB Matvælasýning í Laugardalshöll: „Et, drekk ok ver glaðr“ Alþjóðlega matvælasýningin Icefood ’89 opnaði í Laugar- dalshöllinni á föstudag. Einkunnarorð sýningarinnar eru „et, drekk ok ver glaðr,“. Til sýnis verða hinar ýmsu gerðir matvæla frá yfir fímmtíu fyrirtækjum. Jafnframt verður matreiðslusýning allan tímann, þar sem meðal annars sýna listir sínar tveir erlendir matreiðslumeistarar. Á sýningunni verða kynntar mat- vörur, allt frá sælgæti og drykkjar- vörum til tiibúinna fiskrétta. Þarna munu nokkur fyrirtæki taka sín fyrstu spor í markaðssetningu vöru- tegunda og má þar nefna fyrirtækin „12 réttir“ og „Frostmar" sem bæði kynna fiskrétti. Þessi sýning er bæði viðskipta og almenningssýning. Um helgina og í vikunni frá sex til tíu á hverju kvöldi verður hún opin almenningi. Um miðjan dag, hvern virkan dag vik- unnar, er sýningin aftur á móti aðeins opin viðskiptamönnum þeirra fyrírtækja sem þátt taka. Standa þeim til boða litlar skrifstofur þar sem ganga má frá samningum og fleira. Sérstöku sýningarsviði hefur verið komið upp þar sem daglega munu fara fram matreiðslukynningar í um- sjón félaga úr Klúbbi matreiðslu- meistara. Til liðs við þá eru væntan- legir hingað til lands matreiðslu- meistarar frá Austurríki og Noregi. Auk þess sem ýmsir þekktir íslend- ingar verða fengnir til að opinbera kunnáttu sína á þessu sviði. Austurríkismaðurinn Roland Czekelius er annar erlendu mat- reiðslumeistaranna. Hann hefur meðal annars tekið þátt í ólympíu- l.eikum matreiðslumeistara sem lið- stjóri fyrir lið frá Nýja-Englandi. En á leikunum, sem haldnir voru í fyrra, vann liðið til nítján gullverð- launa, tveggja silfurverðlauna og eins brons. Bent Stiansen er hinn gestakokkurinn og kemur frá Nor- egi. Hann hefur verið yfirmat- reiðslumeistari á Annen Etage á hótel Continental í Osló, í þrjú ár þó hann sé aðeins 26 ára að aídri. Bent keppti einnig á ólympíuleikum mat- reiðslumeistara í fyrra þar sem norska liðið varð númer þrjú af 28 keppnisliðum sem þátt tóku. Aðstandendur sýningarinnar eru Industrial and Trade Fairs Inter- national Ltd. í Bretlandi og Alþjóð- legar vörusýningar sf. sem er um- boðsaðili breska fyrirtækisins hér á landi. ITFI hefur sem kunnugt er staðið fyrir sjávarútvegssýningunum sem haidnar eru hér á landi þriðja hvert ár. Ef vel tekst til með mat- vælasýninguna verður hún haldin aftur og verður þá ef til vill stærri í sniðum. Hugmyndin að Icefood ’89 á rætur sínar að rekja til svipaðrar sýningar sem haldin er í Kaup- mannahöfn og hefur tekist mjög vel til með. Búist er við nokkuð fjölmennum hópi erlendra gesta á sýninguna, meðal annars stórum hópi frá Græn- landi. Auk þess er íslendingum boð- inn nokkur afsláttur á fargjöldum í innanlandsflugi Flugleiða til að létta þeim að heimsækja sýninguna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.