Tíminn - 28.10.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.10.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 28. október 1989 VÁTRYGGINGAFÉLAG ÍSLANDS HF UTBOÐ Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum: Daihatsu Charade árgerð 1988 Peugeot 205 árgerð 1988 Daihatsu Charade TX árgerð 1988 Daihatsu Charade CX árgerð 1988 Mazda 626 2000 GLX árgerð 1988 Daihatsu Charade CS árgerð 1988 Mazda 323 1500 árgerð 1987 Ford Escort árgerð 1987 Mazda 323 1600 árgerð 1987 Ford Fiesta 1000 árgerð 1987 MMC L-300 árgerð 1986 Opel Kadett árgerð 1985 Toyota Tercel árgerð 1985 Toyota Carina 1600 DX árgerð 1983 Daihatsu Charade árgerð 1982 Mazda 626 2000 árgerð 1982 Toyota Hi Lux Pic up árgerð 1980 Honda Civic árgerð 1980 Crysler Le Baron árgerð 1978 Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka Reykjavík, mánudaginn 30. október 1989, I 12-17. Tilboðum sé skilað til Vátryggingafélags íslands, Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl. 16, sama dag. Vátryggingafélag íslands h.f. - ökutækjatryggingar - HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS TÆKNIDEILD Útboö Stjórn verkamannabústaða Ölfushrepps óskar hérmeð eftir tilboðum í byggingu einnar hæðar parhúss úr steinsteypu, verk nr. U.05.01 úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 198 m2 Brúttórúmmál húss 681 m3 Húsið verður byggt við götuna Norðurbyggð nr. 22 a og b, Þorlákshöfn, Ölfushreppi, og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðsgögn. Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Ölfus- hrepps, Selvogsbraut 2, 815 Þorlákshöfn, og hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins, Suður- landsbraut 24, 108 Reykjavík, frá þriðjudeginum, 31. október 1989, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðjudaginn, 14. nóvember 1989, kl. 14.00, og verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum. F.h. stjórnar verkamannabústaða Tæknideild H.R. n, HUSNÆÐISSTOFNUN nzi RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVÍK • SÍMI - 696900 LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! Frá framhaldsaðalfundi Félags ísl. rithöfunda, Timamynd: Árni Bjarna. ÞEIR KREFJAST HÖFUNDARRÉTTAR Framhaldsaðalfundur Félags ís- lenskra rithöfunda var haldinn á fimmtudaginn og komu þar fram tvær tillögur, sem báðar hlutu ein- róma samþykki. Var önnur þeirra árétting þeirrar kröfu á fjórða tug félagsmanna um, að þeir fái greiðsl- ur fyrir fjölföldunarefni í skólum eins og aðrir félagsbundnir höfundar í landinu, en Fjölís, samtök höf- undarréttarhafa, sem hafa samið við Menntamálaráðuneytið um greiðsl- ur fyrir fjölföldunarefni, hefur svipt á fjórða tug höfunda höfundarrétti undir forystu Ragnars Aðalsteins- sonar, lögfraeðings, sem hefur talið sig sérfræðing um málefni rithöf- unda. í fundartillögunni kemur fram, að engan er hægt að svipta höfundar- rétti hvorki samkvæmt aiþjóðalög- um eða íslenskum lögum, þótt lög- fræðilegur forystumaður Fjölís standi fyrir slíku, og vill félagið að Menntamálaráðuneytið gangi í mál- ið og komi í veg fyrir frekari laga- brot. Þá samþykkti fundurinn tillögu frá Sveini Sæmundssyni, formanni félagsins, þar sem skorað er á stjórn- völd fella niður virðisaukaskatt af bókum, blöðum og tímaritum, eða eins og segir: „rituðu og töluðu orði“. Ein af röksemdunum fyrir þessari samþykkt er, að nú berst margvíslegt erlent efni til landsins um gerfihnetti án þess að nokkur virðisaukaskattur sé lagður á það efni. Þykir þetta undarleg mismunun á sama tíma og reynt er að afla veg íslenskrar tungu með einum og öðr-I um hætti. Framleiðsluráð landbúnaðarins mótmælir vinnubrögðum Verðlagsstofnunar: Könnun á verði land- búnaðarvara villandi Framleiðsluráð landbúnaðarins samþykkti á fundi síðastlið- inn fimmtudag að mótmæla vinnubrögðum Verðlagsstofnun- ar við túlkun á niðurstöðum á verðkönnun á matvörum sem gerð var í höfuðborgum Norðurlanda og í London í lok júní. Telur ráðið að þessi vinnubrögð hafi valdið því að fjölmiðlar hafí dregið of víðtækar og villandi ályktanir af könnuninni. Röksemdir framleiðsluráðsins miða fyrst og fremst við það að mörgum þáttum sem hafi áhrif á verðmyndum á landbúnaðarafurð- um erlendis sé sleppt í könnuninni. Þar má nefna kostnað við aðföng til landbúnaðarins, beina rekstarstyrki til bænda og skattastefnu stjórn- valda. í tilkynningu til fjölmiðla bendir framleiðsluráð á eftirfarandi máli sínu til stuðnings: Smásöluverð eitt og sér er ekki nægilegur grunnur til að fella dóma um hagkvæmni innlendrar fram- leiðslu. Til að niðurstöður af saman- burði á vöruverði á milli landa sé marktækur, þarf einnig að bera sam- an rekstarumhverfi atvinnugreinar- innar, svo sem verð á mikilvægustu aðföngum, kostnað við flutning og þjónustu, svo og fjármagnskostnað. Staða gengismála skiptir miklu máli við verðsamanburð sem þennan. Gengi íslensku krónunnar hefur fallið gagnvart norrænum gjaldmiðlum um 8.5%-10% frá því í júlíbyrjun. Það gefur til kynna að ekki hafi verið búið að leiðrétta stöðu krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum að fullu á þeim tíma sem könnunin var gerð. Þetta hefur veruleg áhrif á endanlegar niður- stöður. Enginn sölu- eða virðisaukaskatt- ur er lagður á landbúnaðarafurðir í Færeyjum og Englandi. Stefna stjórnvalda varðandi inn- flutning kynbótadýra í alifugla- og svínarækt, svo og skattlagning kjarn- fóðurs hefur mikil áhrif á verðmynd- un þessara afurða að ekki verður fram hjá því gengið við mat á hagkvæmni innlendu framleiðslunn- ar. Til að könnun af þessu tagi sé marktæk, þarf einnig að bera saman kaupmátt ráðstöfunartekna í við- komandi löndum. Álagning matarskattsins hefur haft mikil áhrif til hækkunar á út- söluverði búvara. Ríkissjóður fær um það bil 280 milljónir í tekjur af matarskattinum og öðrum álögum á mjólkur og kjötframleiðsluna, um- fram það sem fer í niðurgreiðslur viðkomandi vörutegunda. SSH JC-dagurinn: BÚUM BÖRNUM BETRI FRAMTÍD í dag verður haldinn hátíðlegur hefst kl. 14:00. JC-dagurinn og ber hann yfirskrift- Á sama tíma hefst borgarafund- ina „Búum börnum betri framtíð." ur á Akureyri þar sem flutt verða í tilefni af JC deginum, munu JC ýmiserindi f tengslum við yfirskrift félögin í Reykjavík og Seltjarnar- dagsins. Fundinum lýkur með al- nesi halda skemmtun á Eiðistorgi mennum umræðum og fyrirspurn- Seltjamarnesi í samstarfi við um. Krísuvíkursamtökin. Skemmtunin

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.