Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 4. apríl 1996 Wmmu 7 um allan bæ ab það fengist ekki svar við þessu síðasta tóndæmi." Um það að læra spurning- arnar í Trivial Pursuit sem í ár- daga keppninnar var vinsælt hjá keppendum, segir Arnór að þær séu einkum notaðar til æfinga, til að kanna við- bragðsflýtinn. „Ekki vegna vitneskjunnar sjálfrar í þeim." Eyþór og Kjartan segjast hafa vitað í raun öll svör sem þeir komu með rétt, það hafi ekki verið giskab í neinum til- fellum. Þó segir Kjartan skemmtilega tilviljun hafa komið upp sama dag og úr- slitakeppnin var haldin þegar þjálfarar gerðu hinstu stikk- prufu á kunnáttu keppend- anna. „Stefán sagðist vera með skemmtilega spurningu, hvert heimsmetið væri í að rugga sér í ruggustól. Ég skaut á 444 klukkustundir og það reyndist rétt! Það er „gisk" í lagi og mér þótti þetta góður fyrirboði um að viö myndum vinna úrslitakeppnina." -En hvað með taugaóstyrk, voru menn stressaðir? Arnór: „Viö vorum ekki stressaðir en spenntir. Um leið og við vorum komnir í 26-13 nábum við að slaka á." Kjartan segir mikla gleði hafa gripiö sig er hann sá að Flensborgarskólinn fékk að- eins 13 stig í hraðaspurning- unum en MR- ingarnir svör- uðu 22 hraðaspurningum sjálfir sem er það besta sem náðist í ár. „Við bjuggumst við svona 15-16 stigum hjá hinum. Fram að þessu höfðu allir andstæðingarnir okkar fengið 13 stig í hraðaspurn- ingunum nema Húsvíkingar." Sá í stuöinu fékk aö svara Um ágreining um svör, segir Kjartan að hann hafi senni- lega oftast tekið af skarið en aðallega hafi því verið þannig farið að „sá sem var í stuðinu hann svaraði." Fyrirliðinn Guðmundur hafi í raun ekki haft meiri völd en aðrir. Ef við fáum hugmynd er hún borin upp við félagana og sá sem er til í að gera sig að fífli fyrir framan alþjóð lætur vaða, ef svarið er umdeilt." Helgi Ólafsson stórsmeistari samdi spurningarnar í keppn- inni og segja Arnór og Kjartan að þær hafi veriö „skemmti- lega ófyrirsjáanlegar". „Þær voru góðar að því leyti að það var ekki hægt að lesa ákveðið efni upp til að svara þeim." Um þyngdarstig eru þeir sanimála um að hraðaspurn- ingarnar hafi veriö þyngri en áður og það hafi komið fram í skorinu. Stjórnendur þessa þáttar hafa löngum verið umdeildir. Hvað fannst þeim, um Davíð Þór? „Ef vib skiptum þeim upp í þá sem hafa leikið „Bondarann" er Stefán Jón Connery og Davíð Þór Pierce Brosnan. Við látum Ómar liggja á milli hluta," segir Kjartan. Kampavín og Strandakaka Nú gengur Guðmundur fyr- irliöi inn og sest viö borðið. Hann skiptist á nokkrum orð- um við Kjartan og Arnór þar sem veislugleði næturinnar er rifjuð upp. Haldiö var upp á sigurinn með tilheyrandi hætti, kampavíni og „Stranda- köku" sem Guðmundur á heiðurinn af. Aðspurður um ættfræðina segir Guðmundur að Tíminn ætti að kannast vel við afa sinn, Torfa Guð- brandsson, þar sem hann hafi skrifað mikið í Tímann. „Ég er fæddur á Blönduósi 1. janúar 1977 og hef ekki enn flust til Reykjavíkur. Ég á lögheimili á Melum 1 í Strandasýslu og foreldrar mínir eru Björn Guð- mundur Torfason og Bjarney Júlía Fossdal, báðir bændur." Guðmundur segir bekkjar- kerfið í MR hafa verið aðal- ástæðu þess að hann sló til og fór þangað. „Félagslífið er allt öðruvísi í skóla sem hefur bekkjarkerfi. Maður kynnist krökkunum miklu betur. í áfangakerfinu eignast maður frekar kunningja en vini." Allir af fornmála- braut -Ein klisjuspurning. Snobb og hroki í MR? Guðmundur: „Nei, hrokinn er bara gríma sem vib setjum upp til að pirra aðra fram- haldsskólanemendur. Hér eru menn almennt mjög venju- legir og jarðbundnir nema í „extreme" deildum eins og fornmáladeild 1 og eðlisfræði- braut." í ljós kemur að þremenn- ingarnir eru allir við nám í Fornmáladeild 1 sem jafn- framt er fámennasta deildin í skólanum. Af 8 siguvegurum úr MR hafa sigurvegarar 5 sinnum verið úr Forn 1 að sögn Kjartans. Fyrirlestur Guðmundar um ferðir á Norður- og Suðurpól vakti nokkra athygli í úrslita- þættinum. í fyrsta skipti voru staðreyndavillur „kaffihúsa- kallanna" leiðdréttar og gerði Guðmundur reyndar gott bet- ur, þar sem hann leiðrétti þá fjórðu, þegar frumstæðir vél- slebar hefðu verið notaðir í einni ferðinni. -Hvernig í ósköpunum gat hann vitað þetta? „Ég fékk mikinn áhuga á þessu á sínum tíma, ég les margt skrýtið. Ég kynnti mér kapphlaupið um pólinn og flest sem hægt er ab lesa um Amundsen. Einu sinni var ég kominn í tímahrak með rit- gerð í grunnskóla og bjargabi mér fyrir horn með því að halda 15 mínútna óundirbú- inn fyrirlestur um heimskaut- ið. Þetta rifjaðist svo upp í þættinum." Aupair í Japan og aukin kvenhylli -En hvað ber svo framtíðin í skauti sér. Eru menn ekki stór- huga eftir viðurkenningu sem þessa? Guðmundur: „Það sem nú tekur við eru stúdentspróf og utanlandsferð í sumar. Ég er að gera það upp við mig hvort ég verði Au-pair í Japan næsta vetur eða fari í sagnfræði í Há- skóla íslands." Kjartan: „Ég er að spá í að fara erlendis í „eitthvert rólegt fag en ef HÍ verður fyrir val- inu gæti ég hugsað mér að kíkja á lagakrókana." Arnór er enn ekki farinn að hugsa um framtíðarstarfið. Hinsta spurning blaðmanns er hvort sigurinn í keppninni muni koma til meb að breyta einhverju í lífi sigurvegar- anna. Þeir eru sammála um að sjálfstraustið hafi aukist og hégómagirndin e.t.v. kitluð lítillega. Um kvenhylli sögðu þeir sannað aö hún myndi stóraukast. „Nú er rétti tíminn að vera á lausu," og þar með voru Guðmundur, Kjartan og Arnór roknir. Björn Þorláksson Hin hliöin á forseta- framb j óðendunum Fjórir íslendingar hafa tilkynnt aö þeir gefi kost á sér til forsetafram- boös þann 29. júní nœstkomandi. Tíminn lagöi fimm laufléttar spurningar fyrir frambjóöendurna. í Ólaf Ragnar Grímsson náöist ekki aö þessu sinni. En hér koma svör hinna þriggja. Spurt var: 1. Hver er uppáhalds rithöfundurinn þinn, tónlistarmaðurinn og mynd- listarmaðurinn? 2. Er einhver matur í sérstöku uppáhaldi hjá þér? 3. Ef þú fengir óvæntan frídag, hvernig mundir þú verja honum? 4. Með hvaða íþróttafélagi heldur þú? 5. Hver er fallegasti staður sem þú hefur komið á? Gubrún Agnarsdóttir, lœknir og for- stjóri Krabbameinsfélags íslands: LISTIN Ég á svo marga eftirlætishöfunda, eftirlætistónskáld og eftirlætis- myndlistarmenn. Það er sannast sagna ógerningur ab gera upp á milli þeirra. Ég les mikiö og hlusta mikið á tónlist og hef líka mikla ánægju af myndlist. Fjölmargir listamenn hafa gefið mér svo ótrú- lega mikið, og það er ógerningur að einskorða sig vib eina mann- eskju. MATURINN Það er nú með matinn. Ég hef svo gaman af að borða og borða yfir- leitt það sem boriö er fyrir mig. Ég hef gaman af fjölbreytilegum mat, líka einhverju óvæntu og óvana- legu. En íslenskur fiskur er kannski þab sem maður mundi velja sér í daglegan kost, ég hef dálæti á hon- um. FRÍDAGURINN Ég held ég mundi verja óvæntum frídegi með mínum nánustu úti í náttúrunni. ÍÞRÓTTIRNAR Ég hef mikla trú á íþróttum, þær eru mikilvægar, ekki síst það að sem flestir ibki einhverja íþrótt eða hafi einhverja reglubundna hreyf- ingu og holla útivist. Keppnis- íþróttir eru auðvitað spennandi og skemmtilegar út af fyrir sig og laða áreiðanlega abra iðkendur að. En ég hef ekki haldið með einu félagi umfram annað fram til þessa. FEGURÐIN Feguröin er margbreytileg og stað- irnir margir sem eru fagrir. Eg hef víða farið um heiminn, en þaö er erfitt að benda á einn stað. Jafnvel í hrjóstrugasta landslagi býr mikil fegurð. Gubrún Pétursdóttir, líffrcebingur og forstöbumabur Sjávarútvegsdeildar Háskóla íslands: LISTIN Ég les mest ljóð, núna síðast Kóð eftir Þórð Magnússon, sem er löngu látinn, yndislega bók, útgáfu sem ég fékk að vera meö í að kosta. Ég hlusta mjög mikið á tónlist og hef svolitla menntun í klassískri tónlist og hef sungið í kórum og er í stjóm óperunnar. Ég er myndlist- arunnandi ofan á allt, líklega er ég listafíkill, og sæki myndlistarsýn- ingar. Ég er ekki síður hrifin af ný- listinni sem nú er áberandi en eldri formum myndlistar. MATURINN Mér finnst gott að borða góðan mat, en ekki mikið af honum. Um páskana ætla ég ab hafa fisk í ofni á föstudaginn langa, og skinku á páskadag. Maöurinn minn var kokkur á síldarbát og býr til heims- ins bestu fiskibollur et'tir uppskrift móður sinnar. FRÍDAGURINN Þá mundi ég setja nesti í bakpok- ann minn, fara í regnkápu, því ég er forsjál, og síðan mundi ég fara í gönguferð eftir öllum nýja stígnum sem liggur frá Ægisíðu og upp í Heiðmörk. í lokin mundi ég fara í Árbæjarlaug með steipurnar mínar — og taka strætó til baka. ÍÞRÓTTIRNAR Ég held ekki með neinu íþróttafé- lagi, ég held með íslendingum þeg- ar þeir keppa vib útlendinga, lands- liðinu. Ég hef ekki stundaö íþróttir sjálf, en var í ballett þegar ég var lítil. FEGURÐIN Það er óhemjufallegt víba á Vest- fjörðum. En ab nefna einn stað er nánast útilokað. Ég á alltaf erfitt með „uppáhalds"-spurningar. Mað- ur þrengir svo sviðib ef eitthvaö er „uppáhalds" hjá manni. Cubmundur Rafn Geirdal, nudd- frœbingur og skólastjóri: LISTIN Uppáhaldsrithöfundurinn minn er Albert Einstein. Ég hlusta lítið á tónlist, og sama er að segja um myndlist að þar á ég engan uppá- halds myndlistarmann. En ég les ákaflega mikib. MATURINN Hrísgrjón eru minn eftirlætisrétt- ur. Eg hef stundum verið á græn- metisfæði, og legg mikib upp úr því að borða eins holla fæðu og kostur er hverju sinni. FRÍDAGURINN Fengi ég óvæntan frídag, þá mundi ég áreiðanlega nota hann til að hugleiða. ÍÞRÓTTIRNAR Ég á ekkert uppáhalds íþróttafé- lag. Ég hef trú á almennings- íþróttum, en er lítið fyrir keppn- isíþróttir, sérstaklega barna sem er att út í keppni allt of snemma, áður en þau eru tilbúin. Ég var sjálfur hlaupari í Breiðabliki, og á enn met í millivegalengdum. FEGURÐIN Fallegasti staður sem ég hef séð er líklega Boulder í Colorado þar sem ég var við nám. Klettafjöllin eru afskaplega falleg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.