Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 18

Tíminn - 04.04.1996, Blaðsíða 18
18 Wmfom Fimmtudagur 4. apríl 1996 + A N D L Á T Emilía Grönvold frá Litlu-Skógum, síöast til heimilis á Skúlagötu 40, lést í Larídspítalanum mánudaginn 1. apríl. Friöjón Skarphéöinsson, Furugeröi 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 31. mars. Jón Gubmundur Jónsson frá Stokkseyri er látinn á Hrafnistu í Reykjavík. Jóna Gubmundsdóttir, Vitastíg 4, Hafnarfiröi, lést á Sólvangi, Hafnarfiröi, laugar- daginn 30. mars. Kristjana Jónsdóttir Lillý, Háaleitisbraut 101, lést föstudaginn 29. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miövikudaginn 10. apríl kl. 13.30. Olafur Þórir Jónsson, Grettisgötu 75, er látinn. Petra Ásmundsdóttir, Hrafnistu Hafnarfiröi, lést 31. mars. Torfi L. Torfason, dvalarheimilinu Höföa, Akranesi, andaöist í Sjúkrahúsi Akraness 31. mars. Jarösett veröur frá Akraneskirkju 11. apríl kl. 14. Þórarinn Alexandersson, Stigahlíð 20, Reykjavík, er látinn. Þórir Kárason, fyrrum bóndi aö Galtarholti, Skilmannahreppi, lést 29. mars. IhhjIhiIIk ÁBURÐARDREIFARAR Áratuga reynsla á íslandi • Hefur færanlegan neðri festipinna, þannig að hægt er að setja hann á allar gerðir dráttarvéla. BÆNDUR! PANTIÐ TÍMANLEGA Hafíö samband viö sölumenn okkar, sem gefa allar nánari upplýsingar. Ingvar Helgason hf. vélasala Sævartiöföa 2, SÍMI 525-8000 Venjum unga hestamenn strax á að NOTA HJÁLM! UUMFERÐAR RÁÐ Jóhannes Nordal á ráöstefnu Eyþings á Akureyri: Skilyrði til orkufreks ibnaðar batnað verulega Gert er ráö fyrir ab notkun áls í heiminum vaxi úr um 18 milljónum tonna á þessu ári í allt ab 24 milljón tonn áriö 2004. í lok ársins 1986 nam árs notkun áls um 14 milljónum tonna og er því gert ráö fyrir aukningu um allt ab 10 milljónir tonna á tæpum tveimur áratugum og aö um 6 milljón tonn af þessari aukningu eigi eftir aö koma fram á næstu sex ár- um. Þetta kom meöal annars fram í erindi sem Jóhannes Nordal, fyrrum seblabanka- stjóri og formabur viöræöu- nefndar um orkufrekan ibn- aö, hélt á rábstefnu um menntun, atvinnu og fram- tíö á vegum Eyþings, sam- taka sveitarfélaga í Noröur- landskjördæmi eystra síbast- liöinn föstudag. Jóhannes Nordal sagöi að horfur á álmarkaði færu nú smám saman batnandi meö vaxandi eftirspurn er kalla muni á aukna fjárfestingu í ál- framleiðslu á næstu árum og af þeim sökum hafi skilyrði til uppbyggingar orkufreks iön- aöar hér á landi batnað veru- lega. Auk þess geti íslendingar boöiö samkeppnishæft orku- verö, hagkerfið verði stööugt opnara og hér á landi sé al- menn afstaða til fjárfestinga erlendra aðila mun jákvæöari en verið hafi fyrir nokkrum ár- um. Jóhannes sagði aö sá vandi sem einkennt hafi ál- markaðinn aö undanförnu hafi einkum stafað af efna- hagslægð er farið hafi aö gæta upp úr 1990 auk þess sem út- flutningur á áli frá Rússlandi og öörum fyrrverandi komm- únistaríkjum hafi vaxib mjög mikið eftir hrun kommúnism- ans og falls járntjaldsins. Verbsvelfla frá 1300 bandaríkja- dollurum til 2800 dollara fyrir tonnib í töflu og spá sem Jóhannes Nordal sýndi kemur fram aö aukins útflutnings á áli frá Austur-Evrópu og Kína fór aö gæta urn 1992 og náö hámarki á árunum 1994 til 1996. Eftir þaö er gert ráö fyrir að um nokkuð jafnan útflutning verði aö ræða fram til ársins 2003 en þá muni hann fara minnkandi. í sömu spá er gert ráð fyrir verulegum verösveifl- um á þessu tímabili. Þar kem- ur fram aö heimsmarkaðsverð á áli hafi verið um 1300 bandaríkjadollarar fyrir tonn- iö áriö 1993 en 1997 veröi verðib komið upp í allt aö 2500 dollara. Þá er gert ráö fyr- ir aö veröið falli á nýjan leik og um aldamótin veröi það komiö niður í um 1500 banda- ríkj^dollara tonnið en þá hefj- ist uppsveifla að nýju er nái hámarki um 2003 og veröi ál- verö á heimsmarkaði þá kom- ið í allt aö 2800 bandaríkja- dollara. Uppsveiflan standi þó ekki lengi því samkvæmt spánni er gert ráð fyrir að ál- verö geti orðið um 2000 doll- arar fyrir tonniö áriö 2005. jóhannes Nordal. Ákvaröarnir um byggingu álvera oftast teknar á síb- ara stigi efnahags- legrar uppsveiflu Jóhannes Nordal nefndi nokkur dæmi um stofnkostn- að vegna byggingar álvera. Hann sagöi að stofnkostnaöur við byggingu nýs 200 til 250 þúsund tonna álvers væri um 5000 bandaríkjadollarar á árs- tonn. Væri sambærilegt álver byggt í tveimur áföngum mætti gera ráö fyrir að stofn- kostnaöur fyrri áfanga yröi um 6000 dollarar á árstonn en stofnkostnaður síðari áfanga um 4000 dollarar. Þegar um stækkun eldri álvera væri aö ræöa næmi stofnkostnaður- inn á hvert árstonn á bilinu 3000 til 4000 dollarar. Jó- hannes sagöi að nú væri talið hagkvæmast að byggja um 200 þúsund tonna álver og stofnkostnaður slíkra verk- smiðja væri áætlaður um 1000 milljónir dollara. Vegna hins mikla stofnkostnaðar væru ákvaröanir um byggingar ál- vera sjaldnast teknar fyrr en á síðara stigi efnahagslegra upp- sveiflna og gera yröi ráð fyrir aö slíkt efnahagsstig stæöi jafnan stutt yfir. Þá verði að taka meö í reikninginn að byggingatími álvers sé allt að tvö og hálft til þrjú ár eftir að ákvarðanatöku er lokið og byggingartími stórra virkjana geti verið allt aö fjögur til fimm ár. Fækka þarf sérregl- um en byggja á al- mennum reglum Þá ræddi Jóhannes Nordal nokkuð um leiðir til þess að greiöa fyrir ákvarðanatöku hvaö orkufrekan iðnað hér á landi varðar. Hann sagöi að fyrsta skilyröi þess væri að fækka sérreglum um þá starf- semi sem mest en byggja þess í stað á almennum reglum. Skýrar reglur verði að gilda um orkufrekan iðnaö á vinnu- markaði er bæði stuöli ab hag- kvæmni og dragi úr hættu á verkföllum. Nauðsynlegt sé að næg orka sé ætíð til staðar inn- an þriggja ára og takist að semja um lægra orkuverö fyrstu þrjú árin en það verð sem síðan gildi til frambúðar. Einnig sé nauðsynlegt að lækka byrjunarkostnað við framkvæmdir til dæmis með leigu á hafnaraðstöðu og aö undirbúa lóbir til fram- kvæmda þar sem hægt verbi að bjóða hagkvæma staðsetn- ingu þar sem gera megi ráð fyrir jákvæðri afstöðu heima- manna og ab unnt verði að leysa þau umhverfisvandamál sem upp kunna að koma á sem skemmstum tíma. Þá sé nauðsynlegt að stofna eignar- haldsfélag í eigu íslendinga er geti orðið virkur abili í ákvarð- anatöku og fjármögnum fram- kvæmda þegar hagkvæmt þyki. Forathuganir á sex stöbum Jóhanns Nordal sagbi að þegar tekið væri tillit til stað- arvals fyrir orkufrekan iðnað verði að hafa í huga að nægi- legt landrými sé til staðar og góð hafnaraðstaða fyrir hendi. Stór og fjölbreyttur vinnu- markaður sé fyrir hendi á fyr- irhuguðu athafnasvæði álvers og engin vandleyst umhverfis- mál að finna. Gera verði ráð fyrir litlum viðbótarkostnaði vegna raforkuflutnings og telj- andi andstöbu megi ekki finna á meðal heimamanna. Jó- hannes sagði að þegar hafi verið gerðar forathuganir vegna staðsetningu orkufreks iðnaðar á sex stöðum hér á landi. Þar sé um að ræba Helguvík og Keilisnes á Reykjanesi, Grundartanga í Hvalfirði, Dysnes í Eyjafirði, Reyöarfjörö og Þorlákshöfn. Forathuganir séu komnar lengst á Keilisnesi og á Grund- artanga og einnig nokkuö langt í Helguvík en mun skemmra á hinum stöðunum. Við mat á kostum komi Keilis- nes og Grundartangi best út en Helguvík og Dysnes sýni einnig viðunandi útkomu. Hins vegar sé um lakari kosti ab ræða í Þorlákshöfn og í Reyðarfirði. Byggist það meðal annars á aö hafnarabstaba er talin slæm í Þorlákshöfn og landrými og vinnumarkaður séu lítil í Reyðarfirbi auk þess sem raforkuflutningur er tal- inn fremur óhagkvæmur. Kostnabarsöm undirbúningsvinna veikir samkeppnis- stöbu í erindi Jóhannesar Nordal kom fram að ákvarðanir um orkufrekan iðnað varði það mikla fjármuni að þær verði ekki teknar nema þegar öll skilyrði séu hagstæð. Mikil samkeppni sé um staðsetn- ingu slíks iðnaðar og því mik- ilvægt að ákvarðanir dragist ekki á langinn af hálfu íslend- inga ef erlend fyrirtæki sýni áhuga á að hefja framkvæmd- ir. Af þeim sökum sé nauösyn- legt að öll skilyrði liggi sem ljósast fyrir eftir að samninga- viðræður hefjist því tímafrekar athuganir og kostnaðarsöm undirbúningsvinna auki óvissu og veiki samkeppnis- stöðu. ■

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.