Réttur


Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 12

Réttur - 01.07.1937, Blaðsíða 12
vissuðu þig um það, hve mikilsvirði þú ert í augum hennar og hve hamingjusama þér hefir tekizt að gera hana. En þú hafðir samt ekkert samvizkubit af því að yfirgefa hana, því gerðir þínar stjórnast ekki af óhugsuðu ráði, svo að þú þurfir að sjá eftir þeim. Þú hefir aldrei séð eftir neinu, sem þú hefir gert, því lífið er í þínum augum reikningur, og allir þínir reikningar hafa jafnan verið réttir. Svo heldur þú leiðar þinnar. Þú hefir kosið að fara gangandi, þótt bíllinn þinn sé heima og þú hafir yndi af því að aka í honum. ánægju af því að hafa stjórn á þessum mörgu hestöflum, sem knýja hann áfram, og ráða sjálfur ferðinni. Þú hefir alltaf haft um- ráð fyrir miklum krafti og haft sjálfur stjórnina. Hvert spor, sem þú stígur, er fjaðrandi af ánægju, hver hreyfing hlaðin eftirvæntingu; vellíðan þín er þér nautn, í vitundinni um það, að þú hefir unnið til hennar og veitt þér hana sjálfur. Reykurinn úr góða, hollenzka vindlinum þínum þyrlast út í dökkleitt, draumþrungið september loftið og skilur eftir rák af dularfullum ilmi. Þú veifar gullbúnum göngustaf hversdagslega og raular nýjan jazz á milli tannanna. Engar lamandi hugsanir um kreppu eða flókin við- fangsefni stjórnarfundarins í hinu mikla fyrirtæki þínu þyngja skap þitt. Hugur þinn er léttur á sér eins og fugl að vorlagi. Þú ert að vísu úr sveit og flestir ættingjar þínir fást ennþá við búhokur, en það eimir ekki eftir af neinum einkennum sveitamannsins hjá þér, nema hið hrausta og fjöruga blóð, sem þú hlauzt í vöggu- gjöf frá foreldrum þínum, sem alizt höfðu upp v"5 erfiðan heyskap og mikið útiloft og mjólk. Alt annað: útlit þitt, fas og hugmyndaheimur hefir fengið á sig stimpil borgarinnar. Þú hefir tileinkað þér menningu hennar til fulls; engan grunar uppruna þinn, frem- ur en hússins þíns. Þú ert fallegur maður á bezta aldursskeiði lífsins;. 172

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.